blaðið - 07.09.2007, Page 11
blaóió
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
FRETTIR
11
Við afhendinguna Björgólfur Guðmundsson
sat í dómnefndinni fyrir hönd hagsmunaaðila.
Hér ræðir hann við Steve Christer. Btaðið/Sverrir
um,“ sagði hún um afrakstur keppn-
innar. Hún sagði dómnefndina
strax hafa hrifist af sigurtillögunni
og hefði hrifning þeirra bara aukist
með frekari íhugun. Sextán tillögur
bárust í keppnina, þrjár hlutu verð-
laun og þrjár að auki fengu sérstaka
viðurkenningu.
Unnið hratt
Skipulag Kvosarinnar verður nú
mótað á grundvelli tillögunnar sem
var valin hin besta, en einnig stendur
til að kaupa ákveðna þætti úr þeim
tillögum sem lentu í öðru og þriðja
sæti og nýta þá með sigurtillögunni.
Gert er ráð fyrir að skipulagið verði
tilbúið fyrir jól og að hægt verði að
hefja framkvæmdir innan skamms.
Formaður dómnefndar ítrekaði að
þrátt fyrir að hraðar hendur yrðu
hafðar við skipulagninguna yrði
farið eftir öllum kúnstarinnar
reglum er kæmi að samráði við íbúa
á svæðinu.
Gamalt og nýtt mætist
Steve Christer, annar stofnenda
Studio Granda, viðurkennir að það
sé ekki bara stórskemmtilegt heldur
líka dálítið skelfilegt að hafa unnið
samkeppni um skipulag svæðis
sem honum hefur verið hugleikið í
tvo áratugi, þó að tillagan sem slík
hafi verið unnin hratt. Steve segir
útgangspunkt hönnunarinnar vera
fjölbreytni, því Reykjavík sé mjög
fjölbreytt borg. Á svæðinu eiga for-
tíð, nútíð og jafnvel framtíð að lifa
saman.
HEFURÐU ÁBENDINGU?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Framkvæmdastjóri segir vinnubrögðin alsiðu þegar vörur eru ódýrar
Mátti ekki kaupa tíu
notaðar frönskubækur
Jóhann Björnsson freistaði þess að
kaupa tíu eintök af frönskukennslu-
bókinni Cafe Creme í ritfangaversl-
uninni Office 1 á dögunum en
honum kom það í opna skjöldu að
starfsfólk verslunarinnar vildi ekki
leyfa honum að kaupa svo mörg ein-
tök af einni bók.
Vildi stytta sér leið
„Ég kenni frönsku í tíunda bekk í
Réttarholtsskóla. Það eru fleiri nem-
endur nú í ár en hafa verið undan-
farið og því vantaði nokkrar bækur.
Með því að kaupa bækurnar sjálfur
gat ég sparað skólanum dálítið fé
og fyrirhöfn svo ég bauðst til þess.
Þannig gátu krakkarnir líka fengið
bækurnar í hendur strax daginn
eftir,“ sagði Jóhann.
Þegar Jóhann maldaði í móinn út
af fjöldatakmörkunum og sagðist
vera að kaupa bækurnar fyrir skóla
hugðist starfsfólkið leita heimildar
hjá yfirmanni til að selja honum öll
eintökin, en þá var þolinmæði Jó-
hanns þrotin og hann kaus að kaupa
bækurnar frekar hjá Griffli, þar sem
hann var afgreiddur orðalaust.
Nínu K. Hjaltadóttur, verslunar-
stjóra Griffils, kom það líka í opna
skjöldu þegar hún var spurð hvort
sambærileg stefna væri í verslunum
Griffils. „Hann má kaupa eins mörg
eintök og hann vill hjá mér!“
Til verndar viðskiptavinum
Hannes Sigurbjörn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Office í, segir sögu Jó-
hanns vera úlfalda orðinn til úr mý-
flugu - hefði Jóhann kynnt sig strax
við komuna í búðina hefði aldrei
orðið nein rekistefna út af innkaup-
unum. „Að sjálfsögðu seljum við
skólum. Við erum með öfluga fyrir-
tækjaþjónustu og þessi maður hefði
getað pantað bæfcurnar í gegnum
hana og fengið þær sendar til sín
á nákvæmlega sama verði og er í
búðinni."
Hannes segir reglurnar um þrjú
eintök á mann vera settar til verndar
viðskiptavinum verslunarinnar.
,Það hefur komið fyrir að hingað
hefur komið fólk sem er kannsfci í
svipuðum bransa og við og kaupir
jafnvel upp bækurnar hjá okkur
þannig að við höfum ekki átt þær
fyrir okkar viðskiptavini.“ Hannes
segir sambærilegar reglur þekkjast
víðar og nefnir matvöruviðskipti
sem dæmi. „Þegar tilboð eru í gangi
þá eru oft hámark tveir, þrír hlutir
á mann.“
arndis@bladid.net
HUSBILAR. A NIÐURSETTU VERÐI
Seljum útleiguhásbílana okkar á niðursettu verói á meðan birgðir endast.
Mikil verðlcekkun. Komdu núna og geróu góð kaup!
r~r-—-—v Ír'\r*sí' «•»
I