blaðið - 07.09.2007, Page 27
blaðið
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
NÁMSKEIÐ
27
Skosk æðri menntun
Nemendur fræðast um yfirnáttúruleg fyrirbæri
Háskólinn í Glasgow hyggst nú
á haustmánuðum bjóða fólki upp
á allsérstakt námskeið þar sem
umfjöllunarefnið verður draugar,
miðlar og önnur yfirnáttúruleg
fyrirbæri. Námskeiðið er hug-
arfóstur prófessors við skólann,
Archie Roy, sem kennt hefur við
skólann um árabil við góðan
orðstír.
Draugar ekki lengur vafamál
Nemendum mun standa til boða
að sitja þetta námskeið, sem mun
ná yfir 20 vikna tímabil, fyrir um
17.000 krónur. Hinn 81 árs gamli
Archie Roy, sem hyggst kenna
sjálfur á námskeiðinu, segir að
þökk sé nútímavísindum sé ekki
lengur hægt að afneita tilvist þess-
ara yfirnáttúrulegu fyrirbæra.
„Rannsakendur á þessu sviði hafa
rannsakað þessi fyrirbæri um
árabil og hafa því sannað tilvist
þeirra.“
Hættulegt kjaftæði
En eins og við er að búast eru
ekki allir sáttir við þetta fyrirhug-
aða námskeið og hafa sumir gengið
svo langt að segja námskeiðið sam-
anstanda af hættulegu bulli og að
það eigi ekki heima í virtri mennta-
og rannsóknarstofnun. Samtökin
National Secular Society, sem berj-
ast gegn hvers konar áhrifum hjá-
trúar og hindurvitna, hafa einnig
lagt orð í belg og sagt að þau viti
ekki hvort þau eigi að hlæja eða
gráta vegna þessa námskeiðs.
Draugar og endurholdgun
Námskeiðið mun samanstanda
af fjölmörgum fyrirlestrum þar
sem fjallað verður um mismunandi
málefni hverju sinni. Á meðal þess
efnis sem verður á námskránni eru
draugar, draugahús, miðlar, ærsla-
draugar, andalækningar, miðla-
skurðlækningar, endurholdgun og
andsetningar. Reikna má með að
aðsóknin á þetta námskeið verði í
góðu samræmi við gagnrýnina sem
námskeiðið hlýtur.
Háskólinn í Glasgow Býður upp á
afar umdeilt námskeið um drauga og
þess háttar viðfangsefni.
Hvernig
lærir þú?
Hvemig námstaékni
hentar þér best?
Góð og skilvirk námstækni
skiptir miklu máli í krefjandi námi.
Ýmsar leiðir eru til þess að koma
sér upp góðum vinnubrögðum en
áður en hafist er handa er ágætt
að öðlast skilning á því hvernig
eiginleikar þínir skipta máli þegar
kemur að því að læra.
Þegar tekist er á við nýtt
námsefni, finnst þér best að:
• 1. Lesa námsefnið
• 2. Hlusta á einhvern skýra
frá námsefninu
• 3. Taka þátt í umræðu um
námsefnið með öðrum eða
gera tilraunir sem auka
skilning
Svar við spurningunum hér
að ofan er vísbending um hvaða
námstækni hentar þér best.
Með því að skilja hvaða náms-
tækni hentar þér best geturðu
sniðið námið að þörfum þínum
þannig að námið verði þér léttara
og taki styttri tíma en annars.
Að horfa til að muna
Ef þú vilt lesa námsefnið sjálfur
er líklegt að þú meðtakir á skilvirk-
astan hátt upplýsingar sjónrænt
(texti í bókum og skýringarmyndir).
Slíkir námsmenn hafa gott af því að
teikna upp gröf og nota myndræn
orð til að muna hugtök.
Að hlusta til að muna
Ef þú vilt frekar hlusta á út-
skýringar áttu auðveldara með
að muna upplýsingar með því að
nota virka hlustun. Hlusta á efni
aftur og aftur. Gott er að nota til
þess hljóðbækur og margir taka
einnig til þess bragðs að taka upp
eigin lestur með aðstoð upptöku-
tækis. Margar fartölvur eru út-
búnar upptökubúnaði sem nýtist
námsmönnum á þennan hátt, og
jafnvel farsímar líka.
Að gera til að muna
Ef þér finnst gott að ræða við
aðra um námsefnið og spyrja
spurninga um efnið til að búa til
mynd af því þarftu virka náms
tækni til að dýpka á hugtakaskiln
ingi þínum. Gera tilraunir, spyrja
spurninga og að yfirfæra náms
efnið í eigin raunveruleika.
Skráðu þig á spennandi námskeið sem byggir á því sem kemur
fram í myndinni og bókinni „The Secret" - Leyndarmálinu:
Bob ProctoKs
The Goal Achiever
Purpose -> Vision -> Goals -> Success
Fyrirlesari: Oddmund Berger, framkvæmdastjóri LifeSuccess Nordic
etta skemmtilega og líflega námskeið sem nú er haldið í annað sinn á íslandi, færir þér
hagnýt ráð og hnitmiðaðar hugmyndir til að öðlast það sem þú sækist eftir á öllum
sviðum lífsins, hvort heldur sem það er í starfi eða einkalífi. Það byggir á því sem fjallað
er um í myndinni „The Secret" Levndarmálinu og kennir þér hvernig þú getur virkjað Aðdráttar-
lögmálið (The Law of Attraction) til að láta draumana rætast — miklu fyrr en þig grunar!
Hvar: Háskólabíói, salur 2.
Hvenær: Laugardagur 8. september 2007.
Tími: Kl. 09:30-17:00
Á þessu námskeiði lærir þú að brúa bilið á milli þess að setja þér markmið og koma þeim síðan í framkvæmd. Þú
lærir hvernig allt sem þú gerir og hugsar hefur áhrif á líf þitt og örlög. Þú lærir að skapa þér spennaridi framtíðarsýn,
setja þér áhugaverð markmið og forgangsraða síðan daglegum verkefnum.
Meðal þess sem þú lærir er:
Að ákveða á kerfisbundinn hátt hvað það er sem þú
raunverulega vilt og þráir og síðan sett þér viðeigandi markmið
sem hjálpa þér að láta draumana rætast.
- Að koma auga á hindranir og hemla í eigin Iffi og umhverfi og
eytt áhrifum þeirra þannig að þú verðir óstöðvandi.
- Að forgangsraða markmiðum, hvort sem þau eru 5 eða 5000!
- Að koma augá mikilvægasta markmiðið - markmið #1
- Að skapa þér spennandi og sigursæla framtíðarsýn.
Fyrirlesarinn Oddmund Berger er framkvæmdastjóri LifeSuccess Nordic. Hann var hér síðast á ferð í lok maí og var
þá með fjölsótt Goal Achiever námskeið sem hátt í þrjúhundruð þátttakendur sóttu. Námskeiðið er eftir Bob Proctor
úr mvndinni „The Secret" en hann hefur á 45 ára ferli sínum sem fyrirlesari verið með námskeið sem hundruðir
þúsunda þátttakenda um allan heim, hafa sótt.
Námskeiðsgjald: Kr. 15.995 TILBOÐ: Kr. 12.995 (Gildir til 6. september) Takmarkaður fjöldi, bókaðu í dag!
Hópafslættir: 3+1 FRÍTT (25% afsláttur) og 7+3 FRÍTT (30% afsláttur).
Innifalið: Námskeiðsgögn og penni (allt nema veitingar).
Fjölmörg stéttarfélög og starfsmenntasjóðir endurgreiða félagsaðilum sínum námskeiðsgjaldið að hluta eða í
heild. Athugaðu málið hjá þínu félagi.
Skráning og nánari upplýsingar: www.stjornandinn.is
Skráning með tölvupósti: stjornandinn@stjornandinn.is
Símaskráning: 846-0149
Stjórnunarfélag Islands