blaðið - 08.12.2006, Síða 42
Pynta aðdáendurna
Þjálfari Manchester United, Alex Ferguson, sagöi
við fjölmiðla eftir sigurinn á Benfica i Meistara-
deildinni að liðið virtist pynta áhangendurna og
starfsmenn liðsins. „Það var ekki fyrr en eftir
fyrsta markið sem við hófum leikinn. “
42 FÖSTUDAGUR 8,
Sigurður Ragnar og Guðni
Kjartansson Munu stýra kvenna-
landsliðinu ígegnum forkeppni EM
Sigurður Ragnar þjálfari kvennalandsliðs:
Ráðinn til
tveggja ára
■ Guðni Kjartansson verður aðstoðarþjálfari
■ Ætla á EM í Finnlandi 2009
Knattspyrnusamband íslands hefur
ráðið Sigurð Ragnar Eyjólfsson sem þjálf-
ara kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Sig-
urður tekur við starfinu af Jörundi Áka
Sveinssyni sem hefur stýrt liðinu frá því
í maí 2005. Guðni Kjartansson er ráðinn
sem aðstoðarþjálfari Sigurðar en Guðni
er einn reynslumesti þjálfari landsins og
hefur stjórnað flestum landsliðum íslands
í gegnum tíðina. Tvíeykið er ráðið til næstu
tveggja ára og munu þeir stýra liðinu í
næstu Evrópukeppni.
Sigurður Ragnar hefur frá árinu 2002
verið fræðslustjóri KSl og mun hann sinna
því starfi samhliða starfi landsliðsþjálfara.
Sigurður Ragnar á að baki farsælan feril þar
sem hann hefur verið atvinnumaður í knatt-
spyrnu bæði í Englandi og Belgíu. Sigurður
lagði skóna á hilluna haustið 2005 eftir að
hafa leikið út tímabilið með liði ÍA.
Sigurður segir verkefnið mjög spennandi.
,Þetta er mjög spennandi starf og mikil
áskorun. Liðið hefur verið nálægt því að
komast áfram í úrslitakeppninni en vantar
einhvern herslumun upp á og við þurfum að
finna út hvað það er sem hefur vantað upp
á.“ Hann segir að enn sé of snemmt að fara
íSA
að boða einhverjar áherslubreytingar varð-
andi liðið. „Ég á eftir að fara í leikmanna-
málin mjög fljótlega og ræða við leikmenn
sem hafa verið í landsliðinu og sjá hverjir
gefa kost á sér áfrarn."
Siguður segir að hann hafi fylgst vel með
kvennalandsliðinu undanfarin ár og sé því
vel kunnugur hópnum. „Maður mætir á
alla landsleiki hérna heima og ég hef meira
og minna fylgst með kvennaboltanum
síðan 1992.“ Verkefni Sigurðar og Guðna
er að stýra liðinu í gegnum undankeppni
EM sem hefst á næsta ári. Liðum í úrslita-
keppninni hefur verið fjölgað úr átta í tólf
frá síðasta móti og þar sem íslenska liðið
er í tíunda sæti yfir sterkustu Evrópuþjóð-
irnar í kvennaknattspyrnu verður að segja
að möguleikar íslands á að komast í úrslita-
keppnina séu ágætir. „Það náttúrlega eykur
möguleika okkar að það er búið að fjölga
liðunum en samt sem áður þurfum við að
sýna og sanna að við eigum heima í þessum
hópi. Maður gefur lítið út á einhverja styrk-
leikaflokka og þessa lista sem eru gefnir út
af FIFA um hvar maður er í röðinni
því maður þarf alltaf að sanna það
inni á vellinum."
Skeytin inn
Chelsea neitar fregnum
um að Andriy Shevc-
henko sé tilbúinn að
færa sig um set ákveði þjálfar-
inn Jose Mourinho að hann
henti ekki liðinu. Andriy
sem skrifaði undir tæp-
lega 4,2 milljarða samn-
ing í maí sagðist tilbú- mj
inn að pakka niður og
fara aftur til Ítalíu. í
herbúðum Chelsea er sagt að
ummæli Andriy hafi verið
mistúlkuð í viðtali við rúss-
neskt tímarit. Sá úkraínski
hefur verið orðaður við
ítalska liðið AC Milan, en
sagt er að Shevchenko
hafi sagt: „Mér líður
eins og heima hjá mér
og mér finnst að Chelsea sé
liðið mitt. En því miður hentar
leikhæfni mín ekki Mourinho.“
Þá bætti hann við: „Roman Abr-
amovich er vinur minn en það
eina sem hann gat gert var að
krefjast þess að lána mig í stað
þess að ég yrði seldur."
Hér kostar auglýsingin
í 100.000 eintökum
miðast við 80 slög án myndar
Keypt og selt
TIL SÖLU
Þjónusta
Bjóðurn uppá
frábæra
kokkafatnaðinii frá
Karlowsky.
KARLO ehf.
Kirkjuluiuli 19 Gbæ.
Simi: 565-9328
www.rokras.is
Tölvuþjónusta - Fyrirtæki
Þjónustum fyrirtæki með 1-30 tölvur. S:
615-2000 www.tolvudeildin.net
SPÁDÓMAR
Englaljós 9085050 Símaspá, tarrot,
andleg leiðsögn. Bið fyrir þeim sem
þurfa. Trúnaður. opið 12-02 eftir miðn.
Lára spámiðill.
Spásíminn
908-6116
Sirrý
Heilsa, ástir, fjármál
Einkatímar 845-4009
ÍÐNAÐARMENN
KJARNABORUN
STEINSÖGUN
MÚRBROT
æðisleg jólagjöf Hágæða ekta
kristalsljósakrónur, mikið úrval,
frábær verð. Sigurstjarnann Fákafeni (
bláuhúsin) opið 11-18 virka daga. lau.
11-16 sun 13-18. S:5884545
Vmislegt
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ
NÁMSKEIÐ VIKULEGA
Staöstetning Mjódd
www.ovs.is
e
ttkn-DguinmiDélastóliraEhf.
UPPLÝSINGAR OG INNRITUN í SI'MA 894 2737
Tilsölu
Via getum bætt vlð
akkur verkefnum
strax og fram að júlum,
tökum ad okkur
innanhús málun, smíðar,
slípun,ng
parketilagnír ásamt
mörgu fleira.
Uppl í síma BG03B14
Hafsteinn
Daníelsson ehf.
Sími: 862 8874 -433 8949
Málari Getur bætt við sig verkefnum.
öll almenn málíngavinna og spörslun.S:
8209265
Heilsa
HEILSUVÖRUR
Betri heilsa - betra líf!
Þú léttist með Herbalife.
Persónuleg ráðgjöf og
stuðningur.
S. 892 8463 & 868 4884.
Tómstundir
FYRIR VEIÐIMENN
TILBOÐ Á
FLUGUVEIÐISETTI
• 9,5 fct, lína 7,3 partar, vönduð stöng
í hólk. mcö ábyrgð.
• Largc arbor lijól mcö diskabrcmsu
og 3 aiikuspólum.
• WF 7 sökklína og undirlínu.
• 3 lykkjur.
• 2 Taumaspólur.
• 50 st (lugur.
’ r“ska-
• Kastlciðbciningar. .
Verð aðeins kr. 18.900.-
Vesturröst
Sérverslun v e i ö i m a n n s i n s
Laugavegi 178-105 Reykjavik
Sími: 551 6770 - www.vesturrost.is
•lálaaiðf
veiðimannsins
O_______
Felulitagalli
það nýjasta
ídag
Vesturröst
Sérverslun veiðimannsins
Laugavegi 178 -Símar5516770
www.vesturrost.is
Bílar og farartæki
BÍLARTILSÖLU
Corolla Sol '04 Ekinn 28þ.km.
Sjálfskiptur ofl. Uppl. f 5:6954777
cAGvfeRJCI^
Verð aðeins.
29.700.-
Ein allra bestu kaupin sem hægt er að gera í pumpu í dag
SPORTVORUGERÐIN SKIPHOLTI 5 562-8383