blaðið - 07.09.2007, Page 15
blaðið
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
15
Skortur á
Á þessu hausti ná margir leik-
skólar ekki að ráða í lausar stöður
leikskólakennara. Foreldrar lesa
um það í fjölmiðlum að þeir megi
eiga von á því að fá ekki inni í leik-
skóla fyrir barn sitt á komandi
vetri! Leikskólastjórar þurfa að
svara áhyggjufullum foreldrum
með sömu afsökun og í fyrra: „Nei,
því miður get ég ekki gefið dag-
setningu á það hvenær barnið þitt
kemst inn í leikskólann vegna þess
að það vantar starfsfólk!” Þessi end-
urtekna staða er mjög slítandi fyrir
Hæft og vel menntað starfsfólk
í upphafi leikskólagöngu er
grunnur lagður að líðan barns
í skóla almennt. Það skiptir því
meginmáli að leikskólinn hafi á að
skipa hæfu og vel menntuðu starfs-
fólki, sem hugsar sér leikskóla sem
framtíðarvinnustað. Almennur
skortur á leikskólakennurum
hefur verið hér í Reykjavík og víðar
í mörg ár. Fyrir nokkrum árum fór
menntun leikskólakennara upp á
Soffía Þorsteinsdóttir
leikskólastjóra og afleit fyrir for-
eldra, sem höfðu miklar væntingar
í vor eftir að þeim barst í hendur
gleðilegt bréf um að barn þeirra
væri búið að fá pláss á leikskóla. Ég
leyfi mér að fullyrða að leikskóla-
stjórar vilja hefja starfsemi leikskól-
ans sem fyrst að hausti og standa
vel að inntöku nýrra barna.
Metnaðarfulla
og framsækna
leikskóla er
ekki hægt að
reka ef innvið-
ina skortirl
leikskólakennurum segir illilega til sín!
háskólastig og námskröfur auknar
en launin ekki að sama skapi. Hröð
uppbygging leikskóla hefur heldur
ekki haldist í hendur við fjölda út-
skrifaðra leikskólakennara sem
einnig hefur haft sitt að segja. Leik-
skóla- og menntasvið býður upp
á gott starfsumhverfi, markvissa
endurmenntun starfsfólks og metn-
aðarfullt þróunarstarf í mörgum
leikskólum. Framsækni er mikil
eins og nýleg starfsáætlun svið-
anna sýnir. Einnig má nefna að á
undanförnum árum hafa erlendir
leikskólakennarar og sérfræðingar
á sviði leikskólamála verið tíðir
gestir í leikskólum Reykjavíkur-
borgar og hefur faglega starf leik-
skólanna hér vakið mikla athygli
gestanna. Það er synd að þessir
frábæru leikskólar skuli jafnvel
vera lokaðir að hluta vegna skorts
á fagfólki.
Skammtímalausnir
Umræða um málefni leikskóla
sem menntastofnana mætti vera
meiri úti í samfélaginu. Fjölmiðlar
þyrftu að sýna innra starfi leik-
skóla meiri áhuga, ekki eingöngu á
hátíðarstundum eða þegar kreppir
að í starfsmannamálum. Sú um-
ræða dregur oftar en ekki upp
neikvæða mynd af leikskólum og
leikskólastarfi. Við sem stöndum
að leikskólamálum þurfum að
halda vel á spöðunum og vera sam-
taka um að rödd okkar heyrist.
Stjórnmálamenn þurfa að vinna
að því að gera störf í leikskólum
eftirsóknarverðari í þjóðfélaginu,
t.d. með hærri launum og leggja
kapp á að mennta fleiri leikskóla-
kennara. Þær skammtímalausnir
sem gripið hefur verið til vegna
skorts á starfsfólki leikskólanna
hafa ekki náð tilætluðum árangri.
Reglugerðir varðandi fjölda barna
á hvern starfsmann má ekki brjóta,
en hætta er á að slíkt gerist þegar
svona árar. Börnin okkar eiga rétt
og það er á okkar ábyrgð að vernda
þau. Metnaðarfulla og framsækna
leikskóla er ekki hægt að reka ef
innviðina skortir!
Höfundur er leikskólastjóri
Silkimjúkt, próteinríkt
og fitulaust
JÓGÚRTm?
Wvl og perun> •
Hugsaðu um heilsuna!
•mW a
Ljogurt
með iref|uni
...v..
”|yLfrrr
JÓGUr Camla góða
Frískandi, hollur
og léttur drykkur í dós
Óskajógúrtin - bara léttarí
y
Fitusnauðar
og mildar ab-vörur
MJÓLKURVÖRUR
f SÉRFLOKKI
w
^orur m m
FLOKKI