blaðið - 07.09.2007, Page 21
blaöió
Dansskóli Ragnars Sverrissonar
Dansinn eykur
sjálfstraust og þrótt
í vikunni opnaði nýr dansskóli
dyr sínar í fyrsta sinn en það er
Dansskóli Ragnars Sverrissonar
sem er staðsettur að Bíldshöfða
18. Ragnar er alls ekki ókunnur
dansíþróttinni, hefur lifað og
hrærst í þeim heimi í um 25 ár
og hefur þar að auki kennt dans í
14 ár, bæði hér heima og erlendis.
Ragnar segir að úrvalið í dansskól-
anum verði að mestu leyti með
hefðbundnu sniði. „Dansinn er
náttúrlega sígildur þannig að
það er ekki alltaf hægt að vera að
finna upp á einhverju nýju. Það
sem við erum aðallega með eru
samkvæmisdansar, þar liggur
mín reynsla, og til að reyna að
hafa fjölbreytni í þessu þá erum
við með línudans líka. Svo erum
við líka með salsa-kennslu. Línu-
dansinn og salsa hafa þann kost
fyrir nemendur að þá þurfa þeir
ekki að hafa dansfélaga með
sér en í samkvæmisdönsunum
verður fólk að taka einhvern með
/ u
ser.
Dans fyrir alla fjölskylduna
En það eru ekki bara fullorðnir
sem geta fengið danskennslu hjá
Ragnari heldur er börnum einnig
gert hátt undir höfði og er boðið
upp á námskeið fyrir börn á öllum
aldri, allt niður í 2-3 ára. „Við erum
með þessa sígildu barnadansa. Við
reynum að fá börnin til að stíga sín
fyrstu spor í samkvæmisdönsunum
svo sem tsjatsjatsja og enskum
valsi. Okkur langaði hins vegar til
að koma með eitthvað nýtt í kennsl-
una þannig að ég þróaði námskeið
sem heitir Foreldrar og börn. Þetta
er í sjálfu sér ekkert nýtt nema þá í
samkvæmisdönsunum.“ Á þessu til-
tekna námskeiði læra jafnt foreldrar
sem börn að stíga dans. Foreldrar
dansa við börnin sín og hjálpa
þannig til við kennsluna með því að
veita börnum sínum stuðning og að-
hald. „Þá er miklu meiri möguleiki
að kenna börnunum. Þá læra foreldr-
arnir líka þessa dansa og geta þá
dansað þessa dansa heima í stofu.
Þá er kominn enn einn vinkill á að
foreldrar og börn leiki sér saman.“
Dans veitir fólki sjálfstraust
Fyrir utan allt þetta mun einnig
verða boðið upp á freestyle-dans-
kennslu í skólanum en sú kennsla
hefst í næstu viku. Aðspurður um
hver sé ávinningurinn fyrir fólk
sem lærir dans þá stendur ekki á
svörum hjá Ragnari. „Fyrir mig að
kunna að dansa, þá get ég dansað
alls staðar þar sem boðið er upp á
einhvern dans. Maður er alltaf að
sjá að krakkar sem maður kenndi á
sínum tíma eru núna að verða leik-
arar og þess háttar. Maður ályktar
að það sjálfsöryggi sem krakkarnir
öðluðust í gegnum dansinn á sínum
tíma hjálpi þeim að ná árangri.“ Þeir
sem vilja afla sér frekari upplýsinga
um námsframboðið hjá hinum nýja
Dansskóla Ragnars geta brugðið
sér á heimasíðu skólans, www.dans-
skoliragnars.is.
Egg 1 vettlinginn í vetur
Fæða hefur gríðarleg áhrif á
hugann og starfsemi hans. Lundar-
far og andlegt úthald sveiflast að
miklu leyti eftir því hvernig fæðu
við neytum. Neysla á eggjum gæti
hins vegar styrkt námsmenn sem
og aðra er þurfa að efla minni og
kæta lund. Egg innihalda kólín
sem er flokkað sem eitt af B-vítam-
ínunum. Kólín hefur róandi áhrif
og getur unnið gegn spennu og
streitu. Það er talið framleiða efni
í heilafrumum sem bætir minnið.
Þá er gott og gilt húsráð á köldum
íslenskum vetrum að ganga í skól-
ann með heitt egg í nesti innan í
vettlingnum.
NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2007
Tungumál
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
Áhersla á talmál
Kennt er í byrjenda-
framhalds -
og talæfingaflokkum
ENSKA
DANSKA
NORSKA
SÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
SPÆNSKA
ÞÝSKA
ÍSLENSKA
stafsetning og ritun
ÍSLENSKA
Verklegar greinar
FRÍSTUNDAMÁLUN
GLERBRENNSLA
LOPAPEYSUPRJÓN
SKRAUTRITUN
TRÉSMlÐI
ÚTSKURÐUR
Saumanámskeið
BÚTASAUMUR
CRAZY QUILT
FATASAUMUR /
BARNAFATASAUMUR
FATABREYTINGAR
Matreiðslunámskeið
GÓMSÆTIR BAUNA-
PASTA -OG
GRÆNMETISRÉTTIR.
GÓMSÆTIR HOLLIR
SUÐRÆNIR RÉTTIR
FRÁ MIÐJARÐARHAFS-
LÖNDUNUM
HRÁFÆÐI
Tölvunámskeið
FINGRASETNING
VEFSÍÐUGERÐ
FrontPage
TÖLVUGRUNNUR
TÖLVUGRUNNUR
Framhald
MATARMIKLAR SÚPUR
OG
HEIMABAKAÐ BRAUÐ
MATARGERÐ
FYRIR KARLMENN I
Grunnnámskeið
WORD
Ritvinnsla
Garðyrkjunámskeið
GARÐURINN ALLT ÁRIÐ
HAUST - OG
VORLAUKAR
fyrir útlendinga
9 vikna námskeið
50 kennslustundir
Kennt er í byrjenda og
framhaldsflokkum.
ísl. I, ísl. II, ísl. III, tsl. IV.
ÞJÓÐBÚNINGUR -
SAUMAÐUR
SKRAUTSAUMUR -
Baldering
Skattering
MATARGERÐ
FYRIR KARLMENN II
Framhaldsnámskeið
SPENNANDI BÖKUR
HREYFI GREININC
® Fagleg heilsurækt
0 Frábær aöstaöa
® Frábær lífsstíls námskeið
® Frábær staðsetning
Viltu komast í form?
Talya Freeman, Arna Hrönn Sævar Kristjánsson, Harpa Helgadóttir, Birkir Már Sandra Dögg Hólmfríður B.
Jógakennari Aradóttir, íþróttafræðingur sjúkraþjálfari BSc, Kristinsson, sjúkra- Árnadóttir, Þorsteinsdóttir,
Rope Joga kennari BSc MTc, MHSc þjálfunarnemi sjúkraþjálfari BSc sjúkraþjálfari BSc, MTc
Ný námskeið eru að hefjast
Bak- í formi til R0Pe/á^N Jóqa fyrir
leikfimi framtíðar* Joga stirða og byrjendur
Betri líðan í hálsi, Skráning er hafin (þessi hjá Örnu Ara. Talya og Guðmundur kynna grunnhreyfingar þar sem
herðum og baki. vinsælu aðhalds- og Námskeið eru að hefjast. öndun og hneyfing fara saman.
Skráning á harpahe@hi.is. lífsstílsnámskeið fyrir Skráning í s(ma 511 1575. Enqin þekkinq á ióqa er
www.bakleikfimi.is konur. 8 vikna námskeið. k— k nauðsynleg og hentar öllum.
Vigtar-
ráðgjafarnir
(slensku vigtarráðgjafarnir
vigta alla þriðjudaga
kl. 11.30-12.30.
Fundur kl. 12.30.
Bumban
burt*
Lokuð námskeið fyrir
karla sem vilja ná árangri.
8 vikna námskeið.
Móðir
og barn
Skráning er hafin í fimm
vikna námskeið Söndru
Daggar Árnadóttur.
Líkamsrækt
Frábær aðstaða til að æfa
á eigin vegum á þægi-
legum stað.
Opnir timar. Stundaskrá:
www.hreyfigreining.is
*Við erum í samstarfi við íslensku vigtarráðgjafana. Við tökum hressilega bæði á hreyfingu og mataræði.
Nánari upplýsingar um fleiri námskeið
og stundaskrá fyrir haustið 2007 á
www.hreyfigreining.is
HREYFI^GREINING
SJUKRAÞJALFUN OG LIKAMSRÆKT
Höfðabakka 9 Simi: 51 1-1575 www.hreyfigreining.is