blaðið - 07.09.2007, Qupperneq 4
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaðið
Félagsmálaráðherra
VMS sendi
skýr skilaboð
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra vill að Vinnu-
málastofnun
sendi fyrir-
tækjum skýr
skilaboð um
aðlögbrot
verði ekki
liðin. Hún
boðar átak
í skráningu
erlendra
starfsmanna hér á landi.
Samkvæmt veffréttum RÚV
telur VMS að um 1.000 til
2.000 erlendir starfsmenn séu
óskráðir hér á landi.
Iðnaðarráðherra vill að almenningsveitur fyrir heitt og kalt vatn verði í almannaeigu
Rökrétt að skilja framleiðslu frá sölu
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir
að það hefði verið rökrétt niðurstaða ef fram-
leiðsla og sala á orku hefðu verið aðskilin þegar
samkeppnismarkaði í orkuiðnaði var komið á
hérlendis. Slíkt hafi þó ekki náð fram að ganga
á sínum tíma.
Hefur ekki markað stefnu
Borgarráð samþykkti í gær að mynda sérstakan
starfshóp um hlutafélagavæðingu Orkuveitu
Reykjavikur. Össur hefur ekki gert upp við sig
hvort hann ætli að leggja fram sérstaka stefnu í
þessum málum á komandi þingi en segir það mik-
ilvægt að almenningsveiturnar, heita og kalda
vatnið, séu áfram í félagslegri meirihlutaeign.
,Það er alveg ljóst að það virðist vera almennur vilji
fyrir því hjá ríkisstjórninni, í stjórnmálum og hjá
mörgum þeirra sem hafa forystu í orkugeiranum
hér á landi að sérleyfisþátturinn verði áfram
að meirihluta í félagslegri eign. Það eru margar
leiðir til að ná slíku marki en ég hef ekki gert upp
við mig hvernig það verði best tryggt og hef ekki
rætt þetta við aðra í liði ríkisstjórnarinnar."
Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykja-
víkur, segir það tryggt í landslögum að vatn-
sveitur verði í félagslegri eigu. „1 lögunum kemur
fram að það sé heimilt að fela félagi að reka vatn-
sveiturnar ef það er í meirihlutaeigu sveitarfélaga
eða annarra opinberra aðila. Félag má því reka
vatnsveitu svo lengi sem það er í meirihlutaeigu
opinberra aðila.“
thordur@bladid.net
Össur Skarphéðinsson Iðnaðarráðherra telur það
mikilvægt að almenningsveitur, heita og kalda vatnið,
séu áfram í félagslegri meirihlutaeigu.
í 15 ár hjá Heimsferðum
frá kr. 19.990
Borgin sem allir elska! 0
Heimsferðirhafaboðiðbeintleigu-
flugtil Barcelona undanfarin 15 ár.
í haust og á næsta ári verðum við
með tvö flug í viku til Barcelona og
m.a. beint morguflug næsta vor.
Þessi einstaka borg býður allt það
sem maður óskar sér í borgarferð.
Góð hótel í boði. Sérpöntum miða
á leiki með Barcelona og Espanol
ef óskað er.
• Frábært að versla
• Iðandi mannlíf
• Fjörugt næturlíf
• Fjölskrúðugt menningarlíf
• Áhugaverðar kynnisferðir
með íslenskum fararstjórum
Heimsferða
• FC Barcelona - spænski boltinn
BÓKAÐU NÚNA!
Flugsæti báðar leiðir með sköttum
1.-4 okt., 8.-11. okt.,15.-18. okt., 21.-25.okt.,
28. okt. - 1. nðv., 5.-8. nóv.,12.-15. nóv.
19.-22. nóv., 1Ó.-13. mars, 24.-28. mars.,
31. mars - 3. aprfl. 7,10. aprfl, 14-17. apríl.,
21-24. april, 28. aprfl -1. maf., 5-8. maí.
Netverð á mann.
Frá 34.990 kr
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 nætur á
Hotel Atlantis með morgunmat 5. nóv.,
12. nóv. eða 19. nóv.
Frá 39.990 kr,
Netverð á mann, m.v. 2 f herbergi í 4 nætur á
Del Comte með morgunmat 22, 26. nóv.
Frá 49.990 kr.
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 4 naetur á
Catalonia Plaza með morgunmat
22. - 26. nóv.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Starfsmenn við Hrauna-
veitu Fyrirtækin tvö starfa sem
undirverktakar Arnarfells sem
vinnur að byggingu Hrauna-
veitu Kárahnjúkavirkjunar.
Starfsmennirnir sem um er að
ræða eru tæplega 60 talsins.
Blaöið/Steinunn
Fyrirtækin fá
að starfa áfram
■ Starfsemi tveggja verktaka við Kárahnjúka var ekki stöðvuð í gær
líkt og boðað hafði verið ■ Arnarfell beri ábyrgð á öllu starfsfólki
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
Starfsemi fyrirtækjanna Hunne-
beck Polska og GT-verktaka var
ekki stöðvuð í gær líkt og boðað
hafði verið.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, segir að samkomu-
lag hafi náðst milli aðila málsins.
Það feli í sér að Arnarfell, yfirverk-
taki verksins, ráði pólska starfs-
menn Hunnebeck beint til sín frá í.
september síðastliðnum og taki auk
þess ábyrgð á öllum öðrum starfs-
mönnum sem hafa starfað að verk-
inu, íslenskum sem erlendum.
„Þeir munu leggja fram launa-
seðla og staðfesta launagreiðslur.
Við munum svo yfirfara þau gögn í
samvinnu við sérfræðinga og kanna
hvort rétt hafi verið greitt. Arnarfell
ábyrgist siðan að greiðaþað sem upp
á vantar frá því að þetta fólk hóf störf
hér á landi. Það er því búið að ábyrgj-
ast að enginn sem starfar að þessu
verkefni fær lægri laun en íslenskir
kjarasamningar segja til um.“
Arnarfell hefur fengið frest til
20. september til að verða við skil-
málum samkomulagsins og ber
ábyrgð á því að nálgast nauðsynleg
launagögn frá heimalöndum starfs-
mannanna. Gissur segir tímann
SKILMÁLARNIR
► Yfirverktakinn Arnarfell ræð-
urtil sín alla starfsmenn
Hiinnebeck Polska.
Fyrirtækið ber einnig áby-
rgð á öilum öðrum starfs-
mönnum verksins, íslensk-
um sem erlendum.
►
Arnarfell mun greiða þau
laun sem vantar upp á frá
því að starfsmennirnir hófu
störf á íslandi þannig að
launin verði í samræmi við
íslenska kjarasamninga.
verða að leiða það i ljós hvort og þá
til hvers konar aðgerða verði gripið
hlíti Arnarfell ekki skilmálunum.
Tala digurbarklega
I Blaðinu í gær gagnrýndi Skúli
Thoroddsen, framkvæmdastjóri
Starfsgreinasambands íslands, þá
fresti sem Vinnumálastofnun hafði
gefið fyrirtækjunum tveimur. Gissur
neitar því aífarið að Vinnumála-
stofnun hafi sýnt linkind í málinu.
„Það er ósköp auðvelt að tala digur-
barklega með þessum hætti en erfið-
ara í það að komast. Málsmeðferðar-
og leikreglur stjórnsýslunnar um
það hvernig skuli meðhöndla svona
mál gera ráð fyrir þvi að það þurfi
að gefa mönnum tækifæri til að tjá
sig. Stjórnvald á líka að ganga fram
af hófsemd. Það þarf alltaf að meta
hversu ríkir hagsmunirnir eru og
ég tel að þeir séu mjög ríkir í þessu
efni. Það er raunverulega verið að
verja skipulag vinnumarkaðarins
og leikreglurnar sem um hann
gilda. Við höfum ekki viljað beita
svona viðurlögum nema við teljum
að annað sé ekki fært.“
Félögin hafa eftirlitsskyldu
Hann segir verkalýðsfélögin Hka
eiga að sinna ákveðnu hlutverki í
svona málum. „Það er hægt að snúa
þessu við og spyrja hverjir það séu
sem fara með eftirlit og framkvæmd
kjarasamninga. Það eru aðilar vinnu-
markaðarins. Ég veit ekki hversu
hart þessi verkalýðsfélög hafa gengið
fram í sinni eftirlitsskyldu og það
yrði fróðlegt að fá það fram. Við
höfum líka ákveðna leiðbeininga-
skyldu sem verkalýðshreyfingin
hefur ekki. Slíkar leikreglur eiga
ekki við frjáls félagasamtök eins og
verkalýðsfélög og því er auðvelt fyrir
þau að tala með þessum hætti.“
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net