blaðið - 08.12.2006, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
SRI LANKA
Tíu nemendur særðust
Tíu nemendur saeröust þegar uppreisnarmenn úr
röðum Tamíltígra réðust á skóla í norðausturhluta Srí
Lanka í gær. Ný og harðari hryðjuverkalög tóku gildi
á miðvikudaginn sem gefa yfirvöldum víðtækari heim-
ildir til aðtiandtaka og hafa grunaða lengur í haldi.
es
Vatn á Mars?
Nýjar myndir teknar af yfirborði Mars benda til þass
að fljótandi vatn hafi runnið á yfirborði reikistjörn-
unnar. Bandaríska geimvísindastofnunin segir þetta
styðja tilgátur um að vatn í fljótandi formi kunni að
finnast undir yfirborðinu og leka út öðru hverju.
píTOCTÍBIíf' ,
Varð undir IKEA-kerru
Fimm ára rússneskur drengur lést þegar hann varð undir IKEA-kerru
með tvö hundruð kíló af vörum, sem móðir hans missti stjórn á í bænum
Novgorod í Rússlandi í fyrradag. Verslunin var opnuð á mánudaginn, en
dómstóll hefur skipað eigendum verslunarinnar að loka henni í þrjátíu
daga á meðan farið er yfir öryggismál verslunarinnar.
Opnunartimi:
Virka daga 16-22
Um helgar 12-22
Hækkaðu þig
upp um einn
PflPINOS
Reykjavíkurvegi 62
Hafnarfirði
Núpalind 1
Kópavogi
Hverafold 1-5
Grafarvogi
KAURA/SEUA
| SMÁAUGLÝSINGAR 5103737 blaðiðaai
Flugvél í Bandaríkjunum:
Kona prumpaði
og vélinni lent
Bandarísk flugvél á leið til
Dallas neyddist til að nauðlenda
í Nashville eftir að farþegi
reyndi að fela prumpulykt sína
með því að kveikja á eldspýtu.
Vélinni var lent í Nashville eftir
að fjöldi farþega hafði tilkynnt
flugfreyjum um að þeir fyndu
fyrir brennisteinslykt í vélinni.
Alríkislögreglan yfirheyrði far-
þega eftir lendingu þar sem kona
viðurkenndi að hafa kveikt í eld-
spýtu til að fela prumpulykt sína.
Eftir yfirheyrslurnar hélt vélin
för sinni áfram, en konunni var
þó ekki hleypt aftur um borð.
V.
I.
S A
✓ /
icelandic
fish & CHIPS
VIÐ OPNUM
KLUKKAN 11
í DAG
lcelandic fish & chips organic bistro
Tryggvagötu 8# 101 Rvk. S. 511 11 18
Afgreiðslutími frá 11.00 - 21.00
Kærður fyrir árás Fjölskyldufaðir-
inn Steinar Sörensson hefur verið
jk kærður fyrir að ráðast á starfs-
Ósáttur fjölskyldufaðir missti þolinmæðina:
Skrifstofumaður
kærir líkamsárás
VÍS vísar ásökunum fjölskylduföður á bug
■ Missti stjórn á skapi sínu
Eftir Val Grettisson
valur@þladid.net
„Við vísum þessum ásökunum al-
farið á bug,“ segir Ásgeir Baldurs,
framkvæmdastjóri VÍS, vegna ásak-
ana Steinars Sörenssonar sem hélt
því fram í viðtali við Blaðið í gær að
félagið reyndi að koma sér undan
að borga tryggingar vegna elds-
voða. Eldurinn kom upp í íbúð fyrir
neðan Steinar í júlí síðastliðnum og
urðu allnokkrar skemmdir vegna
sóts og reyks.
Deilur Steinars og VfS hafa verið
harðar. Ásgeir staðfestir að Steinar
hafi verið kærður fyrir að ráðast
á starfsmann tryggingafélagsins.
Steinar er sagður hafa gripið um
höfuð fórnarlambsins og reynt að
slengja því í skrifstofuborð. Það
tókst ekki en átökin stöðvuðust
ekki fyrr en annar starfsmaður
skarst í leikinn. Kona og barn Stein-
ars munu hafa verið á skrifstofunni
þegar atvikið átti sér stað.
Fyrir utan átök við starfsfólk fé-
lagsins hefur Steinar sent bréf með
sinni hlið á málinu á tuttugu þús-
und netföng. Þar gagnrýnir hann
VfS harðlega.
„Við höfum farið þess á leit að
fá dómkvadda matsmenn hjá Hér-
aðsdómi Reykjaness," segir Ásgeir
en tryggingafélagið vill meina að
þær bætur sem greiddar voru til
Steinars hafi verið réttar. Steinar
fullyrðir í Blaðinu í gær að þær hafi
verið of lágar og ekki í samræmi við
orð tryggingamatsmanns sem gerði
Vísar ásökunum á bug Ásgeir
Baldurs, framkvæmdastjóri VÍS,
segir ásakanir á hendur félaginu
með öllu ósannar og vill dómkvadda
matsmenn.
úttekt á skemmdum íbúðarinnar.
Alls fékk Steinar rúmar tvær millj-
ónir úr tryggingum en sjálfur gerði
hann íbúðina upp fyrir tæpar sex
milljónir.
„Við viljum farsæla lausn á þessu
viðkvæma máli og okkur finnst
leiðinfegt að það skuli vera orðið að
fjölmiðlamáli,“ segir Ásgeir. Hann
segir félagið borga tryggingabætur
daglega fyrir 25 milljónir króna og
reyni alls ekki að koma sér undan
ábyrgð.
„Ég missti bara þolinmæðina
vegna dónaskapar og skætings,“
segir fjölskyldufaðirinn Steinar Sör-
ensson um kærur á hendur sér fyrir
líkamsárás. Hann segir baráttuna
við félagið hafa verið afar harðvít-
uga en bendir á að hann hafi sent
manninum sem hann réðst á tölvu-
póst þar sem hann baðst afsökunar
á framferði sínu. Hann fékk aldrei
svar við þeim pósti.
Málið bíður afgreiðslu hjá Héraðs-
dómi Reykjaness en þá verður ljóst
hvort dómkvaddir matsmenn verði
kallaðir til.
Skýrsla íraksnefndarinnar:
Olmert segir nei
Ehud Olmert, forsætisráðherra
fsraels, hafnar nýjum tillögum
bandarísku fraksnefndarinnar sem
skilaði lokaskýrslu sinni í gær. Olm-
ert sagði ekki rétt að tengja deilu Pal-
estínumanna og ísraela við ástandið
í frak. „Okkur finnst það ekki rétt
og við lítum á það öðrum augum að
tengja atburðina í frak við það sem
á sér stað í Mið-Austurlöndum.“ Þá
útilokaði Olmert einnig friðarvið-
ræður við Sýrlendinga.
Tillögur nefndarinnar ganga
meðal annars út á að ísraelar hefji
viðræður við Sýrlendinga, Líbana
og Palestlnumenn. Með samstilltu
átaki megi ná sáttum í deilu ísraela
við nágrannaríki sín sem muni svo
leiða til þess að ástandið í írak fari
Rannsóknarnefnd um ástandið
í írak Leggur til að Israelar hefji
viðræður við Sýrlendinga, Líbana og
Palestínumenn.
batnandi. Sýrlendingar hafa lýst
því yfir að þeir séu reiðubúnir til
viðræðna og fagna tillögum nefnd-
arinnar um að Sýrlendingar og ír-
anar komi að því að lægja öldurnar
í írak.