blaðið - 07.09.2007, Page 2
2
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaðiö
Þjóðarpúls Capacent Gallup
Flestir vilja lækka
áfengisgjaldið
Mikill meirihluti þjóðarinnar,
eða 64 prósent, er hlynntur því að
lækka áfengisgjaldið, samkvæmt
nýjum þjóðarpúlsi Capacent Gallup.
Rúmlega fimmti hver er andvígur
því að lækka áfengisgjaldið. Um 69
prósent karla eru hlynnt lækkun
áfengisgjalds, en 58 prósent kvenna.
Þegar litið er til aldurshópa sést að
yngri aldurshópar eru hlynntari
lækkun gjaldsins en hinir eldri og
eftir því sem tekjur fólks hækka því
hlynntara er það lækkun.
Meirihluti þjóðarinnar telur það
líklegt að lækkun áfengisgjalds leiði
til aukinnar sölu áfengis. Um 58 pró-
sent töldu það líklegt, en 30 prósent
ólíklegt. aí
Rússar í íslenskri lofthelgi
Átta rússneskar sprengjuflugvélar flugu innan íslenska flugstjórnar-
svæðisins í gærmorgun. íslensk stjórnvöld fylgdust með ferðum þeirra
með íslenska loftvarnakerfinu. Vélarnar voru af gerðinni Tupolev-
95. Næst fóru þær íslandi er þær voru um 120 sjómílur frá Höfn í
Hornafirði.
Sendiherra Rússlands hefur verið kallaður á fund Grétars Más Sigurðs-
sonar, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu, vegna málsins. „Þegar
vélar koma á opinberum vegum inn í okkar lofteftirlitssvæði án þess
að tilkynna sig þá biðjum við um skýringar," segir Grétar Már. mbi.is
Amfetamín í
heimahúsi
Um 30 grömm af amfetamíni
fundust við húsleit í fjölbýlishúsi
í Hafnarfirði í fyrradag. Hús-
ráðanda, sem er þrítugur, var
sleppt að lokinni skýrslutöku.
Hann hefur áður komið við sögu
lögreglu vegna fíkniefna. Leyfi
til húsleitarinnar fékkst með úr-
skurði Héraðsdóms Reykjaness.
Tveir slasast í tuttugu árekstrum
Ökumenn í tveimur af tuttugu árekstrum, sem tilkynntir voru til lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu í fyrradag, voru fluttir á sjúkradeild.
Meiðsl þeirra voru ekki alvarleg. Fjögur önnur umferðaróhöpp voru
tilkynnt lögreglu. f tveimur þeirra hafði grjót fallið af vörubílum og
skemmt aðvífandi bíla.
sérmerkt þér!
Utanríkisráðuneytið ákvað í júní að kalla friðargæsluliða heim
Of lítið að hafa einn í Bagdad
Af'P
^j't^Í^TcPhoto
íslendingar draga sig frá vígvellinum
Enginn íslenskur friðargæsluliði verður eftir í
írak eftir 1. október. Utanríkisráðuneytið hefur 2
í ákveðið að draga sig út úr verkefninu
■. JEM
Utanríkisráðuneytið ákvað þegar
í júní að kalla eina íslenska friðar-
gæsluliðann sem verið hefur að
störfum í frak heim. f tilkynningu
frá ráðuneytinu segir að íslenska
friðargæslan hafi metið það svo að
,ekki sé ráðlegt að hafa aðeins einn
starfsmann i Bagdad heldur væri
nauðsynlegt að fjölga fulltrúum eða
draga sig út úr verkefninu.“
Utanríkisráðuneytið mun eftir
sem áður taka þátt í mannúðar- og
uppbyggingarstarfi í frak. Ákveðið
hefur verið að leggja fram 10 millj-
ónir til átaks Flóttamannastofnunar
SÞ og UNICEF til stuðnings börnum
sem eru meðal íraskra flóttamanna
í Sýrlandi, Jórdaníu, Egyptalandi
og Líbanon. Miðar átakið meðal
annars að því Einnig hefur Alþjóða
Rauða krossinum verið veitt 7 millj-
óna viðbótarframlag vegna síversn-
andi aðstæðna óbreyttra borgara í
frak.“ freyr@bladid.net
Bandaríkjamenn
hnýsast í greiðslur
■ Geta sótt persónuupplýsingar um þá sem nota SWIFT-kerfið til að
senda peninga milli ianda ■ Bönkum skylt að láta viðskiptavini vita
| Aðgangur að persónuupplýsingum Séu pen-
ingagreiðslur sendar í gegnum alþjóðlegu greiðslu-
j miðlunina SWIFT geta bandarísk yfirvöld fengið
| upplýsingar um sendanda og viötakanda.
I. T/m
Mynd/Kristinn Ingvarsson
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Fjármálafyrirtæki sem hafa með
höndum miðlun peningagreiðslna
kunna að vera skyldug til að veita
yfirvöldum í ríkjum utan sem
innan Evrópska efnahagssvæðis-
ins upplýsingar um greiðanda. Sam-
tök fjármálafyrirtækja hér á landi
beina því þess vegna til aðildar-
fyrirtækja sinna að gera viðskipta-
vinum sinum grein fyrir þessu.
Þegar fregnir bárust af því í fyrra
að bandarísk yfirvöld hefðu fengið
upplýsingar um peningagreiðslur
í gegnum miðstöð alþjóðlegu
greiðslumiðlunarinnar SWIFT í
Bandaríkjunum, sem allir bankar
á íslandi eru aðilar að, lét Evrópu-
sambandið til sín taka, að sögn
Særúnar Maríu Gunnarsdóttur, lög-
fræðings hjá Persónuvernd.
Óheimilt að mati ESB
„ÖIl aðildarríkin, og þau sem eiga
áheyrnaraðild að starfshópi um
meðferð persónuupplýsinga, þar á
meðal ísland, höfðu samband við
aðila í sínum löndum til að tryggja
að viðskiptavinum yrði gerð grein
fyrir þessu,“ greinir María frá.
Hún segir niðurstöðu starfshóps-
ins hafa verið þá að flutningur á
upplýsingum til Bandaríkjanna
hafi út af fyrir sig verið óheimill.
Lágmarkskrafan væri samt sú að
viðskiptavinir bankanna yrðu upp-
lýstir um það.
VEÐRIÐ í DAG
Léttir til austanlands
Suðvestan 8-13 metrar á sekúndu
með skúrum vestanlands nú í
fyrramálið, en léttirtil austanlands
síðdegis. Hiti 7 til 14 stig.
Samkomulag við Bandaríkin
Greint var frá því í sumar að sam-
komulag hefði náðst við Bandaríkin
um notkun upplýsinga um greiðslur
í gegnum SWIFT. Bandarísk yfir-
völd mega geyma gögn sem ekki
skipta máli varðandi baráttuna gegn
hryðjuverkum í allt að 5 ár. Ef upplýs-
ingarnar skipta máli í slfkri baráttu
mega bandarísk yfirvöld afhenda yf-
irvöldum annarra landa gögnin.
Upplýsingarnar sem bandarísk
yfirvöld geta sótt til SWIFT eru
um hver sendandi greiðslunnar er,
hversu há upphæðin er og hver mótt-
takandi greiðslunnar er.
Ólafur Páll Gunnarsson, lögfræð-
ingur Samtaka fjármálafyrirtækja,
segir að í kjölfar árásanna 11. sept-
ember 2001 hafi bandarísk yfirvöld
nýtt sér þær heimildir sem þau
ÁMORGUN
Skúrir vestantil
Suðvestan 5-10 m/s og skúrir um landið
vestanvert, en suðaustan 8-13 með
rigningu síðdegis. Þurrt og fremur bjart
veður austanlands fram eftir degi. Hiti
víða 10 til 15 stig.
SWIFT-KERFIÐ
► SWIFT er staðlað sam-
skipta- og fyrirspurnakerfi
sem þjónar bönkum um
alian heim.
► Nú eru rúmlega 8000 bank-
ar og fjármálastofnanir í
rúmlega 200 löndum notend-
ur að kerfinu.
► Gefa þarf upp upplýsingar
um nafn viðtakanda, við-
skiptabanka hans og númer
bankareiknings viðtakanda.
höfðu samkvæmt bandarískum
lögum til að afla upplýsinga til stofn-
ana til hins ýtrasta. „Að mati Evrópu-
sambandsins voru ekki allar heimild-
irnar í samræmi við evrópsk lög.“
STUTT
• Undirskriftir Vinir Kola-
portsins munu standa fyrir
undirskriftasöfnun í Kola-
portinu um helgina til að
mótmæla tillögu um breytingu
á deiliskipulagi Kvosarinnar,
sem mun hafa mikil áhrif á
starfsemi Kolaportsins, gangi
hún eftir.
• Gæsluvarðhald Hæsti-
réttur hefur staðfest úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur um
að síbrotamaður, sem verið
hefur í gæsluvarðhaldi frá
því í júní, sæti áfram varð-
haldi þar til dómur gengur í
máli sem höfðað hefur verið
á hendur honum, þó ekki
lengur en til 11. október.
mbl.is
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 26
Amsterdam 20
Ankara 31
Barcelona 26
Berlin 17
Chicago 27
Dublin 18
Frankfurt 18
Glasgow 17
Halifax 22
Hamborg 18
Helsinki 14
Kaupmannahöfn 17
London 24
Madrid 31
Milanó 20
Montreal 14
Miinchen 16
New York 22
Nuuk 3
Orlando 25
Osló 20
Palma 25
Paris 20
Prag 18
Stokkhólmur 17
Þórshöfn 13