blaðið - 07.09.2007, Side 18
w
ÁTAK FRAM AÐ JÓLUM!
'^ÓTAKMÖRKUÐ MÆTING í EUROWAVE TIL JÓLA
12 x Sogæðanudd 6 x UltraCel líkamsmeðferð
6 x AqUa Detox afeitrun 1 x heill leirvafningur
wmmmmmmm-Z'
Vigtun og ummálsmælingar
Tllboðsverð: 49.900
Einnig er enn hægt aðnæla í þetta einstaka tilboð:
ÖRKUÐ MÆTING í EUROWAVE TIL JÓLA:
AÐEINS: 24.900.-
www.fyrirogeftir.is
Smiðjuvegi 1 - Kópavogi - Sími 564 4858
Ertu með nýfætt barn
og vilt koma þér I Í“YRRA F0RIVI
á heilsusalegan hátt?
MÆÐRAFIMI
3X í VIKU
WWW.HREYFILAND.IS | 577 2555 | Stangarhyl 7 | 110Reykjavík
Ðsns fyrir alM
18
NAMSKEIÐ
FÖSTUDAGUR 7. SEPTENIBER 2007
blaöiö
Þorsteinn Eggertsson „Auk þess
þarf skoþmynd aö vera skemmtiieg
þannig að það sé spaug í henni og hún
þarf að fanga þann sem horfir á hana,
frekar heldur en málverk eða teikning."
Mynd/Frikki
Námskeið í skopmyndagerð
Hnyttin saga
í myndformi
Það þarf hugmyndaflug,
húmor og gott auga til að
vera góður skopteiknari
en hægt er að sækja nám-
skeið í skopmyndagerð í
haust.
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd.
svanhvit@bladid.net
Þorsteinn Eggertsson, rithöf-
undur og teiknari, er leiðbeinandi á
námskeiði um skopmyndagerð sem
haldið verður í Námsflokkum Hafn-
arfjarðar í haust. Þorsteinn segir að
það sem skipti mestu máli í skop-
teikningu sé að hafa gott hugmynda-
flug. „Hugmyndavinnsla er eitt af
því sem ég nota á námskeiðinu, að
efla hugmyndaflugið því það er það
sem skiptir mestu máli í skopmynda-
gerð. Til að skopmynd sé góð þarf
hún að ná athygli, ekki síður en góð
auglýsing. Aukþess þarf hún að vera
skemmtileg þannig að það sé spaug
í henni og hún þarf að fanga þann
sem horfir á hana, frekar heldur en
málverk eða teikning. Þegar horft er
á málverk eða teikningu er maður
að njóta verksins en þegar horft er
á skopmynd þá verður skopmyndin
að skemmta manni líka.“
Frábrugðnar öðrum myndum
Á námskeiðinu verður farið í
gegnum ýmis atriði skopmynda.
„Það verður til dæmis fjallað um þá
staðreynd að skopmyndir eru frá-
brugðnar öðrum myndum að því
leyti að þær þurfa að segja sögu í
afskaplega hnitmiðuðu myndformi
auk þess sem það þarf að vera hægt
að lýsa hreyfingu í skopmyndum.
Yfirleitt er það frekar ungt fólk
sem vill læra skopmyndagerð en
námskeiðið er opið fyrir alla. Á
námskeiðinu verða að lágmarki 6-8
manns en hámarkið er 12-14 manns.
Það er ekki gott að vera með fleiri
á svona námskeiði vegna þess að
þá er meira mál að einbeita sér að
hverjum fyrir sig. Ég verð náttúr-
lega að skoða það sem hver nemandi
er að gera og vera í samskiptum við
hvern og einn.“
Opin augu fyrir öllum smáatriðum
Þorsteinn talar um að það séu
margir möguleikar í skopteikn-
ingum. „Það er hægt að hafa skop-
myndir afskaplega einfaldar eða
mjög flóknar og allt þar á milli.
Það er ekkert almennilegt dagblað
í heiminum sem með réttu getur
kallað sig dagblað öðruvísi en það
hafi almennilegan skopteiknara. Öll
MAÐURINN
►
Þorsteinn er þekktur texta-
höfundur og á til dæmis
heiðurinn af textum laga
á borð við: Ég elska alla,
Gvendur á eyrinni, Leyndar-
mál og Ást í meinum.
►
Auk þess að vera skop-
myndateiknari og textahöf-
undur er Þorsteinn rithöf-
undur, Ijóðskáld, þýðandi
og greinarhöfundur.
helstu dagblöð heimsins eru með al-
mennilegan skopteiknara en það er
ekki staðreyndin á íslandi þar sem
einungis þrjú blöð eru með skop-
teiknara. Skopteiknari er með sína
eigin útfærslu á fréttaefni. í blað-
inu Le Monde í París er lögð mikil
áhersla á skopmyndina og þeir eru
með skopmynd á forsíðu blaðsins á
hverjum einasta degi.
Teiknarinn hjá Le Monde ferðast
út um allan heim og hefur augun
opin frá því hann vaknar og þar til
hann sofnar. Það er það sem skop-
teiknari þarf að gera, að hafa augun
opin fyrir öllum smáatriðum sem
hann sér í kringum sig og hann þarf
að geta magnað upp það spaugilega
í því sem hann sér og les.“
Úthýst af Guði
Kirkjan vill ekki jóga
Jóganámskeið hafa verið gríðar-
lega vinsæl á undanförnum árum
og hafa jafnt ungir sem aldnir
mætt í jógatíma. Eitthvað virðist
þó breska kirkjan hafa horn í síðu
jógamenningarinnar því nýverið
var jóganámskeiði fyrir ungabörn
úthýst úr safnaðarheimili þar sem
jógaiðkunin þótti skemma fyrir and-
legu uppeldi barnanna.
Krakkar í dýraleik
Lousie Woodcock, sem stóð fyrir
Yum Yum Yoga-námskeiðinu, átti
ekki til orð yfir þessari ákvörðun
kirkjunnar þegar hún ræddi við
dagblaðið Daily Mirror á dögunum.
„Þetta er geðveiki. Þetta eru krakkar
að þykjast vera dýr og að gera æf-
ingar við rímnatónlist. Það er ekk-
ert þarna sem myndi skemma huga
þeirra. Jóga er ótengt trúarstefnum
og hefur verið til í þúsundir ára.“
Samræmist ekki kristnum gildum
Simon Farrar, prestur í Silver
Street-kirkjunni, sem vísaði hinu
siðlausa jóganámskeiði á dyr, segir
að jóganámskeiðið hafi ekki sam-
ræmst kristnum gildum og því hefði
það þurft að víkja. „Jóga kemur inn
á andlega lífið á þann máta að við
teljum það ekki samræmast okkar
gildum. Hún kallaði þetta jóga og
við það varð til víð gjá sem við erum
ekki reiðubúin að stíga yfir. Þegar
við látum fólk fá rými hjá okkur þá
verður það að samræmast að öllu
leyti kristnum gildum.“
Louise var tilkynnt við brottrekst-
urinn að það væri ólíklegt að nokkur
kristin samtök myndu vilja hýsa nám-
skeiðið hennar. Þrátt fyrir það hefur
hún nú fundið nýtt húsnæði fyrir
námskeiðið sitt og heldur því áfram
að kenna ungum börnum jóga.