blaðið - 08.12.2006, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006
blaöið
HVAÐ MANSTU?
1. Hver eru fimm fjölmennustu ríki heims?
2. Hverjir skoruöu mörkin í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 1999?
3. Hvað hafa margir gegnt embætti forseta Bandaríkjanna?
4. Hverjir eru bankastjórar Landsbankans?
5. Hver fékk flestar tilnefningar til (slensku tónlistarverðlaunanna í ár?
GENGIGJALDMIÐLA
Svör:
KAUP
■ Bandaríkjadalur 68,78
sis Sterlingspund 135,35
SS Dönskkróna 12,25
Ufr Norskkróna 11,28
SJJJ Sænskkróna 10,11
H1 Evra 91,33
SALA
69,10
136,01
12,32
11,34
10,17
91,85
Atvinnulausir Vopnfirðingar látnir sækja námskeið á Egilsstöðum:
100 kílómetrar í bæturnar
■ Verða að ferðast langan veg á námskeið ■ Óréttlátar reglur ■ Fá bílastyrk
Samgöngur:
Vilja stækka
Norrænu
Mbl.is Rætt hefur verið um það
i stjórn Smyril Line, sem gerir
út ferjuna Norrænu, að lengja
skipið. Færeyska blaðið Dimma-
lætting segir að yfir sumartím-
ann sé skortur bæði á klefum og
bílaplássum. Gert er ráð fyrir að
rekstur Norrænu verði hallalaus
á þessu ári.
Blaðið hefur eftir Hendrik Eg-
holm, markaðsstjóra Smyril Line,
að þegar Norræna var smíðuð
hafi verið gengið svo frá að
auðvelt yrði að lengja hana um
30 metra. Ekki hafi verið tekin
ákvörðun um að stækka skipið
en málið hafi verið rætt.
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Atvinnulausir Vopnfirðingar geta
þurft að keyra alla leið til Egilsstaða
til að missa ekki atvinnuleysisbætur
en þangað eru um íoo kílómetrar.
Eiginmaður atvinnulausrar konu á
Vopnafirði segir reglurnar vera afar
skrítnar og að fólk sé þvingað til að
keyra langar vegalengdir. Forstöðu-
maður Svæðisvinnumiðlunar Aust-
urlands segir að vegna manneklu sé
erfitt að halda úti þjónustu i öllum
bæjarfélögum á svæðinu.
Mjög ósátt
„Ég trúi því ekki að það hafi verið
ætlun þeirra sem settu löggjöfina
að þetta ætti að virka svona,“ segir
Helgi Þórðarson, íbúi á Vopnafirði.
„Það er hægt að kippa fólki af bótum
ef það getur ekki keyrt too kílómetra
til Egilsstaða.“Eiginkona Helga er at-
vinnulaus og hefur fengið atvinnu-
leysisbætur í samræmi við lög. 1
síðasta mánuði var hún boðuð á
námskeið á Egilsstöðum. Var henni
ennfremur tjáð að sæi hún sér ekki
fært að mæta námskeiðið myndi
hún verða af bótum. Námskeiðið
var þrískipt sem þýddi að eiginkona
Helga hefði þurft að ferðast þrisvar
til Egilsstaða til fullnægja kröfum
um atvinnuleysisbætur. Hún fór
ekki og missti þar af leiðandi bætur.
Helgi segir að eitthvað hljóti að
vera bogið við lög sem skikki fólk
til að takast á hendur slíkt ferðalag
og einboðið að það skapi óréttlæti.
„Þetta er afskaplega vitlaust kerfi.
Sá sem býr á Vopnafirði fær ekki
bætur jafnvel þó hann sé búinn að
borga í Atvinnuleysistryggingasjóð
í tugi ára. Við erum mjög ósátt við
þetta.“
Skylt að fara á milli
Ölöf Magna Guðmundsdóttir, for-
stöðumaður Svæðisvinnumiðlunar
Austurlands, segir erfitt að halda
úti þjónustu í öllum bæjarfélögum
á svæðinu.
„Hér í kringum Egilsstaði eru
mörg mjög lítil samfélög. Það er
ekki hægt að bjóða upp á úrræði á
öllum þessum stöðum. Því safna
ég fólki saman hérna miðsvæðis.
Ef ég á að þjónusta fólkið þá get ég
þurft að hreyfa það til. Lögum sam-
kvæmt er því skylt að fara á milli.
Við greiðum ferðirnar fyrir fólkið í
Vinnumiðlun fyrir Austurland er
staðsett á Egilsstöðum Þangað
þurfa atvinnulausir Austfirðingar að
fara á námskeið. I sumum tilvikum
þurfa þeir að keyra eitt hundrað
kilómetra.
formi bílastyrkja." Ólöf bendir á að
í lögum séu gerðar strangar kröfur
um að fólk sem þiggur atvinnuleys-
isbætur sýni virkni í atvinnuleit.
Námskeiðin séu liður í þeirri virkni.
„Fólk á bæði að vera virkt i því að
búa sig undir atvinnuleit og styrkja
sig. Þess vegna er boðið upp á nám-
skeiðið fólki að kostnaðarlausu."
Bylting á leikjatölvumarkaðnum:
Wii fjarstýring með hreyfiskynjara.
Útgáfudagur leikjatölvunnar Wii
frá (NinTendo) er í dag!
0 ® 0
©
Wii
„Það er allt að verða vitlaust!“
Nintendo Wii er bylting í leikjatölvum.
Wiimote fjarstýringin er með hreyfiskynjara,
sem nemur nákvæmlega hvernig þú snýrð,
hreyfir þig eða sveiflar höndunum - þú getur
staðið upp og leikið leikina.
Fjöldi leikja kominn. Wii getur spilað Game
Cuöe leikina. Innbyggt þráölaust netkort
-tengjanleg við netið.
Fyrsta sending af Wii er UPPSELD.
Ný sending á leiöinni.
Nintendo Wii selst þrisvar sinnum meira
en PS 3 í Bandaríkjunum og Japan.
Hvað segir það okkur?
Sjá nánar á www.nintendo.is
ORMSSON
ORMSSON-SÍÐUMÚLA 9 1 ORMSSON-SMÁRAUND I ORMSSON-AKUREYRI I ORMSSON-KEFLAVÍK
SÍMI530 2800 | SlMI 530 2900 | SlMI 461 5000 | SiMI 421-153S
Afram ríkisstofnun Ekkert
verður af þvi að RÚV verði að
opinberu hlutafélagi í ár.
L. j *!'
Frestuðu afgreiðslu laga:
s
RUV-frumvarp
aftur sett í bið
Mbl.is Þorgerður K. Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra kveðst sátt við
að önnur umræða um Ríkisútvarpið
ohf. klárist fyrir helgi, þótt ekki ná-
ist að afgreiða frumvarpið fyrir jól.
Samkomulag náðist í fyrrinótt milli
stjórnar og stjórnarandstöðu um að
önnur umræða um frumvarp um
Ríkisútvarpið yrði kláruð fyrir þing-
lok. Að óbreyttu stefndi í miklar um-
ræður um Ríkisútvarpið.
„Ég er sátt við niðurstöðuna. Ég
er sátt við það að við klárum aðra
umræðu, en í henni er alltaf mikill
þungi. Síðan byrjum við strax eftir
áramót, fyrr heldur en áður var gert
ráð fyrir, til að klára Ríkisútvarpið
Stefnt er að því að þing komi saman
hinn 15. janúar næstkomandi.
Spurð hvort þessi málsmeðferð
breyti ekki einhverju fyrir Ríkisút-
varpið sjálft segir ráðherra: „Nei,
það munar ekki þessum mánuði
eða tveimur." Á hinn bóginn sé best
að óvissu um Ríkisútvarpið verði
eytt sem fyrst.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, leggur
til að skipuð verði nefnd allra
flokka á þingi sem leiti leiða til
sátta áður en frumvarp mennta-
málaráðherra um Ríkisútvarpið
komi aftur til umræðu í janúar.
Samkomulag hefur náðst um að
fresta lokaafgreiðslu frumvarpsins
fram yfir áramót. Önnur umræða
um frumvarpið hófst á Alþingi í
gærmorgun.