blaðið - 08.12.2006, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006
blaðið
Aðsendar greinar
Blaðið birtir aðsendar greinar frá þeim, sem taka vilja þátt
í þjóðfélagsumræðunni með virkum hætti.
Greinum skal skila inn með tölvupósti til greinar@bladid.net
og er æskilegt að þær séu ekki lengri en 600 orð. Greinum skal fylgja
mynd af höfundi ásamt kennitölu hans og símanúmeri.
Blaðið áskilur sér rétt til að breyta fyrirsögnum og millifyrirsögnum
og getur ekki ábyrgst að greinar birtist á tilteknum tíma.
Eins er birting greina háð því að ritstjórn telji þær innan ramma laga
og almenns velsæmis.
blaöi
Gjafabréf upp á ljúfa kvöldstund á Argentlnu steikhúsi er
jólagjöf sem gleður og líður seint úr minni.
Tilvalin gjof tilþeirra sem manni finnst mikið til koma!
Jólagjöf veiðimannsins
veidikortid.is
29 vatnasvæði
fyrír aðeins 5000 krónur!
Handbók meö ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiöivöruverslunum og á www.veidikortid.is .
Alþýðuflokkurinn
endurborinn
Sómakonan Margrét Frímanns-
dóttir hélt veglega útgáfuhátíð
æviminninga sinna í Hólmarast-
arhúsinu á Stokkseyri um síðustu
helgi. Um leið var samkoman
nokkurskonar kveðjuathöfn þess-
arar mætu þingkonu sem lætur
af þingmennsku á vori komanda.
Þau starfslok marka tímamót í ís-
lenskri stjórnmálasögu.
Með brotthvarfi þeirra Margr-
étar Frímannsdóttur og Jóhanns
Ársælssonar eru síðustu Alþýðu-
bandalagsþingmennirnir horfnir
úr Samfylkingunni. Þar með má
segja að íslenska flokkakerfið hafi
náð sér af þeim hringlanda sem
nafnbrey tingar á vinstri vængnum
ollu fyrir 8 árum. Stofnun Samfylk-
ingarinnar var heiðarleg tilraun
til að sameina alla vinstrimenn
í einn flokk en mistókst líkt og
fyrri tilraunir sem gerðar voru
með stofnun Sósíalistaflokksins á
sínum tíma og síðan Alþýðubanda-
lagsins árið 1968.
Torræð og skrýtin ræða Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur á
þessari sömu helgi tók af öll tví-
mæli í þessum efnum. Ingibjörg
lofar þar að Samfylkingin muni
láta af ábyrgðarlausri vinstri-
stefnu og verður vart um villst að
hér er hægri kratastefna gamla Al-
þýðuflokksins afturgengin.
Um leið skapast svigrúm fyrir
Vinstri græna til að sameina undir
einn hatt þau öfl sem áður tilheyrðu
Alþýðuflokkur-
inn heitir nú
Samfylkingin
Umrœðan
Bjarni Harðarson
Alþýðubandalaginu. Margt af þeim
var aldrei fyllilega stjórntækt og
sama virðist því miður ætla að verða
uppi á teningnum í flokki Steingríms
J. En aftur að Alþýðuflokknum sem
nú heitir Samfylking.
Eins og marga rekur minni til var
flokkur þessi ekki bara minnstur
allra flokka í atkvæðamagni heldur
einatt líka heldur smár í sniðum og
hugsun. Gaf út minnsta blaðið og
stóð fyrir hægri kratastefnu sem
einhvern veginn sló aldrei í takt við
alþýðu þessa lands.
Hörð Evrópuhyggja einkennir
flokk þennan í fortíð og nútíð og á
liðnum vetri hafa gægst fram fleiri
angar þeirrar stefnu sem sterkust
var í Alþýðuflokki Jóns Baldvins.
Líkt og hjá Jóni er afstaðan til land-
búnaðarins nú harðari og óvægnari
en áður þannig að þar á Samfylk-
ingin helst samleið með frjálshyggju-
drengjum Sjálfstæðisflokksins. I
byggðamálum stendur flokkurinn
fyrir skeytingarleysi af svipaðri
gerð og fyrrnefndir drengir. Það er
auðvitað alltaf erfitt að bera saman
afstöðu tveggja flokka til málefna
þegar áratugur skilur að í tíma. En
það blasir samt við að viðhorf Sam-
fylkingarinnar í landbúnaðar- og
byggðamálum eru mjög fjarlæg því
sem gamla Alþýðubandalagið hefði
nokkru sinni leitt hugann að.
Út yfir tekur svo þegar stærsta
byggðaaðgerð sögunnar, bygging
Fjarðaáls, er nú fordæmd. Þar seil-
ist flokkurinn reyndar svo langt að
fordæma eigin gjörðir en slíkan tví-
skinnung muna miðaldra menn vel
úr sögu Alþýðuflokksins gamla.
Höfundurer bóksali á Selfossi og sækist
eftir öðru sæti á lista Framsóknarflokks-
ins (Suðurkjördæmi í prófkjöri flokksins
20. janúar næstkomandi.
KLASSÍSKAR BARNABÆKUR
Hver man ekkl eftir Flmm-bÓkunum
08 Ævintýra-bókunum. Hér eru þær
komnar aftur í nýrrl úteáfu tll óblandlnnar
ánaesiu fyrir alla.
Þessar skemmtllesu os spennandl söeur
hlns kunna höfundar Enid Blyton fjalla
um nokkur börn os vlnl belrra úr dýraríklnu
sem lenda I ótrúlesustu ævintýrum.
ÆVINTYRA
“■ M eyjan
1 nyjum
ævintýrum
f Wmv< -í
W;-
i- & % M jrí WJr ^ I
-1 .gL HHV