blaðið - 10.11.2006, Side 40
FOSTUDAGUfi
SVEMBER 2006
Stærsta safn uppstoppaðra veiðidýra
Það er alltaf gaman að heimsækja Veiðisafnið á Stokkseyri en þar er
stærsta safn uppstoppaðra veiðidýra á (slandi ásamt skotvopnum,
fuglum og munum tengdum veiði. Safnið er opið núna í nóvember og því
tilvalin hugmynd að skella sér. Frekar upplýsingar eru á www.hunting.is
blaðið
Farið varlega
Það er full ástæða til að minna veiðimenn á að taka alltaf með sér GPS-
staðsetningartæki þegar farið er á veiðar. Þrátt fyrir að veiðimenn þekki
landið vel þá er aldrei að vita hvað getur gerst og til að mynda getur
óveður skollið á. Það er því þest að vera öruggur með réttu tækin.
Elsta íþróttafélag
íslands
Skotfélag Reykjavíkur er elsta
íþróttafélag íslands en það var
stofnað árið 1867 við Skothúsveg í
Reykjavík. Skothúsvegur dregur ein-
mitt nafn sitt af skothúsi Skotfélags
Reykjavíkur eins og kemur fram á
heimasíðu Skotfélags Reykjavíkur,
www.sr.is. Skothúsið var reist af
skotfélagsmönnum um það leyti
sem félagið var stofnað. Starfsemi
Skotfélags Reykjavíkur á sér lengri
forsögu en frá formlegri stofnun
þess 1867 því fyrir stofnun félags-
ins voru stundaðar skotæfingar við
Tjörnina í Reykjavík frá árinu 1840.
Þegar æfingar Skotfélagsins voru
haldnar var gefin út viðvörun til
bæjarbúa og þeir varaðir við að
vera á ferli á melunum og í skotlínu
skotmanna, vegna slysahættu af
völdum skota.
Aðstaða Skotfélags Reykjavíkur
er tryggð til framtíðar í Reykjavík
með tilkomu inniaðstöðu í Egilshöll
og útisvæðis á Álfsnesi. í Egilshöll
er aðstaða fyrir flestar greinar
skotíþrótta, sem stundaðar eru
innanhúss og er þetta í fyrsta skipti
í langri sögu skotíþrótta á Islandi,
sem inniaðstaða er hönnuð utan
um skotíþróttir. Þá mun félagið
einnig hefja starfsemi á nýju útiskot-
svæði á Álfsnesi en þar verður að-
staða fyrir skammbyssu-, riffla- og
haglabyssugreinar. Stefnt er á að
á Álfsnesi rísi skotsvæði, þar sem
haldin verða alþjóðamót í ýmsum
greinum skotíþrótta í framtíðinni.
Páll Magnússon: „Ég finn ekki
margar leiöir til þess að gleyma
arginu og vinnunni en þetta er
klárlega ein þeirra. I veiöi get ég
gleymt öllu öðru.“ Mynd/Cúndi
Páll Magnússon útvarps-
stjóri hefur mikinn
áhuga á alls kyns veiðum
og reynir að stunda þær
reglulega þrátt fyrir að hann hafi
minni tíma til að sinna veiðunum
en hann vildi.
„Það fer eftir tímaskeiðum
hvaða veiði verður ofan á en ég
stunda rjúpnaveiði, gæsaveiði,
svartfuglaveiði, hreindýraveiði,
lundaveiði í háf í Bjarnarey í
Vestmannaeyjum og stangveiði,"
segir Páll og bætir við að það
sé engin ein veiði skemmtilegri
en önnur. „Allt hefur þetta sinn
sjarma. Ég hef gaman af þessu og
fæ mikið út úr veiðunum. Það er
einhver tilfinning sem er sam-
eiginleg öllum veiðum, nálægð
við náttúruna og einhvers konar
frummennska."
Þrátt fyrir að Páll hafi mikla
ánægju af veiðum segist hann ekki
hafa tíma til að sinna áhugamálinu
eins vel og hann vildi. „Astundun-
in hefur minnkað með auknum
önnum í vinnu þannig að ég veiði
ekki eins mikið og ég vildi. Eg á ef-
laust eftir að veiða oftar ef og þegar
hægist um í argi hversdagsins. Það
er heldur engin betri aðferð til þess
að kúpla sig frá hversdeginum, ég
finn ekki margar leiðir til þess að
gleyma arginu og vinnunni en þetta
er klárlega ein þeirra. I veiði get ég
gleymt öllu öðru,“ segir Páll sem
hefur ekki enn þá komist á rjúpu.
„Hins vegar stefni ég á að komast
á rjúpu því ég fer alltaf og næ í jóla-
matinn. Ég skýt alltaf rjúpur fyrir
jólin en ég gerði það náttúrlega ekki
þegar það var bannað. Ég sleppti
hins vegar ekki rjúpunni enda verð
ég að hafa rjúpu á aðfangadags-
kvöld. Ég leitaði um allt land og
fann rjúpu í frystikistum hjá Kaup-
félagi Skagfirðinga á Sauðárkróki
til að bjarga jólunum. Rjúpuna
elda ég á hefðbundinn máta, brúna
hana fyrst og sýð svo. Einu sinni
reyndi ég að elda rjúpuna á nútíma-
legan hátt, að léttsteikja bringurnar
og hafa þær rauðar. Mér fannst það
rosalega gott en ég var eiginlega
púaður niður þau jól. Það vilja allir
hafa þetta eins og þetta var í gamla
daga.“
svanhvit@bladid.net
GARMIN KEMUR
RJUPUNNAR
www.rs.is
Garmin GPSmap 60Cx
Eitt öflugasta staðsetningartækið fyrir veiði- og úti-
vistarfólk. SiRF GPS móttakari, 64Mb Micro SD
minniskubbur fyrir kort, mikið vegpunkta og feril-
minni ásamt vegleiðsögutölvu. Fjölhæft tæki í bílinn,
veiðina eða á fjalliö.
eTrex Venture Cx
Minnsta kortatækið frá Garmin. Litaskjárinn í þessu
fyrirferðalitla tæki er ótrúlega skýr og staðsetning
takka er hönnuð til að auðvelda notkun i annarri hendi.
GPS kort, útgáfa 3.0. (slandskort (Garmin tæki,
20 metra hæðarlínur, 40.000 örnefni, mikið magn
hálendisslóða og margt fleira.
<*áfc>vÉLASALAN JgOL ®mdiomidun R. SIGMUNDSSON
ÁNANAUSTUM 1 | 101 REYKJAVÍK | SfMI 520 0000 | www.garmin.is
Umboðsmenn I Akureyri: Haftækni • Blönduós: Krákur • Egiisstaðir: Bilanaust • Grundarfjöröur: Mareind ■ ísafjörður: Bensinstööin
Reyöarfjöröur: Veiöiflugan • Selfoss: Hársnyrtistofa Leifs • Vestmannaeyjan Geisli • Reykjavfk: Arctic Trucks, Bllanaust,
Elko, Everest, Gísli Jónsson, Hlað, Intersport, Stormur, Toyota aukahlutir, Útilrf, Vesturröst, Yamaha • Fríhöfnin
Lýkur 30. nóvemb-
er Þaö eru einungis
nokkrir dagar eftir
af rjupnaveiðitima-
bilinu og því Ijóst
að nú fer hver að
verða síðastur.
12 prósenta fækkun
í rjúpnastofninum
Rjúpnaveiðitímabilinu lýkur 30.
nóvember næstkomandi og það
er því ekki mikill tími eftir fyrir
áhugasama veiðimenn. Sérstaklega
ekki í ljósi þess að veiðar eru ekki
heimilaðar á mánudögum, þriðju-
dögum og miðvikudögum. Áki
Ármann Jónsson, forstöðumaður
veiðistjórnunarsviðs, segist ekki
vera kominn með tölur um veiði
það sem af er tímabilinu en segir að
veiðin gangi prýðilega. „Það er mjög
erfitt að segja til um það hvað veitt
verður í ár. Það kæmi mér á óvart ef
veiðin færi yfir veiðina í fyrra en þá
voru veiddar 76 þúsund rjúpur. Við
höfum heyrt að veiðimenn sýni hóf-
semi og séu mjög meðvitaðir. Það
sást líka í fyrra hve vel þeir brugð-
ust við.“
Áki segir að í fyrra hafi verið
stefnt á að veiddar yrðu í kringum
70 þúsund rjúpur. „Það hefði hins
vegar ekki skipt máli hvort fjöldinn
hefði verið 65 eða 75 þúsund. Við
vildum bara ná veiðinni niður um
helming og það hefur tekist. Því
miður endurspegluðu talningar á
stofninum það ekki en það er ekki
vitað af hverju það var. Það hefði
átt að vera 50-80 prósenta fjölgun á
stofninum í fyrra en það var 12 pró-
senta fækkun. Veiðin hefði þurft að
vera 400 þúsund fuglar til að valda
12 prósenta fækkun þannig að of
mikil veiði skýrir ekki þessa fækk-
un. Mesta veiðin hingað til var 166
þúsund rjúpur en samt sem áður
hefði átt að vera 30-50 prósenta fjölg-
un í stofninum. Það hefur eitthvað
komið fyrir í stofninum en við vit-
um ekki hvað það er.“