blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 6
blaðið
FYRIRTÆKI & VERSLANIR
HEILVAKLAUSHIK t UMBÚVUM
pappír • gjafapokar • pakkaskraut • gjafabönd
greinar • borðar • öskjur • silkiblóm • slaufur
Melabraut 19 - 220 Hafnarfirði • Sími 575 0200 • www.danco.is
DANCO
HEILDVERSLUN
Útsölustaðir:
Jens Kringlunni • Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 ■ Helgi Sigurðsson úrsmiður
Skólavörðustig 3 ■ Georg Hannah úrsmiður Keflávfk ■ Guðmundur B. Hannah
úrsmiður Akranesi ■ Úra- og skartgripaverslun Karls R. Guðmundssonar Selfossi
Leonard Kringlunni________________________________________________________________
by SEKONDA
SEKSY kvenmannsúr meó Swarovski kristölium og skífu úr ekta
grænni perlumóðurskel. Einfalt að minnka eða stækka að vild.
6 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
INDLAND H
Ákært vegna hryðjuverka í Mumbai
UTAN ÚR HEIMI
Indverska lögreglan hefur ákært þrjátíu manns vegna hryðjuverka-
árásanna á samgöngukerfi borgarinnar Mumbai síðastliðinn júlí. Hátt
í tvö hundruð létust í hryðjuverkaárásinni. Að sögn lögreglunnar er
höfuðpaurinn pakistanskur maður að nafni Azam Cheema en ekki
hefur tekist að handsama hann þráttfyrir ákæruna.
Umdeild jaröaviðskipti Ölfuss og Jóns Ólafssonar:
Hrædd um að Jón
framselji lóðina
Mikil reiði ■ Jörðin seld á qiafverði ■ Bæiarstiórn boðaði íbúalvðræði
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Mjög mikil reiði er meðal íbúa
vegna sölu lóðarinnar. Því var lofað
fyrir síðustu kosningar að landið
yrði ekki selt. Til að koma málinu
i gegn var kaupsamningur gerður
áður en málið var kynnt fyrir bæj-
arstjórn,“ segir Jóhann Daviðsson
lögreglumaður. Gerður var kaup-
samningur milli sveitarfélagsins ÖT
fuss og átöppunarverksmiðju Jóns
Ólafssonar, Icelandic Water Hold-
ing Ldt., IWH, 23. júní 2006. Viku
síðar var málið rætt í bæjarstjórn
og þá lagður fyrir afgreiddur kaup-
samningur. í samningnum kemur
fram að sveitarfélagið fær hundrað
milljónir fyrir jörðina en greiðsluna
þarf Jón ekki að inna af hendi fyrr
en fyrsta ágúst 2011. Kaupverðið er
vaxtalaust en verðtryggt. Jóhann
telur jörðina hafa verið selda á
gjafverði.
„Þar sem greiðslan er vaxtalaus í
þetta langan tíma þá reiknast kaup-
verðið á bilinu fimmtíu til sextíu
milljónir. Svona viðskiptahættir
þekkjast ekki annars staðar á
byggðu bóli,“ segir Jóhann.
ÖflugtÖlfus
Fyrir sveitarstjórnarkosning-
arnar síðustu kynnti meirihluti bæj-
arstjórnar Ölfuss, D-listi, hugtakið
íbúalýðræði. Þannig vildu frambjóð-
endur kalla íbúa sveitarfélagsins til
þátttöku í stefnumótun framtíðar
og boðuðu að haldnir yrðu reglu-
lega íbúafundir þar sem farið yrði
í hugmyndasmiðju bæjarbúa. Þegar
jörðin Hlíðarendi var seld var salan
hvorki borin undir bæjarstjórn né
BHvaða trygging er
verði ekki fram-
seld fyrirannars
konar iðnað?
Jóhann Davíðsson
lögreglumaður
Kaupsamningur
Sv«ur£H»fiOÖ(f«» Lt 4293W-7W*. Ibfrurríry. 1. Si *
►orUUIvJfc. Vr cílir oclM KlpnUi. lctUmc * B*( thi. kt ft-W ’ ■
1129.1 ju*avtf> 2lt. !»l Rtyli*va.. b*» tftir ncfnl LjvipjnJi. yv-rj nwr> Mi v. ni/IUljr
YFIRLÝSING D-LISTANS
FYRIR K0SNINGAR:
„Frambjóöendur munu kalla íbúana til þátt-
töku í stefnumótun um framtíð sveitarfé-
lagsins. D-listinn mun tileinka sér íbúalýð-
ræði. Við munum gera ítrustu kröfur þegar
við veitum starfsleyfi, og þar munu íbúar
Ölfuss og náttúruauðlindir okkar njóta alls
vafa, áður en ákvörðun er tekin."
íbúa. Bæjarstjórinn veitti
sjálfur framkvæmdaleyfi á
jörðinni í trássi við lög og
án þess að bera það undir
bæjarstjórn eða íbúa.
Leyfið veitti hann jafn-
framt áður en sala jarð-
arinnar var endanlega
samþykkt.
Brot af
heildinni
S a m -
kvæmtupp
lýsingum
frá Verk-
fræðistofu Suðurlands er jörðin
Hlíðarendi 1.544 hektarar að stærð
og nær hún töluvert langt upp á
heiðina. Jörðinni fylgja öll vatnsrétt-
indi og sveitarfélagið afsalar sér rétt-
indum af henni. Svæðið sem fellur
undir verksmiðjuna sjálfa og brunn-
svæði er því aðeins brot af heildar-
stærð jarðarinnar. Aðspurður telur
Jóhann að eðlilegt væri að sveitarfé-
lagið hefði ekki afsalað sér jörðinni
heldur aðeins leigt hana umræddu
fyrirtæki.
„Eðlilegra hefði verið að leiga jörð-
ina því þannig væri hagsmunum
sveitarfélagsins betur borgið. Hvaða
trygging er fyrir því að þarna
verði aðeins starfrækt vatnsverk-
smiðja og jörðin ekki framseld
fyrir annars konar iðnað?“
Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir alla þessa viku hefur
enginn talsmaður IWH,
átöppunarfyrirtækis Jóns Ól-
afssonar, viljað tjá sig um málið.
Bæjarstjóri Ölfuss, Ólafur Áki
Ragnarsson, er erlendis.
Bæjarfulltrúar og
starfsmenn skrif-
stofu sveitarfélags-
ins hafa ekki viljað
svara fyrir söluna.
Marius Sverrisson treður upp ásamt undirleikara helgarnar 25. og 26. nóv.,
1.og 2. des og 8.og 9.des. Alltaf Ijúfir píanótónar frá fimmtudegi til sunnudags
511 3350
Laugavcgur 53b • 101 Reykjavík
5 1 1 3350 • www.hereforcJ.is
u í'jd/i /imm tní(<u/c( til jun/inddí/u
Verð 5.500 á mann, aðeins 4.900 á fimmtudögum og sunnudögum f BOTÖBpBntcinÍr
Hereford nautasteikurnar eru rómaðar, þú velur stærð, steikingu og meðlæti. Magnað!