blaðið - 01.09.2007, Síða 30

blaðið - 01.09.2007, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 blaðiö MENNING menning@bladid.net Ef ég ætti fullt af peningum og væri með aðstoðarmann í vinnu hjá mér myndi ég ekki hika við að gera öll verkin úr bronsi, enda hef ég ekkert á móti slíku. Sýning á verkum Hildar Sýning á verkum listakon- unnar Hildar Bjarnadóttur verður opnuð í Listasafni ASl í dag klukkan 15. Hildur út- skrifaðist frá Listaháskóla Islands árið 1992 og lauk MFA-gráðu frá Pratt Institute í New York árið 1997. Á sýningunni í Listasafni ASÍ sýnir Hildur verk þar sem grunnhugmyndir og hefðir textílhandverks eru til umfjöllunar. Hún vitnar í málverkshefðina en skoðar jafnframt handverk kvenna á fyrri tímum. Kynning í Salnum Nýtt tónleikaár verður kynnt á opnu húsi í Salnum í Kópavogi í dag klukkan 13.30. Einnig fer þar fram kynning á kínverskri menningarhátíð sem haldin verður í Kópavogi í byrjun okt- óber og veittur verður styrkur til ungs tónlistarmanns sem hefur látið að sér kveða. Yfirlitssýning Gjörningaklúbbsins Sýning á verkum Gjörninga- klúbbsins, sem samanstendur af listakonunum Eirúnu Sig- urðardóttur, Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur, var opnuð í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu i gærkvöldi og mun standa yfir til 25. október næstkomandi. Gjörningaklúbburinn hefur á ellefu árum haldið yfir 200 sýningar í Evrópu og Bandaríkj- unum, og hafa sýningar hópsins jafnan vakið mikla athygli. Hluti sýningarinnar er byggður inni í völundarhúsi innan um þrívítt púsluspil i 400 fermetra sal á 1. hæð safnsins. Glitnir er aðalstyrktaraðili sýningarinnar, en með framlagi sínu gerir bankinn Listasafni Reykja- víkur kleift að ráðast í gerð sérstakrar bókar um Gjörningaklúbbinn auk þess að stuðla að nýsköpun á verkum klúbbsins, sem sýnd eru nú í fyrsta sinn í Hafnarhúsinu. í bókinni verða myndir og greinar eftir sýningarstjórann, Yean Fee Quay, auk hugleiðinga 23 samferða- og samstarfsmanna hópsins, meðal annars Bjarkar, Sjóns, Kristínar Jóhannesdóttur, Þorvaldar Þorsteinssonar og fleiri. Þrjár einkasýn- ingar Þrjár einkasýningar verða opnaðar í SAFNI, Laugavegi 37, í dag, en það eru sýningar á verkum Sigurðar Guðjónssonar, Hugins Þórs Arasonar og Tonys Trehy. í SAFNI er samtíma- myndlist til sýnis á þremur hæðum og aðgangur er ókeypis. Opnunartími er á milli klukkan 14 og 18 miðvikudaga til föstu- daga og frá klukkan 14 til 17 á laugardögum og sunnudögum. Hjálmar á Ó-Náttúru Hjálmar Sveinsson útvarps- maður verður með leiðsögn um sýninguna Ó-Náttúra í Listasafni íslands á morgun, sunnu- daginn 2. september, klukkan 14. Hann ætlar að leiða gesti um sali og tala um hugrenn- ingar sínar varðandi einstök verk á sýningunni. Ó- Náttúra er sýning á verkum úr safneign Listasafns íslands og fjallar um náttúruna í ólíkum myndum. Komandi leikár í Þjóðleikhúsinu Á komandi leikári í Þjóðleikhúsinu verða frumsýnd fjögur ný íslensk leikrit, tvö eldri islensk verk og sjö erlend leikrit ásamt því sem fjögur verk frá síðasta leikári verða áfram sýnd. Meðal nýrra sýninga á Stóra sviðinu eru ný uppfærsla á verkinu Hamskiptin eftir Franz Kafka í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar, ívanov eftir Anton Tsjekhov í leikstjórn Baltasars Kormáks, Ástin er diskó - lífið erpönk eftir Hall- grím Helgason í leikstjórn Gunnars Helgasonar og Sólarferð eftir Guðmund Steinsson í leikstjórn Bene- dikts Erlingssonar. I Kassanum verður meðal annars sýnt nýtt verk eftir Hugleik Dagsson, Baðstofan, í leikstjórn Stefáns Jónssonar, og á nýjasta leiksviði Þjóðleikhússins, Kúlunni, verða sýnd verkin Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar og barnaleikritið Skoppa og Skrítla í „söng-leik“ eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. I Smíðaverkstæðinu verður meðal annars sýnt verkið Vígaguðinn eftir Yasminu Reza í leikstjórn Melkorku Teklu Ólafsdóttur. Nánar má lesa um komandi leikár á vef Þjóðleik- hússins, leikhusid.is. Fimmti listamaðurinn í D-sal Hafnarhússins Praktísk nálgun en ekki pólitísk Jóhannes Atli Hinriksson frá Sauðárkróki er fimmti listamaðurinn sem sýnir í sýningaröð D-salarins í Hafnarhúsinu. Hann vinn- ur aðallega með ódýr efni en þó ekki af pólitískum ástæðum. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Fimmti listamaðurinn sem sýnir í sýningaröð D-salarins í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, er Jó- hannes Atli Hinriksson, sem hefur getið sér gott orð fyrir kraftmiklar innsetningar úr grófum og ódýrum efnum. „Efniviðurinn sem ég nota er yfirleitt ódýr og þægilegur við- ureignar, eins og til dæmis gifs og pappakassar. Þetta er þó alls ekki pólitísk nálgun á hráefninu heldur miklu frekar praktísk enda eru þetta hlutir sem eru oft nálægt manni og kosta lítið. Ef ég ætti fullt af peningum og væri með aðstoðar- mann í vinnu hjá mér myndi ég ekki hika við að gera öll verkin úr bronsi, enda hef ég ekkert á móti slíku," út- skýrir Jóhannes. Ekki fyrsta einkasýningin Með sýningaröð D-salarins vill Listasafn Reykjavíkur vekja athygli á efnilegum myndlistarmönnum, sem ekki hafa áður haldið einkasýn- ingu í stærri söfnum landsins. Því fer þó fjarri að sýning Jóhannesar þar sé hans fyrsta einkasýning. „Ég hef haldið nokkrar sýningar hér á landi sem erlendis og var nýlega með sýningar í Zúrich og New York. En ég held að þessi sýning í Hafn- arhúsinu sé sú stærsta sem ég hef haldið hér á Islandi." Vinnur með alla miðla Jóhannes útskrifaðist með MFA- gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2005 og hefur síðan þá unnið með alla miðla. „Ég hef meðal annars haldið svona hefð- bundnar skúlptúrsýningar þar sem mismunandi verk hafa staðið hér og þar í salnum en i þessari sýningu Jóhannes Atli Hinriksson Vinnur með alla miðla mynd- listarinnar. í D-salnum gerði ég innsetningu af því að það passaði betur inn í rýmið. Til dæmis má sjá kónguló og trommur og fígúrur sem eru fastar í kóngulóarvef. Það er í raun ákveðið ferli í gangi þarna,“ segir hann. Heldur tengslum við NewYork Undanfarið hefur Jóhannes dvalið á Sauðárkróki, enda borinn og barnfæddur þar. „Ég var að vinna að listsköpun þar ásamt því sem ég hef unnið við smíðar, en hef reyndar aldrei haldið sýningu þar, allavega ekki enn þá. Annars er ég enn með annan fótinn í New York og til að mynda verð ég með einkasýningu þar einhvern tímann á næstunni og líka í Danmörku. Ég sé fram á að búa áfram hér á Islandi en hyggst halda áfram að viðhalda tengslunum við New York enda er LISTAMAÐURINN ► ► Jóhannes er fæddur árið 1975 Hann útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla íslands árið 2000 og MFA- gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2005. ► Hefur að mestu leyti unnið sem myndlistarmaður í fullu starfi frá því að hann lauk námi. það toppurinn fyrir alla myndlistar- menn og nokkurs konar höfuðborg í listinni. Ég nýt þess því mjög að hafa verið þar í námi og hafa tengsla- net þar,“ segir hann. Sýning Jóhannesar var opnuð í gærkvöldi og stendur til 31. október.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.