blaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 22
LÆRÐU AÐ NOTA ILMKJARNAOLIUR
Námskeið um meðferð og notkun ilmkjarnaolía
* Áhrif ilmkjarnaolía á líkama og huga
* Blöndun og uppskriftir
* ítarleg umfjöllun um 20 algengar ilmkjarnaolíur
* Vegleg námskeiðsmappa fylgir
* Allt efni innifalið
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Rúna Björk Smáradóttir, ilmkjarnaoliufræðingur.
. ^
Upplýsingar og skráning á www.palmarosa.is eða í síma 691 3129 (Rúna)
Guðbjargar Björgvins
• -■
{
KLASSISKUR
BALLETT
JAZZ
BALLES
Itinritun hadfin
Byrjenda- og framhaldshópar frá 3 ára aldri
Ballettskóli Guðbjargar Björgvins
Eiðistorgi, Seltjarnarnesi
S: 561-1459 562-0091
gbballett@simnet.is F.I.L.D.
22
NÁMSKEIÐ
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaöiö
Jeppa- og ferðalagaskóli
Ferðast um landið
með auðveldum hætti
Hægt er að sækja nám-
skeið til að læra grund-
vallaratriði í sambandi
við jeppa og um helstu
aðstæður sem ökumenn
jeppa geta staðið frammi
fyrir.
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd.
svanhvit@bladid.net
Jeppa- og ferðalagaskóli Arctic
Trucks verður starfræktur annað
árið í röð í vetur en aðsóknin í fyrra
var mjög góð. Bolli Valgarðsson er
umsjónarmaður námskeiðshalds
hjá Arctic Trucks. „Við höfum
haldið eitt námskeið undanfarin
ár en í fyrra gerðum við þetta form-
lega í fyrsta sinn og höfðum fleiri
námskeið. Að sama skapi urðu nám-
skeiðin fjölbreyttari. Við vorum til
að mynda með kennslu í stafrænni
ljósmyndun, fræðslukvöld um flug-
vélarflök á suðvesturhorninu og
síðan vettvangsskoðun þar sem
fræg flugvélarflök eru staðsett. Ég
held til dæmis að fáir íslendingar
geri sér grein fyrir því að fjall á
Suðurnesjum er í rauninni skurð-
punktur í mannkynssögunni. Þar
fórst Frank M. Andrews hershöfð-
ingi sem átti að fara fyrir sameig-
inlegum herjum bandamanna til
Normandí. Þar sem hann fórst á
Islandi var Dwight D. Eisenhower
settur yfir heri bandamanna, en
hann varð stríðshetja og síðar for-
seti Bandaríkjanna. Maður veit því
ekki nema mannkynssagan hefði
orðið önnur ef vélin hefði lent heilu
og höldnu.“
Jeppafræði
í Jeppa- og ferðalagaskólanum
verður til dæmis boðið upp á jeppa-
námskeið í vetur. „Á jeppanám-
skeiðunum kennum við grundvall-
aratriði í sambandi við jeppann, um
stjórnbúnað, drif og margt fleira.
Við fjöllum líka um helstu aðstæður
sem fólk getur staðið frammi fyrir,
hvernig fólk á að aka yfir ár, hvernig
á að draga bíla og hvernig á ekki að
draga bíla, hvernig búnað er nauð-
synlegt að hafa í bílnum, klæðnað
og fleira," segir Bolli og bætir við
að alls konar fólk komi á jeppanám-
skeiðin. „Þetta eru bæði reyndir
fjallamenn og fólk sem er að kaupa
sér jeppa í fyrsta sinn, sem vill fá til-
finningu fyrir bílnum og læra ýmis
grundvallaratriði. Þegar jeppi er
keyptur þá opnast ákveðinn heimur
því allt í einu er hægt að ferðast um
landið með auðveldum hætti. Jepp-
inn veitir manni ákveðið frelsi og
opnar tækifæri til nýrra ævintýra.“
Námskeið fyrir alla
Það er ekki nauðsynlegt að skrá
Námskeið fyrir óvana
,Við erum að undirbúa
námskeið sem er sér-
staklega ætlað óvönu
jeppafólki á óbreyttum
jepplingum og jeppum."
ARCTICTRUCKS
Arctic Trucks jeppamiðstöð
er þjónustufyrirtæki sem
vinnur að lausnum fyrir fólk
sem hefur áhuga á jeppum
og ferðalögum.
Fyrirtæki Arctic Trucks var
stofnað 1990 en nafnið varð
til árið 1997.
Heimasíða Arctic Trucks er
www.arctictrucks.is
sig sérstaklega í Jeppa- og ferðalaga-
skólann heldur er nægilegt að skrá
sig í einstök námskeið. Bolli hvetur
áhugasama til að fylgjast með
heimasíðu Arctic Trucks til að sjá
hvaða námskeið verða í boði. „Við
erum að undirbúa námskeið sem er
sérstaldega ætlað óvönu jeppafólki
á óbreyttum jepplingum og jeppum.
Námskeiðið verður í rauninni dags-
ferð frá morgni til kvölds þar sem
farið verður upp á hálendi og tekist
á við aðstæður. Dagurinn verður
bara samfelld keyrsla og við búumst
við góðri mætingu,“ segir Bolli sem
er ánægður með viðtökur nám-
skeiðanna í fyrra. „Það mættu um
400 manns yfir veturinn. Reyndar
eru kynjahlutföllin mjög skökk og
þetta voru helst karlmenn. Von-
andi verður bót á því þar sem nám-
skeiðin eru ekki síður ætluð konum.
Þetta eru námskeið fyrir alla sem
hafa áhuga á að ferðast, að kunna á
bílinn sinn og vilja læra að lesa að-
stæður rétt.“
Hvetjið til ástar á lærdómi
ILestu, lestu og lestu fyrir
barnið og í að minnsta kosti
fimmtán mínútur á hverjum
degi. Þegar börnin eru orðin
eldri er tilvalið að skiptast á að
lesa; foreldri les eina blaðsíðu og
barnið les aðra. Svo má líka hafa
fjölskyldulestrarstund þar sem
allir lesa sína bók.
2Hvettu barnið til að tjá skoð-
anir sínar, tala um tilfinn-
ingar sínar og taka ákvarðanir.
Það byggir upp sjálfstraust barns
og það þorir frekar að taka þátt
í umræðum í skólanum sem og
í tómstundum. Búðu til mæli-
kvarða um ákvarðanir barnsins
þar sem þú vilt alls ekki gagn-
rýna ákvörðun þess nema að vel
rökstuddu máli.
3Hjálpið barninu að þróa áhuga-
mál sin og tryggið að barnið
hafi þá hluti sem til þarf.
4Sjáið til þess að barnið eigi
alls kyns leikföng og tæki sem
örva mismunandi tegundir lær-
dóms, allt frá því að hlusta, horfa
á, til uppröðunar og þess að sort-
era. Fyllið heimilið afvörum sem
hvetja barnið til að vera skapandi
og til að tjá sig.
Lærdómur Öll börn
hafa gaman af að læra
eitthvað nýtt og sérstak- J
lega ef umhverfi þeirra
ýtir undir það.
, tí
5Vektu athygli á öllu nýju sem
þú lærir með miklum áhuga.
Spjallið saman um mismunandi
leiðir til að finna upplýsingar
og sýndu barninu að lærdómur
er bæði skemmtilegur og
krefjandi.