blaðið - 10.11.2006, Síða 50
50 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006
blaöið
Hafdís Huld byrjaði að syngja með GusGus þeg-
ar hún var aðeins 15 ára gömul og ferðaðist
með þeim um allan heim í nokkur ár. Eftir að
hafa sagt skilið við hljómsveitina lék hún í kvik-
myndum hér á landi, meðal annars Villiljósi og
íslenska draumnum. Þá tók hún saman við hljóm-
sveitina FC Kahuna og gaf út með henni tvær
smáskífur, Hayling og Machine Says Yes. Nýjasta
plata Hafdísar Huldar, Dirty Paper Cup er nú kom-
in 1 verslanir og hefur fengið mjög góða dóma.
B latan fór á meira flug en
M B U ég hafði þorað að búast
K við,” segir Hafdís Huld
um velgengnina. Hafdís er
W sögð hafa sérstæða og fagra
J rödd og gagnrýnendur úti
segja hana syngja eins og
sykurpúðaútgáfu af Björk. Platan er sögð ein-
föld, sykruð og velheppnuð poppplata með
kaldhæðnum og óræðum undirtóni, lögin sér-
stæð blanda myrkurs og ljóss og er stíl hennar
líkt við Velvet Underground. Hafdís tekur ein-
mitt lag Lou Reed, Who Loves the Sun, sem
Velvet Underground gerði svo eftirminnilega
skil og gagnrýnendur halda ekki vatni yfir
flutningi hennar á laginu. Textar plötunnar
eru sagðir sætir en ögn djöfullegir og óræðir
,1 hope you Choke on your plastic halo,” syng-
ur hún meðal annars malandi röddu.
„Ég þorði ekki einu sinni að vona að hlutirnir
gætu gengið svona vel,“ segir hún og nefnir að
hún hafi til að mynda ætlað að koma til íslands
á Iceland Airwaves en hafi hreinlega ekki getað
það vegna anna. „Ég hlakka til að koma með
hljómsveit mína til íslands að spila og sýna
þeim land og þjóð. Ég ætla að sýna þeim Gull-
foss og Geysi og svona,“ bætir hún við og hlær.
Vildi stúdíótíma í 10 ára afmælisgjöf
,Ég hef verið alveg staðráðin í því að verða
söngkona eða leikkona síðan ég var fimm ára
gömul,” segir Hafdís. „Mamma sagði mér að
ég hafi verið það ung þegar ég hafi tilkynnt
þeim að þegar ég væri orðin stór vildi ég verða
söngkona og leikkona. Þau reyndu víst að
segja mér að það langaði voðalega marga til
þess að verða söngkona eða leikkona en það
væri líka gott að vinna venjulega vinnu. Þá leit
ég víst fast á þau og sagði: Hvað á ég þá að gera
við líf mitt?
Eftir það ákváðu þau að styðja við bakið á
mér því þau sáu að þarna væri ákveðin kona á
ferð. Ég var að semja við þau þegar ég var tíu
ára um að gefa mér stúdíótíma í afmælisgjöf
svo ég gæti tekið upp lag. Ég var einbeitt og
sótti tíma í tónlistarskóla, stundaði æskulýðs-
starf og fór í leiklistartíma.”
Veðurteppt í Mexíkó að læra
undir stærðfræðipróf
,Ég var í grunnskóla þegar ég hitti strákana
í GusGus fyrst. Ég rakst á þá þegar ég var að
ganga heim eftir kórtónleika úr Kópavogs-
kirkju. Þar var verið að taka myndir af þeim
og ég stoppaði og spurði hvað þeir væru að
gera. Þeir sögðu mér að það væri verið að taka
myndir og þá sagði ég: Af hverju takið þið
ekki myndir af mér, ha?”
Hafdís segist hafa byrjað að leika í tónlistar-
myndböndum en síðan hafi það undið upp á
sig. „Þeir komust að því að ég gæti sungið og
leyfðu mér að syngja aðeins með og með því
hófst GusGus-ævintýrið.
Ég hélt auðvitað áfram í skólanum og fór
fyrstu tvö árin í Menntaskólann í Kópavogi en
fór meðfram náminu í tónleikaferðalög með
hljómsveitinni.“ Hafdís segir að það hafi tekið
á og þegar hún var orðin 18 ára hafi hún þurft
að taka ákvörðun og velja á milli framhalds-
skólanámsins og tónlistarinnar.
„Þá var ég 18 ára og átti að vera í jólaprófum
í MK en var veðurteppt í Mexíkó þar sem við
vorum að spila. Þá fyrst fann ég hvað þetta
var fáránlegt, að ég væri að læra undir stærð-
fræðipróf lengst úti í Mexíkó.
Ég þurfti að velja og þarna
tók ég þá ákvörðun að ein-
beita mér að tónlistinni.“
Hafdísi finnst óralangt síð-
an hún var í GusGus.
„Þegar ég hugsa um tímabil
mitt með hljómsveitinni þá
hugsa ég um þetta sem tíma
sem ég lærði af. Það hafði
svona sína kosti og galla að byrja svona ung
en ég lærði mikið og að einhverju leyti gerði
þetta mig að þeirri manneskju sem ég er í
dag. Auðvitað getur maður velt sér upp úr
því ef eitthvað fer illa en það hefst bara ekk-
ert upp úr því.“
Hún segist hafa verið í vafa með hvert hún
ætti að stefna eftir öll lætin með GusGus.
„Ég gekk í gegnum tímabil þar sem ég hugs-
aði með mér að ég ætti kannski að gera eitt-
hvað annað,“ segir Hafdís. „En það gekk yfir
og ég held að ég yrði aldrei fullkomlega í rónni
ef ég væri ekki að vinna í tónlist.“
Lærði að sætta sig
við flökkulíf
Hafdís segist vera ánægð
með þá ákvörðun að hætta
framhaldsskólanámi og ein-
beita sér að tónlistinni því sú
ákvörðun hafi leitt hana á þá
braut sem hún er í dag. „Það
kom að því að mig langaði að
mennta mig meira og nýta þá
reynslu sem ég hafði safnað mér í tónlist. Ég
ákvað að fara í stöðupróf í London Center of
Contemporary Music því mig langaði að fara í
tónlistarháskóla. Þeir taka inn tólf nemendur
á ári og ég komst inn og hef nú lokið námi í tón-
smíðum og upptökustjórn." Hafdís segist hafa
verið búsett í London síðastliðin sex ár. „Ann-
ars er ég rosalega lítið í London núna og dæmi-
gerður dagur hjá mér er þannig að ég vakna á
hótelherbergi eftir að hafa spilað kvöldið áður,
sest upp í bíl með hljómsveitinni minni og
keyri á næsta tónleikastað, lít á kaffihús, fer í
hljóðprufu, rölti aðeins um, tékka okkur inn á
nýtt hótel og spila svo um kvöldið.”
Hafdís segir þó flökkulífsstílinn henta sér
vel. „Ég þrífst á því að spila og semja tónlist og
ég lærði snemma að sætta mig við að því fylgir
flökkulíf. Ég fæ að spila tónlist og það er nóg
til að ég sé þakklát fyrir mitt hlutskipti. Ég fæ
að sjá mikið af nýjum og skemmtilegum stöð-
um og tónlistin gefur mér það mikið að ég er
hamingjusöm.“
Reyndi að vera kúl en gafst upp á því
Ef Hafdís er beðin um að lýsa sjálfri sér verður
hún vandræðaleg. „Er ekki betra að láta aðra
um að lýsa sér?“ spyr hún. Hún segist annars
hafa þá galla að vera óþolinmóð og frekar
viðkvæm en almennt sé hún jákvæð og opin
manneskja. „Ég er líka svaka væmin,“ bætir
hún við. „Ég reyndi að vera kúl í svolítinn
tíma þegar ég var í GusGus og var hörkugella
en það gekk ekki lengi og ég ákvað á endanum
að viðurkenna ást mína á bleiku glimmeri og
svona. Ég sem lög um hvað það er gaman að
vera til, hvað strákar eru sætir og glimmer er
fallegt. Og mér finnst það allt í lagi því ég er
löngu búin að koma upp um mig að ég er ekk-
ert svakalega kúl.“
dista@bladid.net
DIRTY PAPER CUP Fékk góða dóma í breska dagblaðinu The Guardian fyrr í mánuðinum eða fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
hafdls huld U^ty popcr eup f
„Ég gekk í gegnum tímabil þar sem ég hugsaði með mér að ég ætti
kannski aó gera eitthvað annað. En það gekk yfir og ég held að ég
yrói aldrei fullkomlega í rónni ef ég væri ekki að vinna í tónlist."