blaðið - 01.12.2006, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
blaóið
Landsnefnd Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF) á íslandi hefur
unnið öflugt starf við að
afla fjár og vekja athygli al-
mennings á bágri stöðu barna víða
um heim frá því að deildin var form-
lega stofnuð í ársbyrjun 2004. Stefán
Ingi Stefánsson var í undirbúnings-
hópi að stofnun landsnefndarinnar
og fyrsti framkvæmdastjóri hennar
og segir hann að það hafi verið mjög
gaman að hafa tekið þátt í þessu
verkefni frá upphafi.
„Ég hef alla tíð verið mjög spenntur
fyrir því að vinna fyrir Sameinuðu
þjóðirnar og sérstaldega fyrir Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna. Það er
mín hugsun að við þurfum að vinna
meira í sameiningu að því að leysa
vandamál okkar í heiminum. Það
heillaði mig því að fylkja liði á bak
við stærstu barnahjálparsamtök í
heimi til að hjálpa varnarlausum
börnumsegir Stefán sem hafði
ekki fengist við neins konar mann-
úðarstörf áður en hann gerðist fram-
kvæmdastjóri UNICEF. „Ég vann
sem sjúkraþjálfari áður en ég byrj-
aði í þessu þannig að ég kem úr svo-
lítið annarri átt en þekkti vel starfið
og vissi út á hvað það gekk. Þetta
var því alveg nýtt fyrir mér en hefur
verið mjög skemmtilegt ferli.“
fslandsnefnd UNICEF hefur vaxið
mjög og dafnað á þeim stutta tíma
sem hún hefur starfað og miklir
fjármunir safnast sem runnið hafa
til verkefna á vegum Barnahjálpar-
innar víða um heim. Stefán segir að
sá árangur sem náðst hafi skipti þó
mestu máli.
„Það var til dæmis mjög stór stund
þegar við vorum á ferð í Sierra Le-
one þegar var verið að opna grunn-
skóla sem við höfðum stutt við
°g byggt. Þar er búið að byggja 50
grunnskóla fyrir gjafafé frá Islandi.
Eins í Gínea Bisá þar sem ég var í
haust viðstaddur dreifingu á flugna-
netum gegn malaríu. Þar er verið
að dreifa 180.000 malaríunetum
sem íslendingar borga fyrir þannig
að þetta eru orðin mjög stór og um-
fangsmikil verkefni sem hafa alvöru
áhrif á líf barna,“ segir Stefán.
Peningar nýttir þar sem
þörfin er mest
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
hefur það hlutverk að hjálpa þeim
börnum sem þurfa á aðstoð að halda
víða um heim.
„Það er því miður mikið starf og
því leitar UNICEF mjög eftir því
að fá peninga sem eru ekki eyrna-
merktir svo hægt sé að nýta þar sem
þörfin er mest hverju sinni. Þeir pen-
ingar eru nýttir með tilliti til tíðni
ungbarnadauða, fátæktar og mennt-
unarstigs í landinu,“ segir Stefán.
„Hins vegar höfum við gert það í
þeim tilfellum þar sem einstaklingar,
fyrirtæki og félög hafa gefið okkur
stærri fjárhæðir að eyrnamerkja
peningana. Þegar Ólafur Ólafsson
og Ingibjörg Kristjánsdóttir gáfu
okkur 35 milljónir fór það í uppbygg-
ingu menntaverkefna í Sierra Leone.
Fyrir ári safnaðist þó nokkuð mikið
af peningum, einar 80 milljónir, í
hátíðarkvöldverði og þeir peningar
hafa nú farið í að dreifa malaríu-
netum og hjálpa til við heilsuvernd
barna í Gínea Bisá,“ segir Stefán.
fslendingar gjafmildir
Hér á landi sem annars staðar
hafa fjársterkir einstaklingar, rík-
isstjórnir, stofnanir og fyrirtæki
stutt starf Barnahjálparinnar með
drjúgum fjárframlögum. Stærsti
einstaki stuðningsaðili hennar er
engu að síður sá hópur einstaklinga
sem lætur lægri fjárhæðir af hendi
rakna.
„Bandaríska ríkisstjórnin, jap-
anska ríkisstjórnin og Bill Gates eru
allt aðilar sem gefa mjög mikið en ef
þú tekur hóp einstaklinga sem gefa
lágar fjárhæðir er það langstærsti
styrktaraðili UNICEF. Það er það
sem skiptir okkur mestu máli.“
„Baggalútur er engu
stðri en Harry Belaf-
onte og það er búið að
vera mjög gaman að
vinna með þeim.
Islendingar hafa haft það orð á sér
að þeir séu sjálfhverfir og sýni um-
heiminum og vandamálum annarra
litla athygli. Sú hugmynd er ef til vill
ekki á rökum reist Jþví að mjög vel
hefur gengið að fá Islendinga til að
leggja sitt af mörkum til starfs UN-
ICEF að sögn Stefáns.
„Á þessum þremur árum erum við
komin með stærsta hlutfall styrktar-
aðila í heiminum. Á sama tíma og
Unicef hefur rutt sér til rúms í fjár-
öflun hafa framlög til annarra góð-
gerðasamtaka aukist um 30 prósent
þannig að íslenskur almenningur
gefur mjög rausnarlega til góðgerða-
starfsemi og þróunaraðstoðar. Við
erum alla vega mjög þakklát fyrir
þau viðbrögð sem við höfum fengið,“
segir Stefán og bætir við að verkefni
UNICEF hafi mjög skýran tilgang
og markmið og samtökin vilji bjóða
fólki að taka þátt í þeim. Það getur
fólk meðal annars gert með því að
gerast svo kallaðir heimsforeldrar.
„Heimsforeldrar eru einstaklingar
sem styrkja málefni UNICEF með
mánaðarlegum framlögum. Þau
framlög fara ekki til eins ákveðins
barns, lands eða verkefnis, heldur
eru nýtt almennt til styrktar UN-
ICEF og eru þá notuð þar sem þörfin
er mest hverju sinni. Heimsforeldr-
arnir fá síðan reglubundnar fréttir
með sögum af þeim verkefnum sem
stutt hafa verið þannig að fólk getur
fylgst með og séð hvernig því vindur
fram,“ segir Stefán og bætir við að
þetta sé mjög þýðingarmikið starf.
Baggalútur ekki síðri en Belafonte
Auk hins almenna borgara hafa
ýmsar stórstjörnur meðal annars
úr heimi tónlistar, kvikmynda
og íþrótta lagt starfi UNICEF lið
í gegnum tíðina. Meðal slíkra vel-
gjörðarsendiherra má nefna Au-
drey Hepburn, Whoopi Goldberg,
David Beckham, Harry Belafonte
og Roger Moore en þeir tveir síðast-
nefndu hafa komið hingað til lands
til að taka þátt í fjáröflun fyrir
Barnahjálpina.
Landsnefndin hefur einnig leitað
til innlendra stjarna til að vekja
athygli á málstaðnum og er útgáfa
Baggalúts á laginu Brostu gott dæmi
um það en ágóðinn af sölu þess
rennur til UNICEF.
„Baggalútur er engu síðri en Harry
Belafonte og það er búið að vera
mjög gaman að vinna með þeim.
Við lítum svo á að við viljum fá sem
flesta til samstarfs við okkur og
höfum unnið með mjög breiðum
hóp. Við höfum verið að vinna
með mjög þekktum einstaklingum
en líka með grunnskólum, kvenfé-
lögum, Lions- og Kiwanisklúbbum.
UNICEF reynir að starfa með öllum
sem láta sig málefni barna varða.
Hinir fá meiri athygli. Það sem fólk
man eftir er að Roger Moore kom
í heimsókn en kannski ekki eftir
öðrum verkefnum sem við höfum
verið að vinna að,“ segir Stefán.
Umdeilt uppboð
Fyrir ári var haldin hátíðarkvöld-
verður og uppboð til styrktar UN-
ICEF sem vakti nokkra umfjöllun.
Viðburðurinn var gagnrýndur fyrir
það að þar væri fólk að bjóða um-
Sýnilegur árangur
af starfinu Fjáröflun
Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna á Islandi hefur
meðal annars nýst við
uppbyggingu skóla ÍSierra
Leone og útbreiðslu malar-
íuneta í Gínea Bisá að sögn
Stefáns Inga Stefánssonar
framkvæmdastjóra lands-
nefndar samtakanna.