blaðið - 07.09.2007, Page 24
24 | NÁMSKEIÐ
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaöió
Fagralund við
Furugrund í Kópavogi
Námskeið hefjast
12 september
Skráning í síma
891-7190
Kennari:
Sigríöur Guðjohnsen
www.sigga.is
______Skólafélagsráðgjöf
• Ráögjöf vegna náms og starfs fyrir alla aldurshópa sem
byggir á heildarsýn á aðstæöur einstaklingsins.
Áhugasviðsgreining.
• Faghandleiösla fyrir kennara og námsráðgjafa.
Styrkur úr sjúkrasjóði frá 1. des. 2005.
• Ráðgjöf við foreldra.
Guðrún Helga Sederholm, MSW félagsráðgjafi með
sérfræóiréttindi sem skólafélagsráðgjafi.
Námsráógjafi og kennari.
Lágmúla 9, 3. h. tv. Símar 864 5628 og 554 4873.
gsed@simnet.is / www.simnet.is/gsed/
Aukin ökuréttindi - Meirapróf
Nýlegir kennslubílar
ÖKU
£KOUNN
IMJODD
Næsta námskeið byrjar 19. september
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
Háskólinn á Bifröst
Spennandi nám í
fallegu umhverfi
Háskólinn á Bifröst býður
upp á spennandi mögu-
leika í vetur enda hafa
nemendur skólans aldrei
verið fieiri.
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd.
svanhvit@bladid.net
Háskólinn á Bifröst er háskóli í
félagsvísindum sem veitir kennslu í
viðskiptafræði, lögfræði, heimspeki,
stjórnmálafræði og hagfræði auk
þess að undirbúa nemendur fyrir
háskólanám.
Um þessar mundir er skólastarf
að hefjast að nýju við skólann og
samkvæmt Rebekku Rán Samper,
markaðsstjóra Háskólans á Bifröst,
hafa aldrei verið fleiri nemendur í
námi við skólann. „Við höfum líka
sótt í okkur veðrið með opnun úti-
búa skólans, bæði á Austurlandi
og Vestfjörðum þar sem núverandi
og tilvonandi nemendum er veittur
stuðningur við fjarnám.“
Máttur kvenna
I ár er boðið upp á frumgreina-
deild í fjarnámi í fyrsta sinn á Bifröst.
„Það sóttu mun fleiri um fjarnám í
frumgreinadeild en komust að sem
sýnir enn og aftur þá miklu þörf sem
er á úrræðum fyrir fólk sem vill hefja
háskólanám eftir lengri eða skemmri
fjarveru frá námi. Það hefur líka sýnt
sig í miklum fjölda umsókna í nám-
skeið sem við köllum Máttur kvenna
að konur hafa í auknum mæli áhuga
á að skerpa rekstrarkunnáttu sína.
Máttur kvenna (fyrra sýndi og sann-
aði að konur eiga eftir að láta meira
að sér kveða í íslensku viðskiptalífi
á komandi árum og Háskólinn á
Bifröst vill gjarnan stuðla að þeirri
þróun.“
Rekstur smærri fyrirtækja
Rebekka segir að auk þess sé
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST
Skólinn á rætur sínar að
rekja til Samvinnuskólans
sem var stofnaður árið
1918 í Reykjavík.
Jónas Jónsson frá Hriflu var
fyrsti skólastjóri skólans.
Sumarið 1955 var skólinn
fluttur að Bifröst í Norður-
árdal í Borgarfirði og hefur
verið starfræktur þar síðan.
margt spennandi framundan. „f
haust hefst nýtt nám við skólann
sem við köllum RSF eða rekstur
smærri fyrirtækja. Námið höfðar
jafnt til karla og kvenna sem hafa
verið í rekstri eða vilja hefja rekstur
smærri fyrirtækja en eru ekki með
viðskiptafræðimenntun að baki.
Slíkt nám skerpir á öllu því er lítur að
daglegum rekstri lítils fyrirtækis. Að-
sóknin að RSF-náminu okkar hefur
líka verið framar björtustu vonum.
Þá hófu deildirnar okkar þrjár, við-
skiptadeild, lagadeild og félagsvís-
indadeild, starf sitt í grunn- og fram-
haldsnámi sem deildirnar bjóða upp
á, en skólinn hefur verið undirlagður
af meistaranemum í sumar sem hafa
gefið skólalífinu skemmtilegan og
fjörlegan blæ enda fólk úr ólíkum
áttum sem deilir saman háskóla-
þorpinu á þeim tíma.“
Nýjar fbúðir
Á sumrin er nokkuð alþjóðlegur
blær á skólastarfinu samkvæmt
Rebekku enda mikið um erlenda
kennara sem heimsækja Bifröst
á sumarmánuðum til að búa og
starfa í háskólaþorpinu. „Það hefur
verið mikið uppbyggingarstarf í
húsnæðismálum á háskólasvæðinu
og 48 nýjar íbúðir hafa þegar verið
teknar í gagnið,“ segir Rebekka
sem hlakkar til að takast á við nýtt
skólaár. „Næstkomandi laugardag
verða 60 nemendur útskrifaðir frá
Háskólanum á Bifröst og hefur há-
skólinn þá útskrifað samtals 158
nemendur það sem af er árinu auk
þess sem 110 nemendur hafa lokið
námi í frumgreinadeild á árinu.“
--------------------------------
Gott vinnurými fyrir námið í vetur
Stundum er erfitt að sjá að með
góðu móti sé hægt að koma fyrir
vinnurými í lítilli íbúð. Lausn-
irnar geta hins vegar verið með
ýmsu móti eins og hér má sjá og
hægt að nota efni sem til fellur í
venjulegu heimilishaldi til brúks,
svo sem tómar málningardósir,
tóma morgunkornskassa og
margt fleira.
Tómar málning-
ardósir sem
hirslur
í ýmsum málning-
arvöruverslunum
má festa kaup á
tómum málningar-
dósum. Þær má
nota sem ansi
nútímalegar og
einfaldar hirslur. í
þeim má geyma ýmislegt smálegt eins
og penna, bréf, reikninga, bréfaklemmur,
hefti, teygjur ofl. Gott er að festa þær
með tvöföldu limbandi svo þær veltist
ekki um í hillunni.
Skrifstofa á
neðri hæðinni
í litlum barnaher-
bergjum er góð
lausn að staðsetja
skrifborð og skrif-
borðsstól undir
koju. Ekkl þarf
mikinn tilkostnað
til að útbúa slíka
vinnuaðstöðu.
Einfalda borðplötu má festa við vegg og
setja færanlegar skúffur við hana. Þá er
hægt að mála með krítartöflumálningu
fyrir ofan skrifborðið þar sem hægt er að
skrifa minnisþunkta og reikna stærð-
fræðidæmi.
Eldhúsið er hlý-
legt vinnurými
Af einhverjum
ástæðum finnst
mörgum þægilegt
að læra eða vinna
í eldhúsinu. Þar
er hlýlegt og
oft góð birta. Ef
eldhúsið er með
stærra móti má jafnvel koma fyrir ágætri
vinnuaðstöðu og testa ugp korkplötur
og mála með krítartöflumálningu. Aðstöð-
una má þá nota einnig fyrir uppskriftir og
heimilisbókhaldið.
Morgunverð-
arkassarnir
reynast
fyrirtaks
skjalageymsl-
ur
Morgunkorn er
víða brúkað í
morgunmat og
barnafjölskyld-
ur tæma hvern
kassann á eftir
öðrum. Þá er
hægt að nýta sem skjalageymslur með
því að skera þá til með skurðarhníf. Ef
þeir þykja ekki fagrir má leyfa börnunum
að skreyta þá að vild, skera niður skraut-
pappír og festa á með lími. Þeir sem
þjást af fullkomnunaráráttu geta fóðrað
þá almennilega að utan með fallegum
pappír með því að nota Ijósmyndalím.
%
c &
K
fc-ífí.
FJARNÁM
ÖFLUGT
OG ÖDÝRT
og
Ml
I
Skráning á www.verslo.is
28. ágúst -10. september VER7LUNARSKÖLI ^ ÍSLANDS
ÍK