blaðið - 08.12.2006, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006
blaöiö
INNLENT
Færri á nagladekkjum
Mæling í byrjun desember sýndi
fram á minni notkun nagiadekkja nú
miðað við sama tíma í fyrra. (Ijós
kom að fjörutíu prósent ökumanna
aka á negldum dekkjum.
stjórnmAl
Óráðið hjá Vinstri grænum
Kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík fundaði í fyrradag
um niðurstöður forvals flokksins sem fram fór um síðustu
helgi. Drífa Snædal, framkvæmdastýra flokksins, segir að
engar ákvarðanir hafi verið teknar um röð frambjóðenda á
listum flokksins en það skýrist vonandi fyrir jól.
BÍLÞJÓFNAÐUR
Skilin eftir á miðri götu
Bifreið sem stolið var í Hafnarfirði aðfaranótt fimmtudags fannst um
tvöleytið í gær á miðjum Nýbýlaveginum á móts við Þverbrekku. Bifreið-
inni var lagt þar á milli akreina og höfðu þjófarnir forðað sér fótgangandi.
Þjófarnir höfðu þó vit á því að setja hættuljósin á bílnum í gang áður en
þeir yfirgáfu hann til að valda ekki óþarfa umferðarhættu.
Ohappaalda í Reykjavík:
36 óhöpp á 36 tímum
36 óhöpp urðu á jafnmörgum
klukkustundum í umferðinni í
Reykjavík frá aðfaranótt miðviku-
dags fram á fimmtudagsmorgun.
Öll óhöppin voru smávægileg að
einu undanskildu. 1 því tilfelli
kvartaði tíu ára drengur undan
eymslum í hálsi eftir að loftpúði
blés upp framan í hann, þegar
ekið var aftan á bílinn sem hann
var farþegi í.
Lögreglan í Reykjavík segir
að þetta séu óvenju mörg óhöpp
á svo skömmum tíma en hefur
engar skýringar á hvað geti
valdið þessari óhappaöldu. Einn
lögregluþjónn sagði þó að ein-
hver af þessum óhöppum mætti
eflaust rekja til andvaraleysis
Umferðaróhöpp hafa verið tíð
undanfarna daga Bílstjórar senda
SMS-skilaboð og fylgjast ekki með
umferðinni.
ökumanna, menn væru að tala í
síma eða senda SMS á meðan á
akstrinum stæði
Höfum mikið úrval leikfanga.
Spil, púsl og módel fyrir
alla aldurshópa.
úmsrunofíHúsio
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
II
ÍSLANDS
NAUT
Til að byrja með Fát á piltinn Vinirpiltsins
Pilturinn virðist standa hjá hlæjandi og
ráða við ástandið einn ýtir honum þegar
en snögglega áttar hann reynir i örvæntingu
hann sig á þvi að að slökkva eldinn.
hann getur ekki
slökkt eldinn.
w 5 'S*
•fsek sek
Hálf mínúta Drengurinn 33 sekúndurA//s
var búinn að loga i hálfa logaði pilturinn í 33
mínútu þegar hann kast- sekúndur og hlaut
aði sér niður og tókst að nokkurn skaða af.
slökkva eldinn. t
^ 12
sek
. ♦
Unglingur kveikti í sér og setti það á Netið:
Heimskulegt
og hörð lexía
■ Logaði í hálfa mínútu ■ Sprengjuuppskriftir á heimasíðunni
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Þetta var bara heimskulegt og hörð
lexía,“ segir unglingurinn sem
kveikti í sér á meðan vinir hans
tóku það upp á myndband. Piltarnir
eru allir um 14 ára gamlir og úr
Hafnarfirði.
Á sláandi myndskeiði sem búið er
að íjarlæga af Netinu mátti sjá ung-
lingspilt skvetta bensíni á löppina á
jafnaldra sínum. Svo kveikir hann í
og löppin á piltinum skíðlogar. í horn-
inu á rammanum má sjá klukku sem
fer af stað og tekur tímann.
1 fyrstu virðist pilturinn hafa
vaðið fyrir neðan sig. Það breytist þó
snögglega þegar honum tekst ekki að
slökkva eldinn. Fát kemur á piltinn
á meðan hinir hlæja og taka atvikið
upp. Þegar eldurinn hefur logað í
rúma hálfa mínútu tekst piltinum
að slökkva í sér eftir sársaukafulla
baráttu. Þá er sýnt þegar pilturinn
leitar sér aðstoðar á heilsugæslunni
Sólvangi en piltarnir lugu að lælcn-
inum að þeir hefðu verið að setja
bensín á skellinöðru og eldurinn
hefði kviknað út frá sigarettu. Sjálfur
segir pilturinn: „Ég veit að þetta er fá-
ránleg lygi, en hann trúði þessu.“
Myndskeiðið minnir á tilburði fé-
laganna í Jackass, eða Kjánunum, en
Mánuð að jafna sig Það tók piltinn mánuð að jafna sig en hann fékk ansi
Ijótt brunasár eftir uppátækið. Þegar læknirinn spurði hvað hefði gerst lugu
piltarnir þvíað kviknað hefði íbensíni út frá sígarettu þegarþeir voru að setja
það á skellinöðru.
þættirnir voru sýndir á Skjá einum
og svo hafa tvær kvikmyndir með
heimskupörum þeirra verið sýndar
hérlendis við miklar vinsældir.
Aðspurður segir pilturinn að hug-
myndin hafi ekki endilega komið
frá þeim þætti en segist samt hafa
gaman afhonum.
Myndskeiðið var tekið upp fyrir
þremur mánuðum en að sögn pilts-
ir«c fólr Ronn nm mórmð iafna
sig almennilega eftir brunann. Mynd-
skeiðið mátti finna á heimasíðu pilt-
anna. Á síðu þeirra má finna fleiri
myndskeið þar sem piltarnir klifra
til dæmis upp á Sparisjóð Hafnar-
fjarðar. Einnig má finna nákvæmar
leiðbeiningar í sprengjugerð. Þar
leynist til að mynda uppskrift að
rörasprengju og Mólótov-kokteil.
Einnig er vísað á verslanir þar sem
efnin fást.
Efnalaugin Björg
Góð þjónusta
Þekking
Opiö: mán-fim 8:00 - 18:00
föst 8:00 - 19:00
laugardaga 10:00 - 13:00
Háaleiti8braut 58-60 • Sími 553 1380