blaðið - 07.09.2007, Qupperneq 6
6
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaöió
Þrjú fyrir-
tæki vilja
til Islands
Netþjónabú „meiri-
háttar tækifæri"
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra sagði á ráðstefnu Skýrslu-
tæknifélags fslands á Grand Hóteli
þar sem fjallað var um netþjónabú
að þrjú fýrirtæki hafi þegar skoðað
aðstæður á íslandi og séu öll að
íhuga uppsetningu stórbúa.
Össur sagði að sérfræðingar á
vegum Fjárfestingarstofu áætluðu
að raforkuþörfin fyrir starfsemi af
þessu tagi gæti á næstu 3-5 árum
numið 200-250 MW. Væri litið 5-7
ár fram í tímann geti verið um að
ræða 350 M W, sem er svipað og orku-
þörfin fyrir 250 þúsund tonna álver.
Slys ef fyrirtækin snúa frá
„Hér ber allt að sama brunni: Um
er að ræða meiriháttar tækifæri
fyrir f slendinga. Þegar slíkur kostur
er fyrir hendi væri það slys ef væn-
leg fyrirtæki á þessu sviði, sem til
okkar leita, þyrftu frá að snúa vegna
þess að orkan væri öll bundin í fram-
leiðslu á áli,” sagði Össur.
Össur sagðist einnig vona að fyrir-
tæki þar sem íslendingar eru í farar-
broddi myndu ríða á vaðið og setja
upp fyrsta netþjónabúið. Margt
benti til þess að svo geti orðið.
mbl.is
Heimdallur
Gagnrýna
íslandspóst
Heimdallur, félag ungra
sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, telur ríkisfyrirtækið
fslandspóst vera komið langt
út fyrir hlutverk sitt, sem sé
að veita almenna og sérhæfða
bréfa-, pakka- og sendingar-
þjónustu fyrir einstaklinga og
fyrirtæki.
f tilkynningu segir að Heim-
dallur telji það afar neikvæða
þróun að íslandspóstur hygg-
ist útvíkka starfsemina og
hefja sölu áýmsum skrifstofu-
vörum og að fyrirtækið sé að
færa sér í nyt aðstöðu sína
sem fyrirtæki í opinberri eign.
Tímabært sé að íslandspóstur
verði einkavæddur.
aí
Stressaðir foreldrar
ofnota sýklalyf
H Sýklalyfjaónæmi vaxandi ógn M Foreldrar og læknar á þönum velja lyfin oftar en þarf
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@bladid.net
Árið 1928 breyttist heimurinn
þegar Alexander Fleming uppgötv-
aði gagnsemi penisilíns. Innan
við öíd eftir þá uppgötvun horfist
mannkynið í augu við að æ fleiri
bakteríur eru ónæmar fyrir sýkla-
lyfjum sökum síaukinnar sýklalyfja-
notkunar síðustu ára og er ástandið
einna verst á f slandi. í ágústhefti fag-
tímarits háls-, nef- og eyrnalækna,
Otolaryngology - Head and Neck
Surgery, er fjallað um rannsóknar-
niðurstöður sem Vilhjálmur Ari
Arason kynnti í doktorsritgerð sinni
og er ástandið á íslandi kynnt sem
víti öðrum þjóðum til varnaðar.
Skyndilausna krafist
Vilhjálmur komst að því að sýkla-
lyfjanotkun barna á f slandi er meiri
en annars staðar á Norðurlöndum.
Vilhjálmur segir vandann eiga
djúpar rætur í heilbrigðiskerfinu,
sem byggi um of á skyndilausnum,
s.s. kvöldvöktum. „Orsakirnar eru
tvíþættar. Annars vegar liggja þær
í þessum heilbrigðisstrúktúr, sem
byggir að miklu leyti á hraðþjón-
ustu, og hins vegar skapar stress og
vinnuálag i þjóðfélaginu þrýsting
um skyndilausnir."
Vilhjálmur segir um þriðjung
barna bera sýklalyfjaónæmar bakt-
eríur eftir hvern sýklalyfjakúr sem
Notist með varúð Sýklalyf hafa allt frá
uppgötvun þeirra verið talin stórkostlegur
bjargvættur, en ofnotkun þeirra getur haft
alvarlegar afleiðingar.
þau fara á. Þessar bakteríur smitast
svo auðveldlega á milli barna, t.d. á
leikskólum.
Barnasjúkdómum síður sinnt
Sýklalyfjanotkun barna hérlendis
er aðallega vegna miðeyrnabólgu,
en Vilhjálmur segir meðferð með
sýklalyfjum við henni oft óþarfa.
,Við fundum vísbendingar um að
sýklalyf geti aukið hættu á endur-
teknum miðeyrnabólgum sem og
þörf á hljóðhimnurörum, en þriðja
hvert barn á íslandi fær hljóðhimnu-
rör,“ segir hann.
„Eyrnabólgur eru sjúkdómur
barna númer eitt, tvö og þrjú og það
er umhugsunarvert að það þurfi
alltaf að afgreiða þær með skyndi-
vöktum og með hraðþjónustu á
meðan stórir sjúkdómar fullorðinna
fá miklu meiri tíma og athygli.“
Vilhjálmur segir að til að hefja
baráttuna gegn þessari tilhneig-
ingu þurfi að auka aðgengi foreldra
að þjónustu, auka eftirfylgni og
auka fræðslu. „Það er sameigin-
legt verkefni almennings og heil-
brigðisyfirvalda að vinna á þessu
þjóðfélagsmeini.”
SÝKLALYFJANOTKUN
► Sýklalyfjanotkun jókst um
16% á hvern íslending á
fyrstu tveimur árum eftir að
rannsókninni lauk árið 2003.
► Á sama tímabili hefur dreg-
ið verulega úr sýklalyfjanotk-
un íflestum öðrum löndum.
► Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO) skilgreinir sýklalyfja-
ónæmi sem eina af mestu
heilbrigðisógnum framtíðar.
Formaður menntaráðs kynnir aukið samstarf tónlistarskóla og grunnskóla í Reykjavík
Tónlistarnámið inn í grunnskólana
Samstarf fimm tónlistarskóla í
Reykjavík við tíu grunnskóla var
kynnt á blaðamannafundi í gær.
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður
menntaráðs Reykjavíkurborgar,
segir að leiddir hafi verið saman
stjórnendur tónlistar- og grunnskól-
anna og þeir hafi sjálfir ákveðið
með hvaða hætti samstarfið verði,
en borgin leggur til 25 milljónir á
ári á næstu þremur árum vegna
verkefnisins. Ot úr því hafa komið
fjölbreytt samstarfsverkefni, til
dæmis fá nemendur í Fossvogs-
skóla hópkennslu í hljóðfæraleik,
nemendum í Hagaskóla er boðið
upp á kynningu á ýmsum tónlistar-
stefnum og nemendur í Seljaskóla
fá kennslu í svokallaðri tónlistar-
miðlun, en í því felst sambland af
söng, sköpun og upplifun tónlistar.
„Okkur fannst ekki vera eins
mikið samstarf á milli tónlistar-
skóla og grunnskóla í Reykjavík
og við vildum sjá. En með þessu
fá grunnskólanemendur kennslu
og kynningu á ýmsum tónlistar-
stefnum og við vonumst til þess að
það skili sér í auknum fjölda tónlist-
ariðkenda og unnenda," segir Júlíus.
hlynur@bladid.net
Frá blaðamannafundi Tilkynnt var
um samstarf 5 tónlistarskóla við 10
grunnskóla I Reykjavík.
VEIÐl'*V?HOLLlN
Suðurlandsbraut 4. Reykjavík. -www.veidihollin.is - Sími 533 1115 - 893 7654
Er þetta jólagjöfin til þín
eða frá þér í ár?
Byssuskápa, byssupoka, gervigæsir sem fljúga, sitja og synda,
sem og allt annað færðu hjá okkur í skot og stangveiði.
Allt það besta frá Veiðilandi færðu hjá okkur.
Verðum með notaðar byssur í endursölu, skráðu byssuna hjá okkur
Ríkislögreglustjóri
Yfirheyrslurnar
á myndband
Ríkislögreglustjóri hefur
samþykkt norskan búnað, sem
getur bæði tekið upp hljóð og
mynd. Stefnt er að því að nota
búnaðinn við yfirheyrslur lögreglu.
í ársskýrslu embættisins kemur
fram að búnaðurinn sé nú þegar í
notkun hjá norsku lögreglunni.
Ekki hefur verið regla að hljóðrita
yfirheyrslur. Það hefur m.a. verið
gagnrýnt í dómum Héraðsdóms
Reykjavíkur, sem telur að bæði yrði
staða ákæruvalds sterkari og hags-
munir sakbornings betur tryggðir
ef yfirheyrsla væri hljóðrituð.
„Notkun þessa búnaðar er álitið
mikið framfaraskref út frá faglegri
hlið lögregluyfirheyrslna og búnað-
,,[E]r óþarft að minna á allan þann
tíma og óþarfa fyrirhöfn sem nú fer
í það - í hverju málinu á fætur öðru
- að prófa fyrir dómi hvernig orð
hafa fallið í lögregluyfirheyrslu. Er
vafalaust að það myndi spara tíma
og auka á skilvirkni réttarvörslukerf-
isins ef hljóðupptökur af lögregluyf-
irheyrslum yrðu almennar. Loks er
það alkunna að tækin sem notuð
eru við hljóð- og myndupptökur eru
tiltölulega ódýr og þægileg í notkun."
Pétur Guögeirsson héraðsdómari
f dómi f janúar 2003
urinn nýtist einnig til að stytta rann-
sóknartímann,“ segir í ársskýrslunni.