blaðið

Ulloq

blaðið - 08.12.2006, Qupperneq 40

blaðið - 08.12.2006, Qupperneq 40
A Kanarí yfir jólin Heimir Karlsson segír ad jólamaturinn verði eflaust svolítid sérstakur i ár þar sem fjölskyldan verdur á Kanarieyjum yfir jólin. FOSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006 Nammi namm Það er nauðsynlegt að fá smá bökunarlykt í húsið á aðventunni. Fyrir þá sem hafa ekki tíma til að baka er hægt að kaupa tilbúið smákökudeig, það eina sem þarf er að skera það niður og setja í ofninn. ■ blaöiö Svangir sveinar Jólasveinarnir fara á stjá innan skamms til að gleðja þæga krakka. Þeir verða ansi oft svangir á ferðum sínum og því er ekki úr vegi að skilja eftir handa þeim mat í gluggakistunni, skyr, bjúgu og fleira. ólamatur Heimalagað góðgæti Skemmtilegustu gjafirnar eru jafnan þær sem eru heimatilbúnar enda er augsýnilega lagt hjarta og sál í slíkar gjafir. Að sama skapi er tilvalið að búa til eitthvað matarkyns til að gefa í jólagjöf, ekki síst fyrir matgæðinga. Hvort sem það eru kökur, konfekt, sultur eða annað þá er skemmtilegt að fá heimatilbúna gjöf og gaman að gefa. Ef ætlunin er að gefa eitthvað sem geyma má í krukku er tilvalið að finna til fallega krukku og skreyta hana, annað hvort með málningu eða einhverju efni. Kökur og konfekt má setja í fallegt box sem má líka búa til heima. Það er margt sem má gera, það eina sem til þarf er ímyndunaraflið. Hollar jólauppskriftir Það er heilmikið sætindaát sem fylgir jólahátíðinni með tilheyrandi aukakílóum og sykursjokki. Það er óþarfi að sniðganga al- gjörlega sætindi um hátíðirnar en þess í stað er hægt að borða hollari sætindi. Það væri því ekki úr vegi að reyna að minnka sykur og önnur sætindi í kökum en nota þess í stað hollari hráefni. Oftast má aðlaga flestar uppskriftir og gera þær töluvert hollari, stundum er hægt að nota heilhveiti í stað hveitis, rúsínur í stað súkkulaðis og svo mætti lengi telja. Á síðunni www.cafesigrun. com má finna ótal uppskriftir og þar á meðal hollar jólauppskriftir, allt frá sveppasúpu til hnetusteikar. Það er því lítið mál að bæta smá hollustu í amstur jólanna. Gott kaffi á jólunum Þótt jólin snúist fyrst og fremst um samveru fjölskyldunnar þá skiptir maturinn sömuleiðis miklu máli. Fólk vill gera vel við sig í mat og nýtur þess að borða máltíðir sem eru sjaldan á borðum landsmanna. Það er því tilvalið að láta ekki staðar numið við mat heldur prófa nýtt og Ijúffengt kaffi. Kaffiþorsti gerir jafnan vart við sig eftir kvöld- mat og hvað er betra en að gæða sér á Ijúffengu hágæðakaffi. Gott kaffi má finna í ýmsum verslunum og um að gera að spyrja ráðlegg- inga til að geta valið kaffið sem hentar nákvæmlega tilefninu. Kaffi er svo margvíslegt og það er því ráð að kaupa nokkrar tegundir til að leyfa bragðlaukunum virkilega að njóta sín. Stundum vill það hamla lífsreynslunni að kaffivélin er ekki nægilega góð en það er því ágætis hugmynd að jólagjöf handa fjölskyldunni. Þó má ekki gleymast að það þarf ekki endilega fokdýra vél til að búa til Ijúffengt kaffi, gott hráefni er allt sem þarf. Rósa Guðbjartsdóttir ásamt dóttur sinni, Margréti Lovísu: „Ég fæ bara vatn í munninn að hugsa um kalkún- inn en mér finnst jólin fyrst vera komin þegarég finn kalkúnalyktina." matur@blaclid.net Rósa Guðbjartsdóttir, bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði, seg- ir að kalkúnninn sé ómiss- andi á hennar heimili á aðfangadagskvöld. „Ég bjó til mínar eigin hefðir eftir að ég fór að búa en í gamla daga var yfirleitt hamborg- arhryggur hjá fjölskyldunni. Eftir að ég fór að búa hef ég haft kalkún á borðum og finnst það algjörlega orðið ómissandi. Ég fæ bara vatn í munninn að hugsa um kalkúninn en mér finnst jólin fyrst vera komin þegar ég finn kalkúnalyktina,“ segir Rósa en fjölskyldan borðar yfirleitt kalkún einu sinni á ári. „Stundum höfum við eldað kalkún í kringum bandarísku þakkagjörðarhátíðina því við bjuggum um tíma í Banda- ríkjunum. Ég væri svo sem alveg til í að gera það oftar en það er ekki regla hjá okkur.“ Afslappandi að elda Rósa segist elda jólamatinn sjálf msm enda sé hún mikil áhugamanneskja um matargerð. „Ég hef unnið í hluta- starfi fyrir Gestgjafann síðastliðin átta ár. Ég hef því sameinað áhuga- mál og vinnu sem er algjör lúxus. Mér finnst afslappandi og gott að standa í eldhúsinu í lok dagsins, skera niður grænmeti og búa til einhverjar sósur. Það er þægilegt að hlusta á útvarpið í leiðinni og leyfa börnunum að sniglast í kringum sig,“ segir Rósa og bætir við að á að- fangadag búi hún yfirleitt til forrétt úr reyktum laxi. „Ég hef samt gam- an af að breyta til í forréttinum því ég breyti aðalréttinum ekki svo glatt. Uppistaðan í forréttinum er samt alltaf reyktur lax. Síðustu ár hef ég leyft krökkunum að búa til ís í eftir- rétt. Ég hef ekki haft neina sérstaka hefð með eftirréttinn en á allra síð- ustu árum hefur þessi hefð myndast. Krökkunum finnst þetta mjög gam- an og ísinn smakkast mjög vel enda er hrúgað súkkulaði í hann.“ Gott ráð frá Sigga Hall Rósa segist alls ekki vera í eld- húsinu allan aðfangadaginn að elda kalkúninn. „Það er galdurinn við kalkún, ég set bara fyllinguna í kalkúninn og læt hann malla í ofninum. Ég þarf ekkert að gera fyrir hann á meðan eldun stendur því ég kann eitt gott ráð frá Sigga Hall. Ég dýfi grisjuklút ofan í ólífu- olíu og breiða hann yfir kalkún- inn. Klúturinn er tekinn af rétt í lokin þegar hitinn er hækkaður til að fá stökka skorpu. Með því að hafa grisjuna yfir þá tryggirðu það að kalkúnninn verði mjög mjúkur og fínn og þú þarft ekki að hella yfir hann bræddu smjöri. Þetta er algjör lúxus,“ segir Rósa og lætur fylgja með ljúffenga laxauppskrift. svanhvit@bladid.net Laxarós á kartöflu fyrir 4-6 • 2 stórar kartöflur, afhýddar • salt • sítrónusafi • 1 dós sýrður rjómi, 18% •1-2 skalottlaukar, smátt saxaðir • 2 msk. piparrótarmauk eða 2-3 tsk. • fersk piparrót, ferskt dill • 200 g reyktur lax • 4-6 tsk. silungahrogn Sneiðið kartöflurnar langsum í um 1 cm þykkar sneiðar og sjóðið í 10-15 mínútur. Takið þær strax upp úr pottinum og kælið. Saltið þær síðan og penslið með sítrónusafa. Hrærið saman sýrðan rjóma, lauk, piparrót- armauk og dill. Skerið laxinn í sneiðar og komið honum fallega á fjórar til sex kartöflusneiðar. Setjið 1-2 msk. af sósu ofan á hverja sneið og loks silunga- hrogn yfir, og kannski örlítið dill til skrauts. Sérstakur jólamatur í ár Heimir Karlsson fjölmiðlamaður er ekki búinn að ákveða hvað verð- ur í jólamatinn því hann verður á Kanaríeyjum á jólunum ásamt fjöl- skyldu sinni. „Ég bjó erlendis í mörg ár en við héldum engu að síður jólin alltaf heima hjá okkur. Þetta verður því í fyrsta skipti sem við höldum jólin utan heimilisins en við verðum á Kanaríeyjum frá 18.-29. desember. Það er mikill spenningur i fjölskyld- unni. Ég býst því ekki við öðru en að jólamaturinn verði svolítið sér- stakur í ár miðað við undangengin ár. Það er að minnsta kosti ekki á stefnuskránni að taka hamborgar- hrygginn með okkur út. Hins vegar tökum við sennilega pakkana með okkur en við höfum reyndar ekki rætt það. Kannski vilja dæturnar láta pakkana bíða undir trénu þang- að til við komum heim.“ Veit ekki hvort við eldum sjálf Heimir segir að hingað til hafi oftast verið rjúpur eða hamborgar- hryggur á jólaborðinu. „Við erum ekki komin svo langt að ákveða hvort við förum út að borða á að- fangadag eða hvað. Við höfum aldr- ei komið til Kanaríeyja áður og þetta er í raun í fyrsta sinn sem við fjöl- skyldan förum á svona strönd. Ég veit ekki hvað bíður okkar þarna en það eru eflaust einhverjir góðir veit- ingastaðir þarna. Það hefur ekki ver- ið ákveðið hvort við eldum sjálf eða förum á veitingastað á aðfangadags- kvöld," segir Heimir og viðurkennir að það verði svolítið sérstakt að vera ekki heima hjá sér yfir jólin. „Ég hef ekki tekið mér almennilegt frí og á mikið frí inni. Konan mín er kennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð og það er erfitt fyrir kennara að fá frí nema í kringum svona stór- hátíðir. Við ákváðum því að nota bara tækifærið og dætur okkar voru sáttar við það.“

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.