blaðið - 08.12.2006, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006
blaðiö
Stefanía Katrín Karlsdóttir
lœtur afstarfi bœjarstjóra í Árborg
eginum
Stefanía Katrín Karlsdóttir
stóð úti í miðri Vatnsdalsá
með veiðistöng í hönd þegar
henni bauðst að taka við
starfi bæjarstjóra Árborgar í byrjun
júní í sumar. Eftir að hafa ráðfært
sig við fjölskylduna ákvað hún að
láta slag standa.
„Ég fékk svona tvo til þrjá klukku-
tíma til að hugsa mig um, ekki
mikið meira en það. Það þýddi ekk-
ert annað en að stökkva á þetta enda
var þetta spennandi verkefni þannig
að ég hugsaði mig ekki lengi um og
hafði svo sem ekki tækifæri til þess
heldur,“ segir Stefanía.
„Ég keypti hús á Selfossi í ágúst,
fékk það afhent í september og flutti
í október þannig að ég var nýflutt
og var ekki einu sinni búin að taka
upp úr kössunum," segir Stefania en
sem kunnugt er var henni sagt upp
störfum sem bæjarstjóra í kjölfar
þess að það slitnaði upp úr meiri-
hlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks í síðustu viku.
Mismunandi fiskar á færibandinu
Sá tími sem Stefanía gegndi starfi
bæjarstjóra var að hennar mati af-
skaplega skemmtilegur þó að hann
hafi verið stuttur og verkefnin
fjölbreytt.
„Það átti alveg við mig að vera að
vasast í öllu mögulegu. Eins og gefur
að skilja þarf maður að fást við allt
þegar maður stýrir stóru sveitarfé-
lagi, allt frá minnstu smáatriðum
upp í risastór verkefni hvort sem
það er rekstur grunnskóla eða skipu-
lagsmálin. Þetta er stækkandi sveit-
arfélag og maður þurfti að setja sig
inn í málin, verkefnin og reksturinn
og það tókst vel og hratt.
Ég vann svo lengi í fiski í gamla
daga ogþað voru mismunandi fiskar
á færibandinu en vinnulagið og að-
ferðafræðin var alltaf svipað sama
hvað maður var að fást við. Þetta eru
bara mismunandi verkefni eða mis-
munandi fiskar á færibandinu.
Áður var ég rektor Tækniháskóla í s-
lands og þar þurfti ég að fást við allt
önnur verkefni en maður lærir bara
inn á verkefnin og málaflokkana,“
segir Stefanía og bætir við að hún
búi yfir mikilli aðlögunarhæfni.
„Ég er mjög fljót að setja mig inn
í mál sem ég þekki ekkert fyrir og
átta mig á hlutunum. Maður er
alltaf að læra eitthvað nýtt og kann
að afla sér þekkingar. Maður lagar
sig að því umhverfi sem maður er í
hverju sinni,“ segir Stefanía.
Þekkti ekki nokkurn mann
Stefanía er Jökuldælingur að upp-
runa og hafði engin tengsl við Ár-
borg eða Suðurland áður en hún tók
við starfi bæjarstjóra.
„Ég þekkti varla nokkurn mann og
þekkti einungis til á Suðurlandi sem
hver annar íslenskur ferðamaður.
Mér fannst það ofboðslega mikill
kostur að koma inn í þetta samfélag
og vera ekki með neina fortíð í samfé-
laginu. Þá gat maður horft hlutlaust
á hvert einasta mál. Ég þarf ekki að
draga taum af neinu öðru sem gæti
tengst þessu hvort sem það eru vinir,
fjölskylda eða eitthvað annað. Við
vitum að í svona litlum samfélögum
eru tengslin og nálægðin miklu
meiri og því er oft flóknara að tak-
ast á við málin.
Það gekk mjög vel að aðlagast
þessu samfélagi og ég er afskaplega
þakklát fyrir þetta tækifæri sem
ég fékk þó að stutt hafi verið. Það
er yndislegt fólk sem er þarna og
skemmtilegt. Ég var flutt þarna og
búin að kynnast fullt af afbragðs-
fólki og sá fyrir mér góða tíma fram-
undan með þessu samfélagi,“ segir
Stefanía.
Það er erfitt að rífa
krakka upp ogfara
með þá fram og til
baka. Eg er samt bjart-
sýn á að við vinnum
okkur út úr þessu eins
og hverju öðru.
Áfallið tengist aðallega
fjölskyldunni
Hún segir að mesta áfallið við
hinar nýju aðstæður tengist fjöl-
skyldunni og raskinu sem flutning-
unum fylgi.
„Ég er með tvær dætur á ung-
lingsaldri, önnur er í unglingadeild
grunnskóla en hin á fyrsta ári í
menntaskóla. Núna erum við að
flytja aftur til baka og ætlum að
klára það i næstu viku. Það er erfitt
að rífa krakka upp og fara með þá
fram og til baka. Ég er samt bjartsýn
á að við vinnum okkur út úr þessu
eins og hverju öðru. Þetta er bara
verkefni til að leysa,“ segir Stefanía.
„Auðvitað er það áfall að þessi
meirihluti sem var kominn til starfa
hélt ekki lengur út. Þetta voru mjög
gefandi og spennandi verkefni sem
þessi meirihluti var búinn að setja
fram sem þeir ætluðu að gera á kjör-
tímabilinu þannig að ég sé náttúr-
lega eftir því í sjálfu sér vegna þess
að þarna var spennandi verk fram-
undan,“ segir hún.
Kom verulega á óvart
Að mati Stefaníu býr bæjarstjóri
alltaf við ótryggt starfsumhverfi
þegar tveir eða fleiri flokkar mynda
meirihluta í bæjarstjórn. Sú hætta er
alltaf fyrir hendi að upp úr samstarf-
inu slitni.
„Ef ég hefði verið ráðinn bæjar-
stjóri þar sem einn flokkur væri í
meirihluta væri það að mínu mati
mun tryggara starfsumhverfi. Það
slitnar alltaf öðru hverju upp úr sam-
starfi flokka. Ég gerði mér því alveg
grein fyrir því strax í upphafi að
þetta væri ekki alveg það öruggasta
sem ég færi inn i. Mér fannst það
allt í lagi vegna þess að verkefnin
sem biðu mín voru mjög spennandi
og skemmtileg og starfsumhverfið
skemmtilegt. Eg gerði mér þó ekki
grein fyrir því að ég myndi ekki ná
að taka upp úr kössunum," segir
Stefanía og bætir við að aðdrag-
andinn hafi verið mjög stuttur að
meirihlutaslitunum.
„Auðvitað eru menn ekki alltaf
sammála og í hvaða starfi eru menn
alltaf sammála? Menn leysa bara
sín vandamál. Menn ræða málin
og komast að niðurstöðu. { þessu
meirihlutasamstarfi eins og öllum
öðrum koma alltaf svolítið ólík sjón-
armið fram en menn leysa málin.
Þess vegna kom það okkur verulega
á óvart að þetta skyldi enda svona
snögglega með þessum hætti. Ég
ætlaði satt best að segja ekki að trúa
því að þetta myndi gerast að Fram-
sóknarflokkurinn tæki þá ákyörðun
að slíta samstarfinu. Það var algjör
þruma úr heiðskíru lofti þegar þetta
gerðist," segir Stefanía.
Frá því að upp úr meirihluta-
samstarfinu slitnaði hafa ásakanir
gengið á milli Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks um ástæður
slitanna. Deilur um skipulagsmál
á tveimur reitum í bænum eru
einkum nefndar í þessu sambandi
en einnig hefur verið bent á ágrein-
ing um hækkun launagreiðslna til
bæjarfulltrúa og nefndafulltrúa.
„Menn voru búnir að ræða mikið
saman og ég leit ekki á það að þetta
væri í einhverjum óleysanlegum
hnút. Ég lít ekki á vandamál sem
vandamál heldur sem verkefni sem
við reynum að leysa þannig að ég
hafði trú á því að það hefði verið
hægt að leysa þetta.
Við sambandsslit er oft allt tínt
til og ég vil meina að þessi tvö mál
hafi komið fram í dagsljósið sem
stóru málin. Sjálfstæðismenn vildu
fara aðra leið varðandi launamálin
eins og fram hefur komið, í það
minnsta fresta hækkun launa og
greiða íþróttastyrki til allra barna á
grunnskólaladri. Það var sama þar
og með skipulagsmálin að menn
náðu ekki samkomulagi um það.
Eins og staðan er núna er það óleyst
mál vegna þess að samstarfinu lauk,“
segir Stefanía.
Tek þessu ekki persónulega
Sama dag og upp úr samstarfinu
slitnaði hófust viðræður framsókn-
armanna við fulltrúa Samfylkingar
og Vinstri grænna um nýjan meiri-
hluta. Sjálfstæðisflokkurinn reyndi
einnig að koma á meirihlutavið-
ræðum en niðurstaðan varð sú að