blaðið - 07.09.2007, Qupperneq 30
30
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaðió
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@bladid.net
<^p Miðað við að keyrt sé undir ákveðnum
^ hraða ætti að vera að hægt að keyra
bíiinn nánast eingöngu á rafmagni, að
minnta kosti í venjulegum innanbæjarakstri.
ÚR BÍLSKÚRNUM
Tengitvinnbílar gætu minnkað eyðslu og útblástur bíla um 70-80%
® 47 cm lenging Eitt af útspilum
VW í Frankfurt í næstu viku
verður Caddy Maxi Life, stækkuð
fólksbílaútgáfa af sendibílnum
Caddy. Bíllinn hefur verið lengdur
um 47 cm, er búinn 140 hestafla
dísilvél (eða 100 hestafla bens-
ínvél), sjö sætum og gríðarlega
sveigjanlegu og rúmgóðu farm-
og farþegarými.
• Sölutrix? Á þriðjudag birtist
myndband á youtube.com af
BMW concept X6, nýja fjór-
hjóladrifna coupé-bílnum
frá bílasmiðunum bæversku.
Myndbandið er búið til af
markaðsdeild BMW og sýnir
ofuráhugasaman spyril hlaupa
nokkra hringi í kringum bílinn,
sem er falinn undir yfirbreiðu,
og spyrja Chris Bangle, hönnun-
arstjóra BMW, ítrekað hvenær
hann fái að prófa. Leitið að „
BMW Concept X6“. Leitin ætti
líka að skila nokkrum njósna-
myndböndum af bílnum.
• Yahoo-kort f bílinn BMW-
eigendur í Þýskalandi hafa
undanfarið getað sótt kort og
leiðbeiningar af Google Maps
beint í bílinn til sín. Nú hefur
Mercedes Benz siglt í kjölfarið
og býður 2007 árgerðina af S og
CL class-bílum sínum með leið-
sögutæki sem er beintengt við
Yahoo Local Maps.
• Lélegir bílstjórar? MIT-tækni-
háskólinn er nú á fullu að und-
irbúa bíl til að taka þátt í Urban
Challenge-keppninni, hvar sjálf-
keyrandi, mannlausir bilar keppa
í lokaðri þrautabraut. Bíllinn er bú-
inn 40 örgjörvum, fullkomnu GPS-
tæki, skynjurum, leiserskanna,
ofurnákvæmum hraðamælum og
slatta af myndavélum.
• Sigurvegari til sýnis Flux er
sigurtillaga Mihai Panaitescu í
hönnunarkeppni Peugeot, sem
haldin var í tengslum við bíla-
sýninguna í Genf í mars. Bíllinn
verður fullgerður til sýnis í
Frankfurt í næstu viku.
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Iteilsérsdekfc
velwdakk
jhryjgi bilsins
byggist
ágöðum
bjélbörðum
Lh'i'Jilíi
www.qun
tofan
Gúmmðvinnustofan
SP döMc - SWpMti 35 -1©5 R
Sími:5531055
COOnfÝEAR
SjCULKL
ríflL/íEn
Bíllinn hlaðinn eins og sími
Orkugajafar framtíðar-
innar og lausnir í sam-
göngum eru aðalefni
ráðstefnunnar Driving
Sustainability '07. í
tengslum við hana lítur
fyrsti tengitvinnbíll lands-
ins nú dagsins Ijós.
Eftir Einar Elí Magnússon
einareli@bladid.net
„í tengitvinnbílum er verið að
auka við rafmagnshlutann í bílnum,
miðað við venjulegan tvinnbíl,“ segir
Sigurður Ingi Friðleifsson, fram-
kvæmdastjóri Orkuseturs. Hann
er frumkvöðullinn á bak við breyt-
ingu á fyrsta tengitvinnbílnum á
Islandi. Breytingunni lýkur í dag og
þá tekur við prófun og gagnasöfnun
í eitt ár en bíllinn er í einkaeign.
Stærri rafhlaða, minni eyðsla
„I bílinn er sett stærri rafhlaða
og opnað fyrir þann möguleika
að stinga honum í samband við ut-
anaðkomandi rafmagn. Það þýðir
að hægt er að keyra mun lengri
vegalengdir á rafmagninu einu
saman. Miðað við að keyrt sé undir
ákveðnum hraða ætti að vera að
hægt að keyra bílinn nánast ein-
göngu á rafmagni, að minnta kosti
í venjulegum innanbæjarakstri.
Stundum er sagt að tvinnbílar séu
bensínbílar með rafmagnshjálpar-
mótor. Tengitvinnbílar eru frekar
rafmagnsbílar með bensínhjálpar-
mótor,“ segir Sigurður.
„Ef þessi tækni nær útbreiðslu
verða bílarnir meira og minna
hlaðnir á nóttunni. Það mundi bæta
nýtnina á raforkukerfinu gríðarlega
því almenn heimilisnotkun er mjög
sveiflukennd. Við notum sama og
ekkert á nóttunni en svo er allt í
botni yfir daginn," segir Sigurður
og bætir við að það sé ekkert erfið-
ara að stinga bílnum í samband á
nóttunni en fartölvu, farsíma eða
Dagana 17.-18. september.
í tengslum við samgöngu-
viku Reykjavíkurborgar.
Alþjóðlegir sérfræðingar
fjalla um innleiðingu nýrra
orkugjafa í samgöngum og
hvernig ísland geti orðið
leiðandi á því sviði.
www.driving.is
öðrum smátækjum. „Það er búið að
venja okkur á snúrurnar."
Sigurður segir að þar sem um
einskonar millitækni sé að ræða
sé mjög líklegt að bílar framtíðar-
innar verði tengitvinnbílar, burtséð
frá því hvaða annan orkugjafa þeir
noti. „Fræðilega gæti tengitvinnbíll
gengið fyrir hverju því eldsneyti,
auk rafmagnsins, sem við ákveðum
að nýta á næstu árum. Það gæti til
dæmis verið etanól eða vetni og það
er mjög líklegt að framtíðarvetnis-
bíllinn verði tengitvinnbíll.“
Bíllinn sem er verið að breyta
er Toyota Prius-tvinnbíll sem er
í einkaeign. Grannt verður fylgst
með bílnum næsta árið til að safna
upplýsingum og gögnum sem
margir hagsmunaaðilar munu nýta
í framtíðinni.
Leysir útblástursvandann
„Ef þessi tækni nær fótfestu gæti
hún fræðilega leyst útblásturs- og
eldsneytisvanda okkar. Efvið náum
niður eyðslunni og útblæstrinum
um 70-80% með þessari tækni, þá
er þetta komið. Og það án þess að
gjörbreyta lífsstíl okkar.“
Breytingin sem slik er einföld,
en mjög kostnaðarsöm. Það eru
breskir sérfræðingar frá fyrirtæk-
inu Amber Jack sem breyta bílnum
en aðeins örfáir bílar í Evrópu eru
búnir tengitvinntækni.
„Það er orðið kapphlaup hjá
bílaframleiðendum að bjóða upp
á fyrsta tengitvinnbílinn. Þetta
snýst bara um kostnað og mark-
aðssetningu núna, það eru engar
tæknilegar stórhindranir sem þarf
að yfirstíga lengur. Fyrsti fram-
leiðandinn sem býður svona bíl á
verði sem neytendur sætta sig við
mun ná gífurlegu forskoti,“ segir
Sigurður.
Icecool aftur
á pólinn
Pólfarinn og heimsmetahaflnn
Gunnar Egilsson hefur nú smíðað
þriðja sex hjóla Ford Econoline-bíl-
inn. Það eru Bretarnir sem fóru
með Gunnari á suðurpólinn sem
pöntuðu bílinn og er hann þegar
farinn til Bretlands. Þaðan fer
hann á suðurskautið þar sem hann
verður notaður í ýmis verkefni.
Nýr RS6
Ef þú ert að leita að hentugri
jólagjöf er hér hugmynd: Nýr
Audi RS6 með 580 hestafla V-10
FSI mótor. Togið í skepnunni er
650 Nm og 0-100 tíminn er 4,6
sekúndur. Sem er allt i lagi fyrir
2.025 kg skutbíl. Það þýðir að
hvert hestafl þarf aðeins að knýja
áfram 3,5 kg.
Eftirlíkingar
ekki sýndar
Tveir kínverskir bílar, sem áttu að
vera til sýnis á bílasýningunni í
Frankfurt í næstu viku, hafa verið
dregnir út úr sýningunni. Bílarnir
voru augljóslega eftirlíkingar
annarra bíla, annars vegar BMW
X5 og hins vegar Smart Fortwo
og komu frá sama framleiðand-
anum sem heitir Shuanghuan.
Meðfylgjandi mynd sýnir Smart
Fortwo til hægri og eftirlíking-
una Noble til vinstri. Talsmaður
fyrirtækisins segir að þrátt fyrir
hótanir um lögsóknir séu allir
bílar framleiðandans löglegir.
ÚR BÍLSKÚRNUM
• Frakkland í samband í næstu
viku er búist við því að Toyota
bílaframleiðandinn og franska
orkufyrirtækið EDF sendi frá
sér tilkynningu þess efnis að
fyrirtækin muni vinna saman
að því koma upp hleðslu-
stöðvum fyrir tengitvinnbíla.
í upphafi verður dreifikerfi
komið upp í Frakklandi, en
síðar í fleiri löndum Evrópu,
til dæmis Þýskalandi, Ítalíu og
Bretlandi. Stöðvar sem þessar
eru nauðsynlegar fyrir út-
breiðslu tengitvinntækninnar.
• Litlunefndarferð Litlanefnd
Ferðaklúbbsins 4x4 hyggst halda
í fyrstu ferð vetrarins 21.-23. sept-
ember. Boðið verður upp á tvo
brottfarartíma, bæði á föstudags-
kvöldi og laugardagsmorgni, og
stefnan er tekin á Setrið, skála
klúbbsins. Allar frekari upplýs-
ingar og skráning á vef Ferða-
klúbbsins 4x4, www.f4x4.is.
• Pajero-ferð Þann 15. sept-
ember fer Pajero-klúbburinn í
stórferð um Krakatindssvæðið
og Fjallabak. Ríflega 700 félagar
eru skráðir i klúbbinn og mun
þessi ferð vera sú stærsta sem
klúbburinn hefur staðið fyrir til
þessa. Félögum er bent á að skrá
sig á www.mitsubishi.is.