blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 32
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Fær Eggert að skrá West Ham
í íslendingabók?
„Þar sem afkvæmið er væntanlega óskilgetið og það leikur of mikill vafi á
ætterni þess og móðerni, þá held ég að því miður sé ekki hægt að skrá það."
Friðrik Skiilnson, stofnnmU Friðriks
Skúlasonar ehf. og ættfræðiáhugamaður
Eggert Magnússon lýsti því yfir á dögunum í viðtali við BBC að hann
hygðist flytja til London til að geta verið nær barninu sínu, West Ham Un-
ited. Friðrik er mikill áhugamaður um ættfræði (slendinga og rekur fyrir-
tæki hans ásamt (slenskri erfðagreiningu ættfræðivefinn (slendingabók.
32 FðSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
blaöiö
HEYRST HEFUR...
Bókaútgefendur reyta hár
sitt þessa dagana og senda
Óttari Martin Norðfjörð,
höfundi fyrsta bindis ævisögu
Hannesar Hólmsteins Gissur-
arsonar, Hannes - Nóttin er
blámamma,
kaldar
kveðjur.
Ástæðan er sú
að verk Óttars
sem í reynd
er ljósritaður
tvíblöðungur
hefur hreiðrað um sig í fyrsta
sæti yfir mest seldu ævisögur,
handbækur og fræðibækur í
Pennanum-Eymundsson og
Bókabúð Máls og menningar,
og er í öðru sæti yfir mest seldu
bækur í öllum flokkum, hárs-
breidd á eftir Konungsbók eftir
Arnald Indriðason. í blóðugu
bókastríðinu vilja margir útgef-
endur allt til vinna til að verma
þetta sæti en eins og gefur að
skilja færast allar ævisögur
sæti neðar. Fyrsta upplagið af
Hannesi er uppurið en von er
á fleiri eintökum innan tíðar.
Allur ágóði af sölunni rennur til
Mæðrastyrksnefndar.
Mikil umræða hefur verið
um aukna efnishyggju.
Húsgagnaverslanir sem selja
rándýr hönnunarhúsgögn
spretta upp eins og gorkúlur.
Sjónvarpsmenn og viðmæl-
endur þeirra
gubba á
gólfið þegar
þeir sjá ljótar
innréttingar.
Og nú er
svo komið
að Góði
hirðirinn er farinn að fúlsa við
húsgögnum og hlutum sem eru
í góðu ásigkomulagi. Kona ein
ætlaði að fara með persnesku
motturnar sínar í hirðinn til
að aðrir fengju notið þeirra.
Hirðirinn vildi ekki hirða mott-
urnar þar sem þær voru ekki í
réttu tískulitunum, svörtum og
hvítum, og enduðu motturnar
persnesku því í ruslatunnunni.
Bjarni Klemenz ætlar að athuga
spennuafstöður á himni „Hvort
laugardagskvöldið verður rafmagnaö
eða ekki veltur allt á Júpíter eða hvort
tungl eríspennuafstööu við Úranus
Helgin veltur á hnéskel
„Ég er með laskaða hnéskel
þannig að ég er að búa mig undir
rólega helgi og helgin mun þróast
með tilliti til hnémeiðsla,” segir
Bjarni Klemenz um áform sín fyrir
helgina sem senn er að ganga í garð.
Bjarni gaf út sína fyrstu bók núna
fyrir jólin sem heitir Fenrisúlfur
og kemur út hjá Nýhil. Bókin er
spennusaga og ástarsaga með goða-
fræðilegu og filmnoir-elementum
með tengingu í nútímann.
Sánabað á leyndum stað
Ofangreind hnémeiðsli urðu
þegar Bjarni var að aðstoða við
flutninga og hann segir að óbæri-
legur sársauki fylgi meiðslunum.
„Ætli ég verði ekki fastur inni i her-
berginu mínu í kvöld og ég ætla að
nota tímann til að lesa mér til um
Samúræja og kíkja aðeins í Byron.
Á meðan ætla ég að láta kúrbít
krauma á hellunni og laga linsu-
baunasúpu. Ég hef líka hug á því að
taka stefnuna á sánabað á leyndum
stað í borginni. Kannski mun ég
teyga eins og einn bjór á meðan á
öllu þessu stendur,“ segir Bjarni um
plön fyrir daginn í dag.
Spennuafstöður á himni
Bjarni segir að laugardagurinn
velti allur á umræddri hnéske,l ef
hún er í góðum gír ætlar hann að
gera atlögu að heimildarleitarbíltúr
um Sæbrautina. „Síðan ætla ég að
halda áfram lestri um samúræja. Ég
ætla að athuga hvaða spennuafstöður
liggja í loftinu og hvort kvöldið verði
rafmagnað eða ekki, það veltur allt á
Júpíter eða hvort tungl sé í spennuaf-
stöðu við Úranus. Ég hef líka hug á
að liggja á Netinu og googla sjálfan
mig í öllum föllum. Það væri líka in-
dælt að geta brugðið sér aftur í sána-
bað á laugardagskvöldið og eitthvað
út á lífið þar á eftir. Það er algerlega
óútreiknanlegt hvert það brölt leiðir
mig. “
Bjarni hefur enn ekki gert sér
ákveðnar hugmyndir um áform
sunnudagsins en Bond í bíó eða
pítsa verður þar einhvers staðar á
dagskránni. „Ég er allavega með
plön um að hugleiða og strauja
skyrtuna mína.”
SU DOKU talnaþraut
9 3 6 1 4 8 2 5 7
7 4 1 2 5 6 8 3 9
8 5 2 3 7 9 1 6 4
5 8 9 6 2 1 7 4 3
1 2 3 7 9 4 5 8 6
6 7 4 8 3 5 9 1 2
4 1 7 9 8 3 6 2 5
2 6 5 4 1 7 3 9 8
3 9 8 5 6 2 4 7 1
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers nlu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
3 1 4 9 6
7 1 9 8
4 2 7
7 8 3 2
9 3 6 4
6
7 3 6
1 6 4 5 9
9 7 1
eftir Jim Unger
® LaughingSlock Intemational Inc./dist. by United Media, 2004
Við getum ekki staðið hér í allan dag!
Skiltið hlýtur að vera bilað!
Á förnum vegi
Hvað eru margir
reykskynjarar
heima hjá þér?
Friðrik Benónýsson,
útgerðarmaður
„Það eru tveir reykskynjarar
heima hjá mér.“
Kolbeinn Kristinsson, nemi
„Það eru tveir og það er alveg
feykinóg."
Jón Kristófer Jónsson, nemi
„Einn, en þetta er lítil íbúð.“
Brynjar Arnarson, nemi
„Það eru þrír, þetta er þriggja
hæða hús og einn á hverri hæð.“
Bjarki Atlason, nemi
„Tveir reykskynjarar í tveggja
hæða húsi.“