blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 58
blaðið
FÖSTUDAGUR 1. DESJ
Snyrtipinnar
Þó flestir hefðu sennilega haldið
annað skilja karlmenn við hótelher-
bergi sín mun snyrtilegri en kvenmenn.
Skegghræösla
Margt er í þessum heimi sem hægt er að hræðast en
stundum upplifir fólk mikinn ótta að ástæðulausu en til eru
einstaklingar sem eru illa haldnir af Pogonophobia en það
er mikil hræðsla við skegg.
handa öllum
I kuldanum á íslandi er nauðsynlegt að
eiga góða húfu til þess að halda á sér
hita. Þar sem verslanir eru fullar af alls
kyns fatnaði ættí ekki að vera erfitt að
finna húfu sem passar en svo er bara
spurning um að vera svolítið myndar-
legur og taka upp prjónana, kaupa garn
og skella í eitt stykki húfu. Hérna eru
nokkrar hugmyndir af flottum og fallega
prjónuðum höfuðfötum.
Rabarbara-Rúna
800 gr rabarbari brytjaður eða græn epli eða frosin ber
200 gr smjör
200 gr hrásykur eða púðursykur ' ,
. 200 gr spelt, durum eða hveiti
100 gr haframjöl
Rabarbari settur í eldfast mót.
Smjöri, hrásykri, spelti og haframjöli hrært saman, gott að
nota handþeytara ef hann er til.
Þvi er svo stráð yfir rabarbarann og því næst skellt inn í
ofn á 180 gráður og bakað í svona 30 mínútur eða þartil
bakan er orðið gyllt. Gott að bera fram meö rjóma eða ís:
/ Skáldaðu
/ karlmannsnafn og skel
þv/ á dyrabjölluna tíl aði
ekki trufluð afóboðnum ge
um nætur. Og svo er
bara að brosa framan í lífi
\ Þá brosir lífið við þér.
Gul og töff
Ótrúlega flott gul húfa
p?* Grá með dúsk
Þykk og hlý húfa sem
nær vel niður fyrir eyru
I einhleypueldhúsinu er að þessu sinni fatahönnuðurinn og stílistinn
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir. í isskápnum hjá Sunnu eru miklar líkur á að
leynist dökkt súkkulaði enda það eitt af því sem bjargar deginum hjá
henni ásamt góðum bolla af heltu kaffi. Annars er Sunna dugleg við að
láta bjóða sér í mat þó að hún eldi nú sjálf annað slagið.
Fullt nafn: Sunna Dögg Ásgeirsdóttir
Aldur: Ég er 24 ára
Andlegur aldur: Oftast 18 ár en ætli bræðrum mínum finnist ég ekki
stundum vera sjötug.
Starf: Hönnuður og stílisti og blanda Penzim.
Fyrirmynd í Iffinu: Mamma, ömmur og Anna frænka og fleiri góðar og
góðir.
Að vinna á togara eða við blómaskreytingar? Úff, ég held bara bæði.
Myndi samt bara vilja hafa togarann á landi.
Eru skór til að ganga á? Nei, til að ganga I.
Ertu hrædd við skordýr? Ó nei, það er ég ekki.
Hvað verður að vera til í ísskápnum? Mjög dökkt súkkulaði.
Áttu safn af skurðarhnífum og wok-pönnu í eldhúsinu? Ég á wok-
pönnu en ekki hnífa.
Finnst þér gaman að baka kökur? Já, mér finnst það rosa gaman.
Ferðu eftir uppskriftum? Nei, það hef ég aldrei kunnað.
Hvað er kynþokki? Útgeislun og sjálfsvirðing.
Hvað ertu að gera í kvöld? I kvöld er ég bara að vinna.
Færðu oft fólk i mat? Það kemur fyrir en ég er duglegri við að bjóða mér
í mat annað.
Borðarðu oft úti? Er Ijtið fyrir að borða úti þegar það er svona kalt en nýt
þess í góðu veðri á sumrin en annars er ég rosa dugleg að bjóða mér í
mat til fjölskyldunnar.
Hvað bjargar deginum? Það er 80% dökkt súkkulaði og ilmurinn af góöu
kaffi þó svo að það myndi ekki toppa að heyra í silkimjúkri rödd elskulegs
kærasta.
Hvaða bækur ertu að lesa? Einmitt.
Grá- og hvítyrjótt
Fínleg en hlý húfa
Fallega blá
Ullarhúfa með slaufu
Hversdagsleg
Brún með einföldu sniði
Kaupum ekkert dagurinn var í síðustu viku.
Ef ég skildi fyrirbærið rétt var fólk hvatt til
að taka sér hvíld frá neyslukapphlaupinu í
einn dag með því að kaupa ekki neitt. í til-
efni af því var opnuð B
sérstök „Kaupum ekk- Jf l— ^ ^
crt búð“, þar sem ekk- XvClO
ert var til sölu.
í sjálfu sér má segja
að þetta sé ágætis hugsun, að hvetja fólk til
að huga að öðrum gildum í lífinu en þeim
sem snúast um peninga. Líf manns og ham-
ingja snýst enda ekki endilega um peninga
og þá hluti sem fást fyrir þá. Ekki einungis,
að minnsta kosti. Það er hins vegar misskiln-
ingur að hin gæðin kosti ekki neitt.
Til dæmis þurfti sá eða sú sem setti upp fyrr-
nefnda búð að borga leigu fyrir húsnæðið
sem notast var við. Ef eigandi hússins gaf
leiguna eftir hefur hann fórnað leigutekjum,
sem hann annars hefði getað fengið hjá ein-
hverjum öðrum. Hann þarf líka að borga
hita og rafmagn í hús-
M|«|| baa næðinu. Ef ekki hefur
CHIULIII rafmagns- og hitaveitan
PJTfTpTPWfPI þurft að leggja í kostnað
við að afla orkunnar án
þess að fá nokkuð fyrir sinn snúð. Hún þarf
jú að borga laun starfsmanna sinna. Ef þeir
hafa gefið laun sín eftir hefur það tvímæla-
laust haft kostnað í för með sér fyrir þá og
fjölskyldur þeirra.
Það kostar nefnilega peninga að hugsa ekki
um peninga og gefa veraldlegum gæðum
langt nef. Sá sem minnkar við sig í vinnu, til
að huga betur að börnunum sínum eða auka
frítíma sinn með mak-
anum, gerir það ekki
ókeypis. Með því að
vinna minna fórnar
hann tekjum sem
hann annars hefði get- \
að haft og hefðu ef til \
vill gert fjölskyldunni
kleift að njóta lífsins bet-
ur en ella.
En auðvitað segir það
sjálft að hjá flestum er lífs-
hamingjan ekki fólgin í .
því að vinna 18 tíma á J
sólarhring. Verkefni m
hvers og eins er að M&
finna sitt jafnvægi jfl
á milli vinnu og frí-
_ tíma. Sumir kunna að taka á sig vinnut-
■ arnir, til að búa í haginn fyrir framtíð-
W ina. Aðalatriðið er, að hver og einn taki
' þessa ákvörðun fyrir sjálfan sig, því sá
sem á í hlut þekkir aðstæður sínar betur
en nokkur annar. Þeir sem vinna of mikið,
jafnvel svo mikið að þeir hafa aldrei færi á
k að njóta afrakstursins, finna fyrir því
sjálfir og hafa tækifæri til að læra af
mistökum sínum.
bk. Orðatiltækið „Hver er
SÉj^ sinnar gæfu smiður" er
Bk auðvitað klisja, en kli-
Igk sjurnar eru klisjur
wk vegna þess að þær
H eru klisjur, þótt
■ það sé klisja að
■ segja það.
» Einhleypueldhúsið
Ivar Páll Jónsson