blaðið - 10.11.2006, Side 42
PIPAR . SlA
ot
íþrótti
ithrottir@bladid.net
Hedman til Chelsea
Chelsea hefur lengið hinn 33 ára
gamla sænska markvörð, Magnus Hedman, til
reynslu hjá félaginu. Hedman hefur ekki leikið
síðan vorið 2005 með Glasgow Celtic en hefur
ákveðið að taka hanskana af hillunni.
Hinn sautján ára gamli
Freddy Adu Adu hefur
leikið þrjú tímabil med
D.C. United i bandarisku
atvinnumannadeildinni.
Olafur ánægður
með nýja samninginn
við Ciudad Real:
42 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006
"H'i
blaöiö
nya snyrtivorumar
jja fljótirkari árangur
ru þaó fullkomnasta
ludýraumönnun á
eru verði.
vörumar eru fram-
lar án natríum klóríðs
er ekki einungis
ilegt fyrir þig heldur
gæludýrið þitt.
GKG
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar verður haldinn
laugardaginn 25. nóvember n.k. í Smáranum, Kópavogi.
Smárinn er félagsaðstaða Breiðabliks í Dalsmára 5 í Kópavogi.
Fundurinn hefst klukkan 14:00.
Dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum GKG:
1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
2. Fundargerð siðasta aðalfundar lesin.
3. Skýrsla stjórnar um störf á liðnu starfsári.
4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.
5. Tillaga um árgjöld og afgreiðsla fjárhagsáætlunar næsta árs.
6. Lagabreytingar.
7. Kosning formanns, stjórnar og varamanna í stjórn.
8. Kosning tveggja endurskoðenda.
9. Önnur mál.
Atkvæðisrétt hafa fullgildir félagar.
Fullgildir félagar teljast skuldlausir félagar 18 ára og eldri.
Félagsmenn GKG eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.
Stjórn GKG
ER AÐ JAFNA SIG EFTIR AXLARMEIÐSL
ENGAR AULAHEIMSMEISTARAKEPPNIR í AUGSÝN
„Ég reikna með að klára ferilinn
úti. Spila með Ciudad í þessi þrjú
ár og fara svo að gera eitthvað allt
annað,” segir Ólafur Stefánsson
handknattleiksmaður spurður um
hvort hann hafi ákveðið að klára
feril sinn hjá spænska úrvalsdeildar-
liðinu. Hann skrifaði undir þriggja
ára samning við félagið í fyrradag.
„Mér og fjölskyldunni líður vel hér
í Ciudad og það var alltaf formsatriði
fyrir mig að undirrita þennan samn-
ing við liðið. Það eru sömu gæði á
þessum samningi og voru, sem ég er
mjög ánægður með. Ciudad er félag
sem vill gera vel við sína menn og
þeir treysta mér til að spila vel fyrir
liðið í þrjú ár til viðbótar,” segir Ól-
afur um samninginn og bætir við
að hann yrði mjög ánægður nái
hann að klára næstu þrjú ár í bolt-
anum svo vel sé.
KARATE
Ólafur hefur átt við axlarmeiðsl
að stríða frá því handboltatímabilið
byrjaði á Spáni og er rétt byrjaður að
spila á ný. Hann segist ekki hafa náð
aftur sínum besta leik. Samt sem
áður eru það gleðitíðindi fyrir
íslenska landsliðið að Ólafur
sé farinn að leika aftur, en
menn höfðu áhyggjur af því
að Ólafur myndi jafnvel missa
af Heimsmeistarakeppninni í
Þýskalandi í byrjun næsta árs.
Aðspurður um hvort hann
hygðist leika með landsliðinu
sagðist hann reikna með því,
enda spennandi keppnir
framundan. „Svo lengi
sem ég verð ekki
dragbíturálands-
liðinu ætla ég að
halda áfram að
gefa kost á mér
þar. Það eru engar aulaheimsmeist-
arakeppnir í augsýn. Þetta eru allt
flottar og spennandi keppnir fram-
undan sem verður gaman að taka
þátt í,” segir Ólafur að lokum.
Ólafur Stefánsson
Ólafur er ánægður með
ákvöröun sína og fjöl-
skyldunnar að klára
handboltaferillinn með
Ciudad Real. Ólafur
hyggst gefa kost á sér
í landsliðið svo lengi
sem hann verður
ekki dragbítur á
liðinu.
ISLANDSMEISTARAMOTIÐ í
KUMITE
ÍÞRÖTTAHÚSINU STRANDGÖTU
Laugardaginn 11. nóvember ki. 11
Komið og sjáið
bestu karatemenn landsins
berjast um íslandsmeistaratitilinn!
Aðgangur ókeypðs
Ungstirnið Freddy Adu til Manchester Utd.:
Má fara til Evrópu
næsta sumar
Ganverski Bandaríkjamaður-
inn Freddy Adu er á leið til Manc-
hester United seinna í mánuð-
inum þar sem hann mun dvelja í
tvær vikur við æfingar. Adu varð
yngsti atvinnuíþróttamaðurinn í
sögu Bandaríkjanna þegar hann
skrifaði undir samning við
D.C. United í Washington að-
eins fjórtan ára gamall. Þótt
Adu sé nú aðeins sautján
ára gamall hafa stórlið í
Evrópu fylgst grannt með
leikmanninum í nokkur ár,
þar á meðal Manchester United
og Inter Milan.
Adu er skuldbundinn banda-
rísku atvinnumannadeildinni
fram i júní á næsta ári þegar hann
—nærátjánáraaldriog
hefur lýst því yfir
í bandarískum
fjölmiðlum að
undanförnu
að hann hafi
fullan hug á því
að komast að
hjá stórliði
Evrópu
allra
fyrst.
«
4