blaðið - 07.09.2007, Qupperneq 25
blaóið
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
25
KYNNING
Skiptir máli
aö borða rétt
Verslunin Maður lifandi stendur
fyrir mörgum áhugaverðum nám-
skeiðum á veturna sem flest snúast
um hollara líferni. Hjördís Ásberg,
framkvæmdastjóri Maður lifandi,
segist finna glöggt fyrir auknum
áhuga á hollustu á þeim þremur
árum sem Maður lifandi hefur
verið starfrækt. „Við finnum vel
fyrir því að fólk er stöðugt að færa
sig yfir í hollara mataræði. Sumir
eru mjög ákveðnir en aðrir þreifa
fyrir sér. Það er líka orðið meira
um að fólk kaupi hollar matvörur
fyrir börnin sín og kaupi jafnvel
nesti í skólann hjá okkur, bæði
holla djúsa sem og brauð.“
Fullsetin námskeið
Hjördís talar um að líka megi sjá
aukinn áhuga á hollustu á aðsókn-
inni á námskeiðin. „Heilsukostur
er matreiðslunámskeið sem er
sérstaklega vinsælt hjá okkur og við
höldum þau reglulega. Það hefur
verið gríðarlega góð þátttaka í þeim
og þau eru alltaf fullsetin. Á nám-
skeiðinu Heilsukostur er fjallað um
hvernig gott mataræði eigi að vera,
hvernig fólk getur byrjað að borða
heilsufæði án þess að það sé of erfitt.
Eins er fjallað um hvernig eigi að
matreiða hollan og góðan mat með
auðveldum hætti,“ segir Hjördís og
telur upp fleiri vinsæl námskeið hjá
Maður lifandi. „Sólveig Eiríksdóttir
er með hráfæðisnámskeið og það er
mjög vaxandi þátttaka í því. Solla
bauð upp á sambærilegt námskeið
í fyrra og annaði varla eftirspurn
enda aukinn áhugi á hráfæði. Auk
þess eru námskeið með Eddu Björg-
vinsdóttur og Benediktu Jónsdóttur
alltafvinsæl."
Hjördís Ásberg „Við finnum vel fyrir því
að fólk er stöðugt að færa sig yfir i hollara
mataræði."
Mataræði barna
Maður lifandi hefur vaxið gríð-
arlega frá opnun fyrsta staðarins
og Hjördís segir að það sýni hve
almennur áhugi í þjóðfélaginu er
mikill. „Fólk er sífellt að átta sig
betur á því hvað þetta skiptir miklu
máli og að það er hægt að ráða
við ýmsa sjúkdóma og kvilla með
því að borða rétt.“ I haust er boðið
upp á ýmis ný námskeið í Maður
lifandi sem Hjördís segir að séu
mjög áhugaverð. „Til dæmis verður
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir
með námskeið um áhrif jurta
með sérstakri áherslu á hörn. Eins
verður Edda Guðný Guðmunds-
dóttir með námskeið um mataræði
barna og hvernig eigi að útbúa mat
fyrir ungbörn og aðeins eldri börn
auk þess sem Tryggvi Helgason
barnalæknir verður með námskeið
um offitu barna.“
NÁMSKEIÐIN
ERU AÐ HEFJAST
ÍTALSKA 1 mánud. og fimmtud. 17. sept. -11. okt. kl. 18-19:30
ÍTALSKA II mánud. og fimmtud. 22. okt. - 15. nóv. kl. 18-19:30
SPÆNSKA 1 þriðjud. og miðvikud. 18. sept. - 10. okt. kl. 18-19:30
SPÆNSKA II þriðjud. og miðvikud. 23. okt. - 14. nóv. kl. 18-19:30
ENSKA 1 mánud. og fimmtud. 24. sept. - 18. okt. kl. 18-19:30
ENSKA II mánud. og fimmtud. 22. okt. - 15. nóv. kl. 18-19:30
JAPANSKA þriðjud: og miðvikud. 2.okt. - 24 okt. kl. 19-21:00
DANSKA þriðjud. og miðvikud. 9. okt - 31. okt. kl. 18:30-20 I
FRANSKA mánud. og miðvikud. 1. okt - 24. okt. kl. 20-21:30
ÞÝSKA 1 mánud. og fimmtud. 24. sept. - 18. okt. kl. 18-19:30
ÞÝSKA II ménud. og fimmtud. 22. okt. - 15. nóv. kl. 18-20:00
PORTÚGALSKA þriðjud. og fimmtud. 25. sept. - 18. okt. kl. 18-19:30
ICELANDIC 1 Tues. and Wed, 2. oct. - 24. oct. kl. 18-19:30
ICELANDIC II Tues. and Wed. 6. nov - 28. nov. kl. 19:30-21
Litlir hópar, faerir kennarar, persónuleg kennsla.
Kennt í Odda, Háskóla íslands
Málaskólinn LINGVA, sími 561 03 15, www.lingva.is ••
Einbeitt Góð stelling
getur skipt höfuðmáli
þegar verið er að læra.
Góðar lærdómsvenjur
Strax í byrjun skólaárs eða nám-
skeiða er gott að venja sig á góðar
lærdómsvenjur. Góðar venjur
gera verkið auðveldara auk þess
sem árangurinn verður meiri.
Hér eru fjögur góð ráð.
1. Forðastu sársauka í höndum
eðahálsi.
Finndu hvernig best er að sitja
við tölvu eða borð, rétt stelling
getur gert gæfumuninn.
2. Sofðu vel
Það er mikilvægt að fá nægan
svefn svo heilinn sé virkur. Breyttu
svefnvenjum þínum ef þú færð ekki
nægan svefn á nóttinni. Heitt bað
fyrir svefninn, flóuð mjólk eða afs-
löppun getur hjálpað.
3. Bættu matarvenjurnar
Það er erfitt að læra ef orkan er
lítil en hægt er að fá meiri orku
með því að borða rétt. Einn banani
þegar þreytan segir til sín getur
gert kraftaverk.
4. Vertu einbeitt/ur.
Finnurðu fyrir þörf til að gera
eitthvað allt annað þegar þú ert að
læra og lætur það eftir þér? Það er
ágæt regla að standa upp einu sinni
á hverjum klukkutíma og fá sér
pásu í fimm mínútur.
Mambó
Tjútt
Freestyle
Break
Salsa
BrúÖarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámskeið fyrir hópa
Nýjustu tískudansarnir
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ýmis starfsmanna- stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiöa.
DANSSKÓU
Jóns Peturs og Iíöru
Dansráö íslands | Faglærðir danskennarar
Borgartúnó | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is
F