blaðið - 08.12.2006, Blaðsíða 46
blaðió
FÖSTUDAG^
pEMBER 2006
Stórt og smátt
Vissir þú aö karlkyns rottur sem hafa
stærri kynfæri hafa smærri heila?
Hvort þetta eigi viö um allar dýrateg-
undir er ekki vitað.
Ekki telja kindur
Rannsókn sem gerð var árið 2002 sýndi fram á að sú iðja að telja kindur til
þess að flýta fyrir syfju og svefni hefði ekki tilætluð áhrif. Ástæðan er sú að
þetta er svo leiðinlegt að önnur mál sem valda hugarangri eiga auðveldara
með að koma upp á yfirborðið og halda vöku fyrir fólki.
í piparsveinaeldhúsinu er að
þessu sinni staddur Ásgeir Kol-
beins, þáttastjórnandi á Sirkus.
Ásgeir hefur í nógu að snúast
en sá sér þó fært að aðstoða
aðra piparsveina með því að
setja fram leynilega kjúklinga-
uppskrift sem að sögn svíkur
engan og aðrir lesendur Blaðs-
ins ættu einnig að njóta góðs af.
Misskilningur
Gjarnan er talað um hitt og þetta sem
karlar þola illa í fari kvenna og sömu
sögu er að segja um ýmsa karllæga
eiginleika sem geta gert út af viö konur.
En allt hlýtur þetta að eiga sér einfalda
útskýringu. Hérna eru nokkur atriði, sem
talin eru frekar eiga við konur, sem karl-
menn eiga erfitt með að þola. En er þetta
ekki allt saman byggt á misskilningi?
Þær eiga það til að vera
of tilfinningaríkar
Sumar tárast yfir öllu og engu hvort
sem það er sorgleg bíómynd eða brotin
fingurnögl. Ástæðan fyrir þessu er sú
aö mörgum karlmönnum finnst erfitt að
hugga og þess vegna gerir kvenmanns-
grátur þá varnarlausa.
Þær eru of kaupglaðar
Kona með kortið á lofti getur verslað eins
og vindurinn og geta konur eytt dögum
saman í að skoða, kaupa, skima og
hanga í almennilegri verslun. Ástæðan
fyrir þessu er sú að konur eru í eðli sínu
safnarar. Þessu verður víst að kenna
formæðrum kvenna um, sem sátu heima
og söfnuðu herjum og fræjum á meðan
karlarnir eyddu timanum við veiðar og
höfðu því aðeins eitt takmark eins og
þeir gera þegar þeir fara inn í búð. Það er
alltaf gert í ákveðnum tilgangi.
Þær tala mikið
Oft er sagt að karlmenn hafi aðeins
takmarkaöa athyglisgáfu og því geti
verið erfitt fyrir þá að fylgja eftir löngum
frásögnum. Þeirra feill en ekki kvenna.
BMId/Eyþór
Uppskrift:
Doritos-kjúklingaréttur
Þessi er fyrir alla, ótrúlega einfaldur
en bragðast samt eins og þú hafir
eytt hálfum degi í að gera hann.
Kannski bara rugl að vera að kjafta
frá honum, en jæja það er gott ef
fleiri geta notið góðs af honum.
Fullt nafn: Ásgeir Kolbeinsson
Aldur: 31 árs
Andlegur aldur: 2980 ára
Starf: Þáttastjórnandi á Sirkus
Fyrirmynd í lífinu: Foreldrar mínir. Það
er ekki hægt að eignast þá betri.
Að vinna á togara eða við blómaskreyt-
ingar: Ég efast um að ég kæmist úr höfn
áður en ég yrði grænn af sjóveiki. Væri
samt meira hafður í blómabúðinni til að
spjalla við stelpurnar sem þangað kæmu.
Þú vilt ekki aö ég búi til skreytingu, það
er klárt mál.
Eru skór til að ganga á? Nei, bara alls
ekki. Þeir eru til að ganga í.
Myndirðu nota Men Expert Power Buff
Anti-Roughness Exfoiiator? Þetta er
ekkert smá nafn..www.google.com....
Heyrðu, já okey. Þetta er örugglega eitt-
hvað sem er fínt þegar ég fer að beyglast
eitthvað.
Ertu hræddur við skordýr? Bara þessi
sem elta mann, eins og geitunga. Maður
hreyfir sig og þeir elta... heyrðu, og líka
köngulær sem hanga á manni. Slepþa
bara ekki. Talandi um ást við fyrstu sýn.
Notarðu nefhársklippur? Já, klárlega.
Það er ein besta uppfinning síðari ára.
Áttu safn af skurðarhnífum og wok-
pönnu i eldhúsinu?
Já, það er algjör staðalbúnaður í eldhús-
inu. Nóg af pottum, pönnum og hnífum.
Finnst þér gaman að baka kökur?
Það er frábært með syni mínum. Rústa
eldhúsinu með súkkulaði á nefinu og
hveiti í hárinu, það getur ekki verið neitt
nema gaman.
Ferðu eftir uppskriftum? Já og nei.
Meira svona hugmyndum frá vinum og
kunningjum.
Rakarðu þig annars staðar en fyrir
ofan axlir? Raka? Nei, nei, ég nota auð-
vitað plokkara.
Hvað er kynþokki? Adriana Lima Vic-
torias Secret módel er dæmi um massa-
kynþokka. Skoðið hana og þá skiljið þið
hvað kynþokki er.
Hvað ertu að gera í kvöld? Ég er að
vinna fram á kvöld, en síðan er planið að
slaka á og hafa það rólegt í sófanum með
góða bók.
Færðu oft fólk i mat?
Já, ansi oft. Mér finnst fátt skemmtilegra
en að fá fólk í mat.
Borðarðu oft úti?
Já, reyndar. Þegar maður er mikið á
hlaupum og býr einn þá gerir maður
mikið af því að borða úti. Ætii ég borði
ekki úti svona 2-3 sinnum í viku.
Hvað bjargar deginum?
Kvöldstund með fjölskyldu minni. Það
er eðal.
Hvaða bækur ertu að lesa?
Ég er að lesa núna Munkinn sem seldi
sportbílinn sinn og síðan er ég að byrja á
einni bók eftir Dalai Lama
1 poki af
appelsínugulum Doritos
4-6 kjúklingabringur
2 dósir af salsasósu
(mild, medium,
heit, eftir smekk)
2 dósir af ostasósu
(mild, medium,
heit, eftirsmekk)
1-2 pokar af rifnum osti
(allt eftirhvað þú
ert mikið fyrir ost)
Þær gagnrýna
Sumar konur eiga það til að gagnrýna
aðrar konur. Þetta er misskilningur,
konur gagnrýna ekki bara aðra
kvenmenn heldur líka
karlmenn.
Mylur Doritos í pokanum alveg í
mauk. Dreifir úr maukinu í botninn á
eldföstu móti. Smyrð salsasósunni
yfir maukið og siðan ostasósunni.
Léttsteikir kjúklinginn á pönnu og
skerð í bita sem þú ýtir ofan í sósuna
og maukar þannig að sósa hylji
kjúklinginn að fullu. Stráir ostinum
yfir og bakar í ofni við 180 gráður í
svona 20-25 mínútur. Gott er að láta
kjúklinginn liggja í sósunni í mótinu
vel áður en hann er settur í ofninn til
að hann fái i sig bragð úr sósunum.
Ef ekki gefst tími til þess þá er gott
að krydda hann á pönnunni þegar
hann er steiktur.
Þær tala
undir rós
Það er líklega
ekki rétt. Þetta
er bara spurning
um orðaforða en
konur hafa öflugri
orðaforða en menn
og því bendir allt til
þess að karlmenn
skilji einfaldlega
ekki allt sem sagt
er og haldi því að
verið sé að tala
undir rós.
Síðan erþetta borið fram með hrís-
gijónum, hvítlauksbrauði og salati.
Allt eftir smekk.
Snyrtibuddan
Maskari
Nýr Chanel-maskari
með tegund af bursta
sem hefur aldrei
sést áður. Burstinn
er úr sérstöku efni
sem þykkir, lengir
og brettir upp
á augnhárin og
gerir þau fallega
löguð. Augnhárin
fá aukinn glans,
aðskiljast vel og
klessast ekki.
Farði
Ótrúlega léttur
og góður farði frá
Marbert sem fellur
vel inn í húðina en
hylur hana vel engu
að síður. So Natural-
farðinn helst vel
á og er tilvalinn til
nota bæði kvölds
og morgna og gerir
húðina silkimjúka
og jafna.
Gloss
Flott, Ijóst appels-
ínugult gloss frá
Gosh sem helst vel á
vörunum og klessist
ekki. Tilvalið bæði
eitt og sér eða þá til
að blanda við annan
lit. Gloss sem gefur vör-
unum fallegan gljáa.
Resurface Peel
Nýjung frá Lancöme sem endurnýjar húðina á
svipstundu. Resurface Peel er örugg en áhrifa-
rík meðferð sem endurnýjar húðina á nokkrum
minútum. Tilvalið fyrir þær sem hafa áhyggjur
af þreytulegri húð, opnum svitaholum, brúnum
blettum eða finum línum.
lancömb
Ilmvatn
Ótrúlega góður ilmur frá Cacharel. Noa
Perle-ilmurinn er mjúkur og ferskur, ákveð-
inn og munúðarfullur. Angan af blómum og
ávöxtum gerir Noa Perle kvenlegan og kyn-
þokkafullan ilm sem hentar öllum konum.