blaðið - 10.11.2006, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006
blaðió
, >w
smáskífur af plötunni, Tomoko og Ski
Jumper, sem eru mikið spiluð um þessar
mundir í Englandi. Hafdís hefur einnig
gert undursamlega útgáfu af poppslagara
Velvet Underground, Who Loves The Sun,
sem gagnrýnendur halda vart vatni yfir.
Hafdís segir í viðtali við Blaðið að hún
hafi ekki búist við þeirri velgengni sem
hún fagnar nú og að hún hafi haft í mörgu
að snúast við kynningu plötunnar. „Mað-
ur þorir ekki að vona að hlutirnir gangi
svona vel,” segir hún. Hafdís segist hafa
breyst mikið frá ungdómsárum sínum
með GusGus. „Ég er löngu búin að koma
upp um mig að ég er ekki svöl,” segir hún
og bætir við að hún sé einstaklega væm-
in og elski bleikt, glimmer, sæta jafi
stráka og súkkulaði.
Fyrsta sólóplata Hafdísar Huldar, Dirty
Paper Cup, er komin út á íslandi á vegum
MVine/Red Grape og 12 tóna. Hafdís
Huld kom mjög ung fram á sjónarsvið-
ið þegar hún söng með GusGus og vakti
gríðarlega athygli. Hún sagði skilið við
fjöllistahópinn og eftir að hafa hitt um-
boðsmann Sigur Rósar, John Best, fluttist
hún til London til að reyna frekar fyrir
sér í tónlist.
Vinnan við Dirty Paper Cup hófst fljótt
eftir að komið var til London og segir Haf-
dís að hún hafi tekið út mikinn þroska
þau 5 ár sem platan hefur verið í vinnslu.
,1 sumum lögunum er greinilegt að ég er
enn krakki,” segir hún.
Platan hefur slegið í gegn og fengið
góða dóma en tvö lög hafa komið út sem
Kjólar í vetur
?Fallegir, litríkir, hlýir og þægilegir
kjólar henta vel fyrir vetrarveðrið;
einlitir eða mynstraðir við breitt belti
og stígvél fyrir snjóinn eða við legg-
ings og hælaskó þegar betur viðrar.
Klúbbur
,
i: 1 1 |
Kvöldvaka í Iðu
í dag, 10. nóvemberi milli kl. 18.00 og 19.00
Stuðningsfólki Samfylkingarinnar og öðrum bókaormum er
boðiðtil kvöldvöku í Iðu við Lækjargötu í dag. Þargefsttækifæri
til að hlýða á upplestur úr nýútkomnum bókum, hitta mann
og annan og spjalla um stöðu mála á síðustu metrum
prófkjörsbaráttunnar.
Oddgeir Eysteinsson les ú r Konungsbók Arnaldar Indriðasonar,
Jón Karl Helgason les úr þýðingu sinni, Brestir í Brooklyn, eftir
Paul Austerog hin óviðjafnanlega Guðrún Helgadóttirflytur
okkur kafla úr nýjustu bók sinni, Öðruvísi sögu.
SteinunnValdís 4«
Orðlaus mælir með...
#4
þúsundkallínum
Þremuráeinum
Indí-pönk-rokk-
hljómsveitin The
Take spilar í Kaffi
Hljómalind í kvöld klukkan
átta ásamt tveimur öðrum.
IVIiðaverðið er ekki nema átta
hundruð. Aldrei að vita nema
hljómsveitirnar slái í gegni.
Kvikmyndinni
Börn
Sjaldan hefur
íslensk mynd náð
áhorfandanum
eins vel og Börn.
Fljótt gleymist að myndin er
svarthvít, en leikstjórinn Ragn-
ár Bragason fetar þar í fótspor
Stevens Spielbergs sem valdi
svarthvitu leiðina í átakamynd-
inni Schindler’s list.
HAFSTEINN ÞÓR GUÐJÓNSS0N
1. Hvað heitlr höfuðborg Belgíu?
Ég ólst upp í Bandaríkjunum og við lærðum
svo lítið um Evrópu. Held samt að það sé
Brussel.
2. Hver skrifaði Heimsljós?
Ég hef ekki hugmynd. Islensk bók?
3. Hvers konar dýr er Guffi í Andrés
Önd?
Æ, er hann ekki bara einhver freakish sam-
suða frá Disney.
4. Hvað heitir Sauðárkrókur á ensku?
Fyrir mér hljómar þetta bara eins og
crocodile.
ALEXANDRA ÓSK JÓNSDÓTTIR
1. Hvað heitir höfuðborg Belgíu?
Ég veit það ekki.
2. Hver skrifaði Heimsljós?
Ég veit það ekki.
3. Hvers konar dýr er Guffi i Andrés
Önd?
Æ, ég veit það ekki.
4. Hvað heitir Sauðárkrókur á ensku?
Veit það ekki heldur.
5. Hvenærvar heimsstyrjöldin síðari?
Æ, veit það ekki heldur.
EYJÓLFUR FANNAR JAKOBSSON
1. Hvað heitir höfuðborg Beigiu?
Brussel.
2. Hver skrifaði Heimsljós?
Arnaldur Indriða.
3. Hvers konar dýr er
Guffi í Andrés Önd?
Hundur.
4. Hvað heitir Sauðárkrókur á ensku?
Southkroke.
5. Hvenær var heimsstyrjöldin siðari?
1939-1945.
GUÐMUNDUR HAFLIÐASON
1. Hvað heitir höfuðborg Belgiu?
Góð spurning. Ég segi pass.
2. Hver skrifaði Heimsljós?
Pass.
3. Hvers konar dýr er
Guffi í Andrés Önd?
Hvers konar dýr, ég myndi likja
honum við sverðkött.
4. Hvað heitir Sauðárkrókur á ensku?
Veit það ekki.
5. Hvenær var heimsstyrjöldin siðari?
Mig minnir að hún hafi hafist 1941 og
endað 1955.
SILVf A ÓLAFSDÓTTIR
1. Hvað heitir höfuðborg Belgiu?
Ég hef ekki hugmynd.
2. Hver skrifaði Heimsljós?
Ég veit það ekki.
3. Hvers konar dýrer
Guffi i Andrés Önd?
Hann er hundur.
4. Hvað heitir Sauðárkrókur á ensku?
Bara Sauðárkrókur
5. Hvenær var heimsstyrjöldin síðari?
Æ, ég man það ckki. Ætli hún hafi ekki
byrjað bara 1882.
Sfr61-6E6fS JnwJegnes'tr Jnpunn’E
sseuxeg jppnBH'Z iassnjg'1 :joas