blaðið - 07.09.2007, Síða 1
169. tölublað 3. árgangur
Föstudagur
7. september 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓPFVPIS!
FÓLKM46
Leysir útblástursvanda
Sigurður Ingi Friðleifsson,
framkvæmdastjóri Orku-
seturs, er frumkvöðull á
bak við breytingu á fyrsta
tengitvinnbílnum á íslandi
en heimurinn bíður eftir
niðurstöðu.
BÍLAR»30
Bloc Party í Flensborg
Meðlimir hinnar þekktu
hljómsveitar Bloc Party
samþykktu að halda tónleika
í Flensborg þegar nem-
endur skólans óskuðu eftir
því. Hljómsveitin verður á
Airwaves.
Tinna í Abbababb
Tinna Hrafnsdóttir tekur
við hlutverki Álfrúnar
Örnólfsdóttur í söng-
leiknum Abbababb eftir Dr.
Gunna í Hafnarfjarðarleik-
húsinu og segist hlakka
mikið til leikársins.
ORÐLAUS»43
I ?! f*1
Aukefni í sælgæti
valda ofvirkni
■ Efnin sem rannsökuð voru í breskri rannsókn eru öll leyfð hér á landi ■ Matvæla-
öryggisstofnun Evrópu endurskoðar mat sitt á skaðsemi litar- og rotvarnarefna
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Venjuleg litarefni og rotvarnarefni í t.d. sæl-
gæti og gosdrykkjum geta valdið eirðarleysi og
einbeitingarskorti hjá börnum. Þetta eru niður-
stöður nýrrar breskrar rannsóknar sem greint er
frá í læknatímaritinu The Lancet. Efnin sem rann-
sökuð voru eru öll leyfð hér á landi, að sögn Gríms
Ólafssonar, sérfræðings hjá Umhverfisstofnun.
„Aukefni eru leyfð í ákveðnu magni í ákveðnum
matvælum. Samanlagt magn litarefna sem leyft
er er 300 mg í kílói af sælgæti,“ greinir Grímur
frá. Hann getur þess að Matvælaöryggisstofnun
Evrópu, EFSA, kanni reglulega öryggi þessara
efna og nú hafi stofnunin sent frá sér fréttatil-
ALGENG AUKEFNI
► Aukefnin sem rannsökuð voru eru
meðal annars notuð í gosdrykki, ís,
sælgæti, bragðbættar mjólkurvörur,
sósur, kartöfluflögur og sinnep auk
ýmislegs annars.
► Þessi efni voru rannsökuð: E211, E110,
E122, E102, E 124 og E129.
kynningu þar sem segi að verið sé að skoða lit-
arefni sem tengjast breyttu hegðunarmynstri
barna. Niðurstöður nýju rannsóknarinnar verða
liður í mati á efnunum.
Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós að aukefni hafi
neikvæð áhrif á börn sem greind hafa verið með
ofvirkni. Nýja rannsóknin leiddi í ljós að efnin
leiða einnig til aukins eirðarleysis og einbeiting-
arskorts hjá börnum sem ekki eru ofvirk.
Einn hópurinn sem rannsóknin tók til sam-
anstóð af 150 þriggja ára börnum. í öðrum hópi
voru jafnmörg börn á aldrinum átta til níu ára.
Börnin fengu daglegan skammt af litarefnum og
rotvarnarefni í ávaxtasafa, sem samsvaraði 100-
200 g af sælgæti. Niðurstöður rannsóknarinnar
sýndu greinilegt samhengi milli neyslu aukefn-
anna og ofvirkni hjá börnum, að minnsta kosti
upp að níu ára aldri.
Skeið ódýrs
fjármagns á enda
„Skeið ódýrs fjármagns er á enda
runnið að sinni,“ segir hagfræð-
ingur hjá Seðlabankanum. Hann
segir óróa og vaxtahækkanir á
mörkuðum geta lækkað %•% <m £•
húnsæðisverð hér á landi^ri IO
íslandi víti
öðrum til vamaðar
Skyndilausnir skýra af hverju
sýklalyfjanotkun barna á íslandi er
meiri en annars staðar á Norður-
löndum. Vilhjálmur Ari Arason
segir þriðjung barna bera sýkla-
lyfjaónæmar bakteríur eftir
hvern sýklalyfjakúr.
»6
„Vasapeli" á vaxtafundi
Gaman í bland við alvömna í Seðlabankamun
Það eru ekki bara grafalvarleg mál sem menn fjalla um á fundum í Seðlabankanum. Á fundi í gærmorgun þegar
tilkynnt var um stýrivaxtaákvörðun bankans brugðu Davíð Oddsson seðlabankastjóri og Þórhallur Jósepsson,
fréttamaður Ríkisútvarpsins, á leik. „Upptökutækið sem við notum á útvarpinu gengur stundum undir gælu-
nafninu vasapelinn. Seðlabankastjóri fór að gantast með þetta og talaði um að það væri nú réttara að fá £"
eitthvað úr þessu tæki í stað þess að leggja inn á það endalaust," sagði Þórhallur. IO
Meikaði ekki
viðtalið
Norska sjónvarpsstöðin TV2
fullyrðir að fyrirhuguðu
sjónvarpsviðtali við Kristinu
Halvorsen, norska fjármála-
ráðherrann, hafi verið aflýst
þar sem Halvorsen hafi farið
fram á of langan tíma í
meikstólnum. „TV2 bauð Hal-
vorsen tíu mínútur í förðun-
arstólnum með tveimur förð-
unarmönnum. Því var hafnað,“
segir talsmaður TV2.
Talsmaður ráðherrans segir
þetta ekki eiga við rök að styðj-
ast. Aftenposten hefur eftir
förðunardömum að stjórn-
málakonur þurfi almennt
20-30 mínútna meik áður en
haldið er í útsendingu. a
NEYTENDAVAKTIN í jP3|
Verð á vínarbrauðslengju
Fyrirtæki Krónur
Fellabakari Egilsstöðum 277
Breiðholtsbakarí 381
Guðnabakarí Selfossi 422
Bakarameistarinn 461
Árbæjarbakari 495
Kristjánsbakarí Akureyri 750
Verö á vínarbrauðslengju (ekki er tekið tillit til gæða) Upplýsingarfrá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 64,59 -0,22 ▼
GBP 130,33 -0,36 ▼
DKK 11,86 -0,11 ▼
JPY 0,56 -0,39 ▼
EUR 88,29 -0,14 ▼
GENGISVlSITALA 119,64 -0,17 ▼
ÚRVALSVlSITALA 8.259,74 -0,2 ▼
• Hvergi meira úrval
af stillanlegum heilsurúmum og heilsudýnum.
• Sjúkraþjáfari er í versluninni
á fimmtudögum frá kl. 16 -18.
• Sérþjálfað starfsfólk
aðstoðar við val á réttu rúmi.
Opið virka daga: 10-18 og laugardaga 11-16
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504