blaðið - 01.12.2006, Side 3

blaðið - 01.12.2006, Side 3
Jodi Picoult hefur á síðustu árum slegið í gegn með hverri metsölubókinni á fætur annarri og er nú einn umtalaðasti rithöfundur í Bandaríkjunum. Bækur hennar sitja mánuðum saman á metsölulistum í Bandaríkjunum, Bretlandi, Norðurlöndum og víðar. Á ég aðgceta systur minnar? er falleg, hjartnæm, áleitin og heiðarleg saga. - Booklist Picoult hefur náð meistaralegum tökum - næstum yfirnáttúrlegum - á því að ijalla um áleitin málefni jafnframt því að skrifa ákaflega læsilega og spennandi sögu ... - Washington Post Stíll hennar er lipur og auðlesinn og Ingunn Ásdísardóttir slær ekki feilnótu í þýðingu sinni. - Valgerður Magnúsdóttir Hér er ekki vakin einföld spenna um spurningu eins og hver framdi glæp, heldur hvað sé glæpur. Djúpskyggn átakasaga. - Hörður Bergmann Anna er ekki veik, en hún gæti allt eins verið það. Aðeins þrettán ára að aldri hefur hún gengist undir ótal skurðaðgerðir, blóðtökur og sprautur svo að eldri systir hennar, Kate, geti tekist á við hvítblæði sem hefur herjað á hana frá barnæsku. Hún hefur aldrei sett spurningarmerki við þetta hlutverk sitt... þar til nú að hún tekur ákvörðun sem mun splundra íjölskyldu hennar og líklega verða systurinni sem hún elskar að ijörtjóni. Á ég að gceta systur minnar? er virkilega áhrifarík saga... Þýðingin er prýðisvel unnin ... Bók sem erfitt er að leggja frá sér eftir að lestur er einu sinni hafinn ... - Súsanna Svavarsdóttir, Fréttablaðið 26. nóv. Ein besta bók ársins í frábærri þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur. Ný bók eftir Flosa Ólafsson eru tíðindi fýrir þá sem taka sjálfa sig og aðra ekki of hátíðlega. Leikarinn og gagnrýnandinn rífur sig úr reiðgallanum sem hann hefur að mestu klæðst síðastliðin 20 ár og lætur gamminn geysa um sjálfskipaða listvitringa. kúltúrsnopp og heilagar kýr. Sem fyrr er honum ekkert heilagt, engum er hlíft og ekkert stenst eitrað háðið. Að þessu sinni nýtur höfundurinn aðstoðar tveggja gamalla félaga. Kjartan Ólafsson fyrrum alþingismaður og ritstjóri skrifar inngang að bókinni og Árni Elfar leggur til teikningar til frekari áherslu. Enn ein veislan frá Flosa Ólafssyni! SKRUDDA Eyjarslóð 9 -101 Reykjavík skrudda@skrudda.is www.skrudda.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.