blaðið


blaðið - 01.12.2006, Qupperneq 48

blaðið - 01.12.2006, Qupperneq 48
blaöið 48 FÖSTUDAfiim 1 £& ilBER 2006 Jr. Svínakjöt og fita Það er mikið borðað af svínakjöti yfir hátíðarnar. En er mikil fita í svínakjöti? Á undanförnum árum hafa svínaframleiðendur áttað sig á því að fólk vill ekki mjög feitt kjöt og því eru svínin grennri nú en var hér áður fyrr. Ef fitan er skorin frá svínakjötinu inniheldur kjötið um 2-5% fitu og ætti því að vera í lagi fyrir þá sem eru að passa sig á aukakílóunum að fá sér sneið. ólamatur Geitaostur Hvítur geitaostur er einstaklega góður í matargerð en hann er því miður mjög dýr i ostabúðum hér á landi. Ef þú vilt dekra við bragðlaukana ættir þú að setja væna sneið af geitaosti á sneið af snittubrauði, baka í ofni og hafa síðan með góðu grænmetissalati. Uppskriftir með íslenskum kryddjurtum Það eru margar flottar matreiðslubækur að koma út þessa dagana. Ein þeirra er Ræktað ' - kryddað - kokkað, eftir Magn- ús Jónasson skrúðgarðyrkju- fræðing, en hann nýtur hjálpar margra sérfræðinga við gerð hennar. í bókinni er bæði farið inn á hvernig rækta skal krydd- jurtir í heimagörðum jafnhliða því sem ýmsar gagnlegar og góðar upplýsingar er að finna um notkun þeirra. Þá eru einn- ig fínar uppskriftir í bókinni. Við fengum leyfi útgefanda til að birta tvær uppskriftir sem væru upplagðar til að prófa um jólin. Það er Ritskinna sem gef- urbókinaút. Hreindýra- carpaccio Hreindýravöðvi er brúnaður á f snarpheitri pönnu. Síðan er honum velt upp úr kryddblöndunni, rúllað í plastfilmu og frystur. Þessi uppskrift kemur frá Ágústi Garð- arssyni, yfirmatreiðslumeistara á Veitingahúsinu Lækjarbrekku. i Kryddblanda: 3 kvistar rósmarín Vi búnt basil 4 msk. mulin einiber Carpaccio, skorið, t.d. í brauðskera, á stóran disk og marinerað með blöndu af ólífuolíu og sítrónusafa, og borið fram með ristuðum furuhnetum og nýrifnum parmagianio-flögum, og salatvendi (rucola og friise). Humar með hnetum Höfundar að þessari uppskrift eru Guðmundur Þór og Ottó Magnússon. Humrinum er velt upp úr hökkuðum bjórhnetum (chilinuts). Steikið hum- arinn í olíu á meðalhita. Skreytt með snöggsoðnum aspargus og karsa. Humar Bjórhnetur Vatnakarsi Aspargus Jólin koma. Ættingjar og vinir hittast og gleöjast saman yfir margskonar jólagóögæti. Hellmann's® majónes er eitt af því sem fullkomnar jólamatreiðsluna og gerir árangurinn ómótstæðilegan. Flauelsmjúk áferð, besta hráefni og ósvikin bragðgæði. Gleðileg jól. Efþúátt afgang af kalkúna um jólin geturðu gertþetta góða salat. Kalkuna-waldorf-salat /2 bolli Hellmanns's® Mayonnaise 1 msk sítrónusafi Zi tsk salt 2 bollar af elduðum kalkúna eða kjúklingi í teningum 1 stórt epli, afhýtt og kjarnahreinsað V2 bolli sellerí, sneitt 1/3 bolli rúsínur eða þurrkuð trönuber Vi bolli laukur, fínt sneiddur (má sleppa) Ristaðar valhnetur, saxaðar (má sleppa) Hrærið majónes, sítrónusafa og salt í skál. Blandið öllu öðru en hnetum vel saman við. Stráið hnetum yfir salatið. Kælið ef vill & Chili-kartöflur Það er hægt að elda kartöflur á margvíslegan máta og gaman að breyta til frá þessum venjulegu soðnu eða sykurbrúnuðu. Margir eru mjög hrifnir af sterkum mat og matur frá Mexíkó er orðinn mjög vinsæll. Við rákumst á þessa upp- skrift að chili-kartöflum sem ætti að vera spennandi að prófa, annað hvort núna á aðventunni eða um jól eða áramót. Þetta er einfalt að búa til og kartöflurnar eru sérstak- lega ljúffengar með grilluðu lamba- kjöti. 12 kartöflur 3 msk. olía 1/4 tsk. chiliduft 1/2 tsk. paprikuduft 2 tsk. grófmalaður pipar 1. Þvoið kartöflurnar og skrælið þær. Forsjóðið þær í 15 mínútur áður en þær eru lagðar í eldfast mót. Setjið álpappír undir ef þið ætlið að setja kartöflurnar á úti- grill en margir draga fram grillið á þessum árstíma ef veður er sæmilegt. 2.Blandið saman olíu og kryddi og penslið síðan kartöflurnar með blöndunni. Setjið í 200°C heitan ofn og steikið í um það bil 15-20 mín- útur. 3.Þegar kartöflurnar eru fulleldaðar eiga þær að vera með stökkri skorpu. Vel má bæta við kryddi og olíu eftir smekk hvers og eins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.