blaðið - 08.12.2006, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006
blaftió
Litvinenko jarðsettur í Lundúnum
Alexander Litvinenko, fyrrverandi rússneskur
njósnari sem lést eftir aö hafa orðiö fyrir eitrun
þann 23. nóvember, var borinn til grafar í
Lundúnum í gær. Breska lögreglan rannsakar
dauðsfallið eins og um morð sé að ræða.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
Friðargæslulið til Sómalíu
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að vopnað frið-
argæslulið verði sent til Sómalíu til að styðja bráðabirgðastjórnina
í landinu sem er undir miklum þrýstingi frá íslömskum uppreisn-
arsveitum. Átta þúsund hermenn frá ríkjum Þróunarsambands
Austur-Afríkuríkja skipa friðargæsluliðið.
indónesía
Ritstjóri Playboy fyrir dómi
Ritstjóri tímaritsins Playboy í Indónesíu bíður nú
dóms eftir að hafa verið ákærður fyrir að birta ósið-
samlegt efni. Indverska útgáfa Playboy kom fyrst
á markað í apríl síðastliðnum og var þar að finna
myndir af fáklæddum konum en þó enga nekt.
LIÐ-AKTÍN
GXTRA
Glucosdmine & Chondroitin
60 töflur
Heldur liðunum
liöugum!
(\91heilsa
'?öavÓ<' ÍigH -haföu það gott
Dómsmál:
Ákæruvald
ekki fyrir dóm
Kröfu lögfræðings fimm-
menninganna sem eru ákærðir
í svokölluðu Baugsmáli, um að
kalla Harald Johannessen ríkislög-
reglustjóra, Jón H.B. Snorrason,
yfirmann efnahagsbrotadeilar, og
Andrés Magnússon, blaðamann
á Blaðinu, til vitnaleiðslu var
hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ástæðan fyrir kröfu lög-
fræðingsins er sú að í viðtali í
Blaðinu í október á síðasta ári og í
nóvember síðastliðnum eiga Har-
aldur og Jón að hafa tekið afstöðu
til sektar sakborninganna. Þessu
hafna Haraldur og Jón alfarið
og vilja meina að orð þeirra hafi
verið slitin úr samhengi og að í
heild sinni séu þau eðlileg.
Niðurstaðan hefur verið kærð.
Það liggur Ijóst fyrir að upplýsingar sem ekki kveikja áhuga
eru einskis nýtar. 30 ára reynsla Xerox kemur fram
í skínandi litum sem vekja 82% meiri athygli.
Xerox litaprentarar,
fjölnota kerfi
og stafrænar prentvélar.
XEROX
Betri umbúðir
1ÖGURSMYRSL
■hreinlega sterkari
SMÁAUGLÝSINGAR 5103737
KAURA/SELIA
blaðiö —i
Hringtorg líklegt
Gatnamót Vesturlands-
vegar og Þingvallavegar
Reykjavik 17
Mosfellsbær 2
Akureyri 37
Akranes 33
Kristinn H. ósáttur við að dregið sé úr fjárveitingum:
Öryggi slegið á frest
■ Brýnt öryggisatriði ■ Afleitir vegarkaflar ■ Ráðherra taki af skarið
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, segir að yfir-
völd líti ekki á vegaframkvæmdir í
Arnkötludal sem öryggisaðgerðir.
Það er hann ósáttur við.
„í frumvarpi frá ríkisstjórninni,
sem mælt var fyrir í upphafi vik-
unnar, er lagt til að fjárveiting til
vegar um Arnkötludal á næsta ári
verði lækkuð úr 400 milljónum
króna í 200 milljónir en að fjárveit-
ingin verði aukin að sama skapi á
árinu 2008. Forsætisráðherra sagði
að markmiðið með frumvarpinu
væri að jafna framkvæmdir
á milli ára og draga úr
fyrri áformum um fram-
kvæmdir á næsta ári í
ljósi þess að umsvif
þá yrðu meiri í þjóð-
arbúskapnum en
almennt var áætlað.
Það er verið að færa
fjárveitingar frá
2007 til 2008 út
af þenslu,” segir
Kristinn.
Hann bendir á
að í fjáraukalögum
2006 hafi verið af-
greidd tillaga um
eins milljarðs króna
fjárveitingu til fram-
kvæmda á Suðurlands-
vegi og Vesturlandsvegi.
„Það var rökstutt með því
að um öryggisaðgerðir væri
að ræða en þær á að framkvæma
á næsta ári, sama ári og verið er
Inil tafarlausa
tvöföldun
Suðurlandsvegar
Björgvin G. Sigurðs-
son, þingmaður
Samfylkingarinnar
gera veg sem þolir umferðina og
leysir af hólmi afleita vegarkafla. I
Bitrufirði hafa flutningabílar verið
að velta. Á síðasta vetri ultu þar
olíuflutningabíll og vöruflutninga-
bíll með stuttu millibili vegna þess
að vegarkanturinn gaf sig,” bendir
Kristinn á.
„Mér finnst það ekkert um-
ferðaröryggismál að setja
\ hringtorg í Mosfellsbæ
\ við afleggjarann til
' Þingvalla eins og mér
' skilst á embættis-
x mönnum að lík-
v lega verði gert á
Vesturlandsvegi.”
B j ö r g v i n
G. Sigurðsson,
þingmaður
Samfylkingar-
innar, krefst
þess að fram-
kvæmdir við
fjórar akreinar
milli Reykjavíkur
og Selfoss hefjist
strax. Segir hann
þrjár akreinar með vír
á milli í engu fullnægja
kröfum um aukið öryggi á
veginum og að samgönguráð-
herra verði að taka af skarið um
að slíkur vegur sé úr sögunni.
Framkvæmdum
í Arnkötludal
ýtt tll hllðar
Kristinn H. Gunn-
arsson, þingmaður
Framsóknarflokksins
■
að skjóta framkvæmdum um Arn-
kötludal til hliðar.”
Það er mat Kristins að fram-
kvæmdir í Arnkötludal séu brýnt
öryggisatriði. „Vegagerðin í Stranda-
sýslu er fólgin í þvl að
Finnst eðlilegt að íslenska sé töluð a þingi:
Nikolov vill ekki færast upp
„Ég ætla ekki að taka annað sætið,“
segir Paul F. Nikolov, frambjóðandi
Vinstri grænna, á Iýtalausri íslensku.
Samkvæmt kynjakvóta flokksins
á hann rétt á öðru sæti flokksins á
einhverjum framboðslista Vinstri
grænna á höfuðborgarsvæðinu. Það
sæti er talið öruggt þingsæti en Álf-
heiður Ingadóttir hafnaði í því sæti
í forvali flokksins sem fram fór um
síðustu helgi.
Gestur Svavarsson hafnaði sæt-
inu á þeim forsendum að kynjakvóti
hefði verið settur á til þess að jafna
hlut kvenna sérstaklega.
Talar íslensku Paul F. Nikolov,
frambjóðandi Vinstrihreyfingarinn-
ar-græns framboðs, taiar ágætis
fslensku og tætur ekki tungumálaörð-
ugleika aftra sér frá þingmennsku.
Nokkuð hefur verið rætt um und-
arlega stöðu ef Paul kæmist inn á
þing en samkvæmt þingreglum
verða þingmenn að tala íslensku.
„Ég er að sjálfsögðu miklu betri
í enskunni en ég er að ná góðum
tökum á íslensku,“ segir Paul. Hann
segir eðlilegt að tala eingöngu
íslensku á þingi enda móðurmál
flestra á íslandi. „Það er kannski
frekar spaugilegt að menn skuli
vera uppteknari af tungumála-
kunnáttu minni heldur en baráttu-
málum,“ segir Paul sem gæti orðið
fyrsti innflytjandinn á þingi.