blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 38

blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 38
FjallaS er um þa& hvernia veður- og náttúrufar munu breytast vegna hlýnunar jarðar oa áhrif þess á búsetuskilyrði á mismunandi svæðum. Minnkun fss í Norður Ishafinu mun valda mestum breytingum á byggða- og samgöngumynstur heimsins. Þeaar hefur opnast aðgengi að geysilegum olíuauðævum í Barentshafi og innan skamms mun hin stutta flulningaleið milli Kyrrahafsog Atlantshafs verða greiðfær risaskipum. Island mun komast i þjóðleið flutninga i heiminum og hefur það bæði jákvæð og neikvæð áhrif. Um 400 kort og myndir eru í bókinni. Brynjólfur Sveinsson biskup var maður stárbrotinna andstæðna. Hugur hans hneigðist til fræðaiðkana i háskólum. Þó hlýddi hann boði konungs um að vígjast til biskups að Skálholti þar sem hann gerðist framkvæmda- mikill og hafði varanleg áhrif á islenskt þjóðfélag og menningu. í bókinni eru ritgerðir um lögfræði og réttarsögu. Fjallað er um rétt Svia og Finna, Skota, Israelsmanna, Eaypta og Indverja. Þá er ritgerð um lögfræðiíeg ritverk Magnúsar Stephesens dómstjóra, hins merka lagamanns fyrri tiðar á landi hér. Að lokum er yfirlit um helstu efnisþætti samninga- og kröruréttar. Jón Oddsson Hjaltalin (1749-1835) var lengst af prestur í Saurbæ á Hvalfiarðar- strönd. Utgáfan sem hér birtist, á fjórum sögum frá hendi sr. Jóns, er úrval sagna- ritunar hans og varpar Ijósi á skáldsagna- gerð þessa timabils í islenskri bókmennta- sögu; engin þeirra hefur áður verið prentuð. Rannsóknir hafa aukist á undanförnum árum á tengslum milli umhverfis mannsins og heilbrigði hans. Þetta umhverfi er margslungið en i bókinni er einkum fjallað um það umhverfi sem maðurinn hefur skapað sjálfum sér, þ.e. félagslegt umhverfi hans, og áhrif þess á heilsu og neilbrigði. igBjk B*kffa sem W HASKOLAUTGAFAN www.haskolautgafan.hi.is 3 8 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006 blaðiö Hvst jól Nú fer að verða tímabært að dusta rykið af jólatónlistinni. Bing Crosby er ókrýndur konungur jólanna en plata hans White Christmas hefur selst I yfir 100 milljónum eintaka síðan hún kom út árið 1954. Því er ekki úr vegi að fjárfesta í henni fyrir jólin og komast í alvöruhátíðarskap. Söngkonan heimsfræga Denyce Graves er væntanleg í byrjun desember til að syngja með Sinfóníuhljómsveit Islands. Tilvalið er að byrja að hita upp fyrir tónleikana og setja plöturnar hennar á fóninn um helgina. menning Leiffs heldur tónleika Dramatík og lágstemmd Ijóð inhverjir kynnu að segja að nafnið Jón Leifs kæmi þeim sem það bæri ansi langt í heimi klassískrar tónlistar enda nafnið hlaðið menningarlegu auð - magni. Þetta nafn ber ungur barítón sem heldur sína fyrstu einsöngstónleika í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 3. desember klukkan 17. „Ég kalla mig alltaf Jón Leifs,“ segir söngvarinn og hlær. „Það vekur alltaf mikla forvitni og margir spyrja mig hvort ég sé skyldur tónskáldinu eina sanna. Því verð ég þó að svara neitandi. Ég sótti um í söngskóla í Austurríki fyrri nokkru en fékk ekkert svar fyrr en mörgum mánuðum síðar. Þá hafði kennarinn séð þetta nafn á umsókninni og þess vegna haft samband.“ Verdi í uppáhaldi Jón brautskráðist frá Söngskólanum í Reykja- vík vorið 2005 þar sem hann nam meðal annars hjá Bergþóri Pálssyni og Eiði Á. Gunnarssyni. Hann hefur sýslað við tónlistina meðfram öðru síðan og meðal annars sungið í kór íslensku óper- unnar. Hann söng einnig hlutverk herforingja í Rakaranum í Sevilla eftir Rossini og þjóns Mach- beths í samnefndri óperu eftir Verdi í íslensku óperunni. Jón er einnig félagi í Óperukór Reykja- víkur og hefur komið fram sem einsöngvari með kórnum, nú síðast í 9. sinfóníu Beethovens í Pétursborg. „Ég held ég verði að segja Verdi,“ segir Jón þegar hann er inntur eftir því hvaða tónskáld honum þyki skemmtilegast að syngja. „Mér finnst óperan ótrúlega heillandi í öllu sínu veldi. Sagan og tónlistin mynda óaðskiljanlega heild sem ekki er hægt annað en að heillast af. Draumahlutverkin eru vitaskuld fjölmörg en það er kannski ekki ástæða til að nefna eitt öðru fremur. Vonandi á ég þó eftir að syngja einhver þeirra áður en langt um líður.“ Efnisskráin á sunnudaginn er fjölbrey tt en þar mun Jón ásamt undirleikaranum Julian Hewlett meðal annars flytja ljóðaflokk Ralphs Vaughans Williams Songs of Travel og part úr fyrsta þætti Don Giovannis eftir Mozart. „Þetta eru allt verk sem ég er búinn að vera með í höfðinu síðan ég byrjaði í Söngskólanum. Þessi enski ljóðaflokk- ur er einn sá flottasti sem um getur. Svo er ég með óperuaríur og íslensk lög eftir hlé. Þetta er eiginlega allur skalinn, heilmikil dramatík á köflum en líka lög í lágstemmdari kantinum." Dívan bauð dús Jón Leifs varð landsþekktur síðasta haust þeg- ar óperudívan heimsfræga Kiri Te Kanava bauð honum að syngja með sér á tónleikum sem hún hélt hér á landi. „Við fórum nokkur úr Söng- skólanum í Master Class-nám hjá henni þegar hún kom hingað og eftir það bauð hún tveimur af okkur að syngja með sér á tónleikunum. Þetta var stórkostleg upplifun enda er hún ein af bestu söngkonum samtímans. Þetta er tvímælalaust það stærsta sem ég hef tekið þátt í á ferlinum." Jón segir það drauminn að helga líf sitt söngn- um og hlakkar mikið til tónleikanna á sunnu- daginn. „Þetta verður mjög skemmtilegt. Þessi tónlist er mér ákaflega kær og það er gaman að fá tækifæri til að flytja hana á tónleikum sem þessum.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 17 sunnudaginn 3. desember. Barokk í Vesturbænum Rinascente-hópurinn heldur tón- leika í safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg í kvöld. Hópurinn er skipaður þeim Hallveigu Rúnars- dóttur sópran, Hrólfi Sæmunds- syni barítón og Steingrími Þór- hallssyni, organista og listrænum stjórnanda. Á efnisskránni eru verk eftir ítölsku tónskáldin Gio- vanni Gabrieli og Girolamo Fresco- baldi sem uppi voru á sextándu og sautjándu öld. Gabrieli var eitt þekktasta tónskáld Evrópu á síð- ari hluta sextándu aldar og Fresco- baldi var einnig mjög áhrifaríkur á sinni tíð. Þau Hrólfur, Steingrimur og Hallveig hafa öll getið sér gott orð fyrir túlkun sína á barokk- og endurreisnartónlist og eiga því vel heima í Rinascente-hópnum sem var stofnaður af Steingrími Þór- hallssyni árið 2003. Hópurinn hef- ur frá upphafi einbeitt sér að tón- list frá þessum tíma og sérstaklega lagt áherslu á að flytja hana beint upp úr frumhandritum til þess að komast sem næst upprunalegum hljómi hennar. Á næsta ári stefnir hópurinn að því að ráðast í flutn- ing á verkum eftir Georg Friedrich Hándel. Tónleikarnir í kvöld eru hluti af tónlistarhátíðinni „Tón- að inn í aðventu" sem lýkur nú á sunnudag en hún er haldin árlega í Neskirkju. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.