blaðið - 08.12.2006, Blaðsíða 34

blaðið - 08.12.2006, Blaðsíða 34
HEiLAGRAR -1GUÐDÓMSINS Hþrenningar »6 biSKUpS 1693-1720} MAR jONSSOft 00 SKULt S. ÚIAFSSON tOKU SAMAN Hér eru svonefndir prestastefnudómar Jóns Vídaiíns sem gengu ó prestastefnum órin 1698-1720. Dómarnir veita innsýn í kirkjustjórn, varpa Ijósi ó hagi og heqðun presta og sióferðisástand íslensku þjóöar- innar. Einnig kemur fram harÓur óarein- ingur milli kirkju og veraldlegs valas. Leílin að tilgan^i lífsins VIKTOR E. FRANCL $E - 3 m 3 Is- (Q Q 3 (Q i? 5* Höfundurinn er austurrískur aeðlæknir. Hann leggur óherslu ó að í lífi sérhvers manns sé einstakur tilganaur sem hver og einn verði að finna. Frankl sat í fanga- búðum nasista og notar reynslu sína paðan sem undirstöðu kenninga sinna. HólmfríSur K. Gunnarsdóttir þýddi Fjallað er um hvernig veöur- og nóttúrufar breytist vegna hlvnunar jarðar og óhrif þess ó búsetuskilyrði ó mismungndi svæóum. Minnkun íss í NorSur Ishafinu mun valda breytingum ó byqgða- og sam- göngumynstri neimsins. Nú pegar hefur opnast aðgengi aÓ geysilegum olíuauð- ævum í Barentshafi og innan skamms mun flutningaleið milli Kyrrahafs oq Atlantshafs verÓa greiðfær risaskipum. ísíand kemst í þjóÓleio flutninga og nefur þaÓ bæði jákvæó og neikvæS óhrif. Bókin er öll í lit og í henni eru um 400 kort og myndir. Ýmsar kenningar hafa veriÓ uppi um eÓli og orsök lestrarerfiðleika. Höfundar vilja með þessu riti draga saman niSurstöSur helstu rannsókna um dyslexíu og varpa Ijósi ó hugmyndir fræSimanna um les- hömlun eins og þær birtast nú skömmu eftir aldamótin 2000. UMSKIPTIN N | g* ~ rl. 3 Umskiptin (Die Verwandlung), að öllum líkindum frægasta saga Franz Kafka, kemur út í þýðingu Ástróðs Eysteinssonar og Eysteins Þorvaldssonar, sem hafa þýtt fleiri verk Kafka. Sagan birtist hér í tvímóla útgófu, þannig aS lesendur hafa þýska frumtextann andspænis þeim íslenska. I formóla er fjallaö um höfundinn og verkið. Bækur sem lifa! HASKOLAUTGAFAN www.haskolautgafan.hi.is blaðið Aðventutónar Islandsdeild Amnesty International heldur aðventutónleika í Neskirkju við Hagatorg sunnudaginn 10. desember klukkan 20. Þar koma meðal annars fram Auður Gunnarsdóttir sópran, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Ellen Kristjánsdóttir. Fyrir börn á öllum aldri „Platan er einföld og einlæg og ég held að það séu einmitt þessir eiginleikar sem höfði hvað þest til barna." Idol-reynslan herti mig örgum er enn í fersku minni þeg- ar stúlka að nafni Rannveig Káradótt- ir kom fram á sjón- varsviðið í fyrstu Idol-keppninni sem haldin var hér á landi árið 2004. Hún þótti prýðileg söngkona og ljóst var að hún ætti eftir að láta mikið að sér kveða í íslensku tón- listarlífi. Á dögunum leit ljós plat- an Barnalög - Mig langar að læra en hún hefur að geyma átján lög og texta eftir Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson og Rannveig ljær plötunni rödd sína. „Ég söng nokkrar prufur fyrir Kristján og Svein Rúnar Sigurðs- son fyrir undankeppnina í Euro- vision. Það gekk mjög vel hjá okk- ur og þegar Kristján samdi við Tólf tóna um gerð þessarar barnaplötu þá var hann svo hrifinn af upptök- unum sem við gerðum að hann hringdi í mig og bauð mér verkefn- ið,“ útskýrir Rannveig þegar hún er spurð um upphafið að samstarfi þeirra Kristjáns. „Ég sló strax til enda leist mér ákaflega vel á verk- efnið. Ég hafði líka unnið mikið með börnum, meðal annars haldið utan um sunnudagaskólastarf í Ví- dalínskirkju í níu ár og unnið mik- ið í sumarbúðum þannig að þetta hentaði mér ágætlega.“ Plata sem eldist vel Aðspurð um hvort það sé mikill munur á því að vinna efni fyrir börn eða fullorðna segir Rann- veig að hún sé ekki frá því að það sé skemmtilegra að vinna að efni fyrir börn. „Þetta eru svo ótrúlega skemmtileg lög sem við erum að vinna með á plötunni að þetta gat aldrei orðið annað en gaman. Eg hlustaði á demóin, fékk lögin um leið á heilann og var farin að söngla þau í svefni," segir Ranveig hlæjandi og bætir við að plötuna prýði allt sem prýða skuli góða barnaplötu. „Platan er einföld og einlæg og ég held að það séu ein- mitt þessir eiginleikar sem höfði hvað best til barna. Því flóknari sem hlutirnir eru þeim mun leiðin- legri verða þeir. Lögin eru grípandi, laglínurnar einfaldar og textarnir hnyttnir. Einmitt vegna þessa þá held ég að platan eigi eftir að eld- ast ákaflega vel.“ Klassíkin í aðalhlutverki Rannveig hefur alla tíð haft mik- inn áhuga á tónlist og lærði með- al annars í mörg ár á þverflautu eins og heyra má á nýju plötunni, en hún bregður henni fyrir sig í nokkrum lögunum. „Ég var á átt- unda stigi þegar ég hætti að læra á þverflautu fyrir tveimur árum. Þetta var ákvörðun sem ég vissi að ég þyrfti að taka því ég ætlaði mér ekki að verða flautuleikari. Mig langar frekar að helga mig söngn- um.“ Hún segist vera afar fegin því að hafa tekið þátt í Idol-keppninni á sínum tíma enda sé það reynsla sem komi sér vel. „Ég var bara tví- tug þegar ég fór í Idolið og ég veit að það að þurfa að standa frammi fyrir fólki, syngja og fá dóma herti mig mikið og gerði mig öruggari í því sem ég er að gera. Núna er ég að læra klassískan söng og ég þarf oft að fara í áheyrnarpróf fyrir óperur og annað. Mér finnst lítið mál að koma fram og láta dæma frammistöðu mína og það þakka ég Idol-reynslunni.“ Þó Rannveig hafi að mestu helgað sig klassísk- um sögn segist hún ekki alveg til- búin til að sleppa öllu hinu. „Mér finnst frábært að syngja popp, gospel og djass og mun halda því áfram meðfram hinu. En því mið- ur getur maður ekki gert allt í einu og ég hef ákveðið að einbeita mér að klassíkinni að svo stöddu,“ seg- ir söngkonan unga. Hjálpið til við að dreifa myndlist Um helgina eru síðustu forvöð að sjá sýningu Helgu Óskarsdóttur í Kling og Bang á Laugavegi 23 en henni lýkur á sunnudag. „Sýningin er einskonar gjörningur þar sem ég er að biðja gesti um að taka þátt í að dreifa myndlist. Ég bjó til rúmlega 300 litla skúlptúra sem allir eru svipaðir að stærð og lögun sem fólk getur tekið með sér af sýningunni og ráðstafað að vild. Skúlptúrarnir eru nú á víð og dreif um borgina á öllum mögulegum og ómöguleg- um stöðum enda ímyndunaraflið það eina sem setur fólki takmörk þegar að því kemur að dreifa mynd- listinni." Helga ætlar að halda ævin- týrinu áfram og dreifa skúlptúrun- um sínum víða um heiminn. „Ég hef augastað á London og ég hugsa að það verði næsti áfangastaður en það mál er í vinnslu," segir Helga og hvetur alla til að heimsækja Kling og Bang um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.