blaðið - 07.09.2007, Síða 10
10 FRETTIR
FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaöið
Kúabændur
Meira af
nautakjöti
Framleiðsla á nautakjöti hefur
aukist samkvæmt upplýs-
ingum frá Landssambandi kúa-
bænda. Á tímabilinu í. ágúst
2006 til 31. júlí síðastliðins var
19.170 nautgripum slátrað hér
á landi sem er 1.370 gripum
fleira en á árinu 2006. Þetta er
aukning um 7,3 prósent.
Framleiðslan á tímabilinu var
3.425.515 kíló, sem er aukning
um 7,2 prósent. Meðalþungi
skrokka er því örlítið minni
en á samanburðartímabilinu,
sem nemur 0,2 kílóum.
aí
STUTT
• Réttindalausir Þrír réttinda-
lausir ökumenn voru stöðvaðir í
umferðinni í gær en einn þeirra
er jafnframt grunaður um
fíkniefnamisferli. Þá var einn
ökumaður tekinn fyrir að aka
undir áhrifum fíkniefna.
• Bílvelta Engin slys urðu á
fólki þegar tengivagn aftan
í dráttarbíl valt á Tunguvegi
við Sogaveg í Reykjavík um tíu-
leytið í gærmorgun. Krani var
fenginn til að koma vagninum
á réttan kjöl. mbi.is
Vinningstillagan Tillagan þykir
skara fram úr vegna hugmynda um
uppbyggingu á horni Lækjargötu og
Austurstrætis og þykir brúa vel mis-
munandi stæröarhlutföll á svæðinu.
hafði hann á orði að honum þætti
það gleðilegt að allir flokkar í borg-
arstjórn og almenningur virtust
vera á sama máli og hann um þetta
efni.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, for-
maður dómnefndarinnar, var ekki
síður ánægð. „Við fengum algjör-
lega það sem við vorum að biðja
■ Arkitektar stinga upp á því að Lækjargata 4 verði flutt af Árbæjarsafninu á Lækjartorg
■ Austurstræti 22 mun standa áfram og Nýja bíó sem brann verður endurreist
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@mbl.is
Borgarstjóri var óvenjuléttur á
bárunni í gær þegar hann, ásamt
dómnefnd í hugmyndasamkeppni
um skipulag Kvosarinnar, tilkynnti
niðurstöður hugmyndaleitarinnar.
Tillagan sem varð hlutskörpust
var unnin af Argos, Gullinsniði og
Studio Granda.
Sagði borgarstjóri glaður í bragði
að sigurtillagan rímaði vel við þær
yfirlýsingar sem hann gaf út í kjöl-
far brunans sem varð síðastliðið
vor um að taka yrði tillit til fortíðar
og sögu reitsins sem um ræðir, og
SIGURTILLAGAN
Gerterráðfyriraðíviðbygg-
ingu við Iðuhúsið, á lóð Aust-
urstrætis 22, bergmáli Nýja
Bíó, sem stóð þar áður.
► Tré munu afmarka gang-
stétt og torg.
► Fiytja skal Lækjargötu 4 frá
Árbæjarsafni og á Lækjar-
torg.
► Gert er ráð fyrir að Austur-
stræti 22 verði endurbyggt
á tveimur hæðum.
Gamalt og nýtt
mætist í Kvosinni
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Bryndís Valbjamardóttir
ÍSLANDS
/ww.utforin.is
• Sólarhringsvakt
da ef óskað er
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í Qölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
LAUGARDAGAR
LÍFSSTÍLLBÍLAR
Auglýsingasíminn er
510 3744 blaðið=
Mynd/Lögreglan á Hvolsvelli
Sökktu einkajeppanum í Steinsholtsá
Eldri þýskum
hjónum bjargað
Eldri hjónum frá Þýskalandi var
í gær bjargað úr einkajeppa sínum
sem sökk í Steinsholtsá skammt frá
Þórsmörk í gær.
Kennarar og nemendur í 8. bekk
Ölduselsskóla í Reykjavík komu að
bílnum. í viðtali við fréttavefinn
mbl.is sagði jens Karl ísfjörð kenn-
ari að hópurinn, sem var á heimleið
úr Þórsmerkurferð, hefði fyrst séð
glitta í þak á Benz-jeppa og að fram-
rúðan og bílstjórahurðin hefði að
mestu verið komin á kaf. Þá hefðu
þau séð gitta í fólkið. Jens og Guð-
mundi Magnúsi Jónssyni bílstjóra
tókst að koma línu í bílinn í ánni og
þeir óðu síðan út að bílnum og hjálp-
uðu fólkinu í land.
Jens segir að talsvert hafi verið
farið að draga af þýsku hjónunum
enda var vatnið afar kaít í ánni.
Krakkarnir létu þau fá svefnpoka og
þurr föt og síðan var ekið með þau
til móts við lögregluna á Hvolsvelli
sem kölluð hafði verið út.
Talsverðir vatnavextir eru nú í
ám á þessu svæði og hefur lögreglan
á Hvolsvelli varað ferðamenn við.
Dómkirkjuprestur
Sex konur
og einn karl
sóttu um
Sjö sóttu um embætti dóm-
kirkjuprests en umsóknar-
frestur um embættið rann
út 4. september síðastliðinn.
Eftirtaldir sóttu um embættið:
Anna Sigríður Pálsdóttir, Ása
Björk Ólafsdóttir, Guðbjörg
Jóhannesdóttir, Guðrún Karls-
dóttir, Rúnar M. Þorsteinsson,
Sigríður Hrönn Sigurðardóttir
og Þórhildur Ólafs.
Athygli vekur mikill meiri-
hluti kvenna meðal umsækj-
enda. Kona hefur fram til
þessa ekki setið í embætti dóm-
kirkjuprests þó að kvenprestar
hafi starfað við kirkjuna,
meðal annars að æskulýðs-
málum. Biskup íslands skipar
í embættið til fimm ára að
fenginni umsögn valnefndar.
Skipað verður í embættið frá 1.
október 2007.
fr