blaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 48
Jeppadekkin ffrá
alla miðvikudaga
Auglýslngasímlnn er
510 3744
Fjallasport
®4x4 specialist"
Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444
38x15,5R15
38" MTZ dekkin komin aftur
Hinn bráðsnjalli Birgir Hilm-
arsson, söngvari Ampop, Ijær
^fjórum lögum rödd
L sína á nýrri plötu
! Stafræns Hákonar.
Platan hefur hlotið
nafnið Gummi og
kemur út í Bretlandi
og í Japan í vetur. Talað er um
að Stafrænn Hákon taki nýja
stefnu á plötunni sem inniheldur
mikinn söng, ólíkt hans fyrri
verkum.
blaðið
Preston, söngvari bresku sveitar-
innarThe Ordinary Boys, segir
daga vefsíðunnar Myspace.com
talda. Söngvarinn segir alvöru
tónlistaraðdáendur ekki hanga
á síðunni lengur vegna þess að
hljómsveitir eins og hans
nota hana til að selja
plötur.
„Myspace var mikilvæg
fyrir eina hljómsveit,
Arctic Monkeys," sagði
Preston í samtali við
tónlistartímaritið
NME. „Núna er
vefsíðan notuð
af útgáfufyrir-
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006
The Bravery snýr aftur
Bandaríska diskó-rokksveitin The Bravery heldur í tónleikaferð um
Bandaríkin í nóvember. Sveitin hefur ekki spilað á tónleik-
um í tæpt hálft ár en búist er við að lög af óútkominni
breiðskífu hennar fái að hljóma. Næsta plata sveitarinn-
ar, The Sun And The Moon, kemur út í byrjun næsta árs.
“Líf mitt væri svo litríkt ef
ég ætti viö drykkjuvanda-
mál aö stríða.”
Morrissey
Umfjöllun um Airwaves-hátíðina
og hljómsveitina Jakobínurínu
birtist í nýjasta hefti
breska tónlistar-
tímaritsins NME.
Blaðamaður NME
fer fögrum orðum
um hátíðina og
talar um bestu hátíð
sem tímaritið hafi heimsótt í
aldaraðir. Öllu veglegri er um-
fjöllunin um Jakobínurínu, en
þeim er hampað sem miklum
rokkstjörnum. Talað er um að
sveitin hafi hringt í umboðs-
mann og heimtað risastóra te-
kílaflösku aðeins mínútu eftir að
hann lenti á Reykjavíkurflugvelli.
Þá er talað um að mjög stór
og mikilvægur útgefandi hafi
haft samband við þá í gegnum
vefsíðuna Myspace og spurt
hvort þeir hafi skrifað undir
útgáfusamning hjá einhverjum.
Svar Jakobínurínu var eitthvað
á þennan veg: „Fuck off. We’re
with Rough Trade.“ En eins og
fram hefur komið skrifaði Jakob-
ínarína undir útgáfusamning við
Rough Trade á árinu.
Sveitin kom
id
©
Lítið hefur borið á hljómsveftinni
Foreign Monkeys sem vann
Músíktilraunir í ár. Sveitin kom
síðast fram á lceland
Airwaves-hátíð-
inni í ár, en góður
rómur var gerður
að tónleikum þeirra
þar. Heyrst hefur að
breiðskífa sé á næsta leiti hjá
drengjunum pg hafa þeir talað
við Magnús Öder um að taka
upp plötuna. Magnús þessi er
með efnilegri upptökustjórum
landsins þessa dagana en hann
tók meðal annars upp frumburð
Lay Low, Please Don’t Hate Me,
og hefur hlotið mikið lof fyrir.
Mikill metnaður ku vera í sveit-
inni að gefa út góða plötu og
hugmyndir eru uppi um að leita
út fyrir landsteinana að hljóð-
veri til að taka gripinn upp.
tækjum. í dag þarf maður að spila
í plötubúðum, gefa áritaða gítara
og setja upp Myspace-síðu. My-
space er dauð, búið spil.“
Preston hélt áfram og gagnrýndi
síðuna fyrir að vera í eign fjöl-
miðlarisans Ruperts Murdochs.
„Hún er í eigu Ruberts Murdochs,
fjandinn hafi það! Myspace er
gott dæmi um eitthvað sem virð-
ist vera meðal almúgans en er
í raun hluti af fjölmiðlarisa.
Hvers konar manneskja
hangir þarna allan dag-
inn? ég á 12.400 vini
þarna en hef ekki hitt
neinn þeirra.”
Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar
virtist ósáttur við umfjöllun
gagnrýnanda Blaðsins um
plötu stna, Annan
dag. í tölvupósti
sem hann sendi
til Blaðsins byrjar
Friðrik reyndar á
því að þakka fyrir
skrifin en furðar sig svo
á því að ungur maður, sem er í
FÍH eins og hann, kenni hann
við Idolið. Að lokum segist Frið-
rik vona að blaðamaður fái að
kynnast því einn daginn að lifa
eingöngu á tónlist. Friðrik virðist
fara mannavillt með bréfinu en
Atli Fannar Bjarkason, blaða-
maðurinn sem skrifaði dóminn,
kannast ekkert við að stunda
nám við FÍH. Þá hefur hann lítið
haft sig í frammi við að reyna
að lifa á tónlistarflutningi einum
saman þrátt fyrir að hafa stigið
nokkrum sinnum á svið
síðustu ár.
Fyrri hæðum náð
Hljómsveitin Deftones hefur verið
í uppáhaldi hjá mér frá þvi ég heyrði
fyrstu plötu hennar, Adrenaline. Það
var ekki fyrr en árið 2003, þegar þeir
gáfu út plötu samnefnda sveitinni,
sem ég missti hálfpartinn trúna á
þeim. Platan var alls ekki nógu sann-
færandi og ég lét mér nægja að hlusta
á fyrri verk. Með Saturday Night
Wrist hefur Deftones tekist að sigra
hjarta mitt aftur og rúmlega það.
Saturday Night Wrist er ótrúlega
heilsteypt plata og nær að skapa and-
rúmsloft fyllt drunga og myrkri út í
gegn. Blessunarlega minnir stíllinn á
þriðju plötu þeirra, White Pony - sem
lesendur Blaðsins kusu bestu plötu
sveitarinnar í október. Á henni, líkt
og á Saturday Night Wrist, fær hart
rokk að njóta sín samhliða poppi
og raftónlist. Það eru ekki margar
hljómsveitir sem komast upp með að
blanda þessum stefnum saman en
Deftones tekst það frábærlega vel.
Aðdáendur sveitarinnar hafa marg-
ir beðið eftir að sveitin næði fyrri
hæðum og með tilkomu Saturday
Night Wrist er takmarkinu náð. Lög
eins og Hole in the Earth, Beware,
Cherry Waves, Mein, Xerces eru með
Deftones
Saturday Night Wrist
White Pony-
stíllinn kominn
aftur
Höröu lögin
missa marks
þeim allra bestu sem sveitin hefur
samið og gerði gæsahúðin oft vart
við sig hjá undirrituðum við hlustun-
ina. Eina bakslagið er að allra hörð-
ustu lögin missa örlítið marks, líkt
og staðreyndin var með lagið Elite á
White Pony.
Saturday Night Wrist er gott dæmi
um að ef rétt er farið með hart rokk,
popp og raftónlist verður úr bragð-
góð kaka með þykku kremi sem veld-
ur ekki vonbrigðum. Sveitinni hefur
tekist að ná fyrri hæðum og er kom-
in aftur með eina bestu rokkplötu
ársins.
atli@bladid.net
Henta ungir og óreyndir upptökumenn idolplötunum?
Nýtt blóð í bransanum
Idolævintýrið virðist engan enda
ætla að taka þrátt fyrir að sjón-
varpsþátturinn hafi runnið sitt
skeið. Tvær idolplötur komu ný-
lega út, frá Hildi Völu og Bríeti
Sunnu og sú þriðja, frá Helga Rafni,
kemur út í nóvember.
Idolplöturnar sem komið hafa
út á síðustu árum hafa flestar þótt
keimlíkar að uppbyggingu. Þáttur id-
olstjörnunnar er oftast takmarkaður
við sönginn og kemur hún sjaldnast
nálægt lagasmíðum og hljóðfæraleik.
Reyndir hljóðfæraleikarar sjá oftast
um undirspil og reyndustu upptöku-
menn bransans sitja iðulega
við takkana.
Tími til að breyta?
En er kominn tími til
aðbreytatil.eðaeruþess- • r
ar svokölluðu idolstjörn-
ur að syngja sitt síðasta?
Nútímaupptökutækni
hefur komið af stað bylt-
ingu þar sem nánast hver
sem er getur tekið sig
til og komið sér upp
topp-upptökubún-
aði fyrir lítinn pen- í
ing miðað við hvað
tíðkaðist á árum
áður. Það hefur
hleypt nýju blóði í bransann þar sem
ungir og efnilegir upptökumenn hafa
komið sér á framfæri.
Nýútkomin breiðskífa tónlistar-
konunnar Lay Low var tekin upp að
mestu leyti í svefnherbergi í miðbæ
Reykjavíkur. Platan hefur selst vel og
setið á meðal efstu platna á tónlistan-
um frá því hún kom út. Plötur Hildar
Völu og Bríetar Sunnu hafa aldrei
komist upp fyrir hana þrátt fyrir góða
markaðssetningu.
Eiður Arnarsson, útgáfustjóri Senu,
segir upptökuferli plötu Lay Low hafa
hentað tónlist plötunnar vel en eigi
ekki endilega við aðrar plötur. „Allar
þessar ágætu idolstjörnur og plöt-
ur þeirra eru í beinu samhengi
við það sem viðkomandi flytj-
endur vildu gera,“ segir Eiður.
Mikilvæg reynsla
Reynsluboltar eins og Þor-
valdur Bjarni, Jón Ólafsson og
Þórir Úlfarsson eru
meðal þeirra sem
tekið hafa að
sér að stýra
upptökum á
idolplötum
en Eiður
segir meg-
inástæð-
una fyrir því að þeir séu valdir vera
gríðarleg reynsla þeirra, sem kemur
sér vel þegar stjórna á upptökum
óreyndra listamanna í hljóðveri.
Magnús Öder tók upp nýútkomna
plötu Lay Low að stórum hluta í svefn-
herberginu heima hjá sér. Hann segir
ekkert skrítið að reyndir menn séu
valdir við upptökur á idolplötunum.
„Þeir eru klárir og snöggir að fara inn
í hljóðver og klára verkið vel,“ segir
Magnús.
Magnús segir að það væri skemmti-
legt að sjá idolstjörnurnar velja
óhefðbundnari leiðir við upptökur
á plötunum sinum en bætir við að
reynsla upptökumanns skipti miklu
máli þegar unnið sé með óreyndum
söngvurum. „Upptökumaðurinn er
náttúrlega að stýra vinnuferlinu ro-
salega. Það þarf að leiðbeina óreynd-
um söngvurum í gegnum ferlið. Þess
vegna er nauðsynlegt að hafa reyndan
mann í verkinu."
Sjónvarpsþátturinn X-Factor hefst
í nóvember. Eiður segir óákveðið
hvort Sena sjái um útgáfu sigurveg-
ara X-Factor, en býst ekki við að form
slíkra platna verði brotið upp verði að
þeirri útgáfu.
atli@bladid.net