blaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 34
34
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaóiö
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@bladid.net
Leti er ekkert annað en sú venja
að hvíla sig áður en maður
verður þreyttur.
Johann Wolfgang von Goethe
Hátíö í bæ
Bókmenntahátíðin í Reykjavík
verður haldin í áttunda skipti
dagana 9.-15. september 2007.
Hátíðin verður sett við form-
lega athöfn í glerskálanum við
Norræna húsið, sunnudaginn
9. sept kl. 17:00-19:00. Nóbels-
verðlaunahafinn John Maxwell
Coetzee frá Suður-Afríku
verður meðal ræðumanna við
setninguna.
Athyglisverðir gestir
Auglýst dagskrá bókmennta-
hátíðar hefst í Iðnó kl. 20:00
sama kvöld með upplestrum
íslenskra og erlendra höfunda.
Tveir af athyglisverðustu
gestum hátíðarinnar, Nóbels-
verðlaunahafinn J. M. Coetzee
og Ayaan Hirsi Ali, lesa úr
verkum sínum strax á opnun-
arkvöldinu. Ali er þekktust
fyrir gagnrýni á stöðu kvenna
í íslömskum ríkjum og var
kosin ein af 100 áhrifamestu
persónum í heiminum árið
2005 af tímaritinu TIME. Alla
hátíðarvikuna (að fimmtu-
degi undanskildum) munu
fara fram viðtöl við erlenda
höfunda kl. 12:00-13:00 og kl.
14:00-15:00 í Norræna húsinu
og upplestrar frá kl. 20:00 í
Iðnó.
Viðamesta bókmenntahátíðin
Tuttugu og einn höfundur frá
fjórum heimsálfum tekur þátt
í hátíðinni í ár. Þeirra á meðal
eru bæði heimsþekktir verð-
launahöfundar sem og ungir
og efnilegir rithöfundar sem
þegar hafa skrifað metsölu-
bækur í sínum heimalöndum.
Meðal íslensku þátttakend-
anna eru margir af ástsælustu
höfundum landsins.
Bókmenntahátíðin í ár er sú
viðamesta og fjölmennasta
sem haldin hefur verið, en sú
fyrsta var haldin árið 1985.
AFMÆLI í DAG
Elísabet 1. Englandsdrottning,
1533
Buddy Holly rokksöngvari, 1936
Luciano Pavarotti, einn ástsælasti óperusöngvari sögunnar, er látinn
„Svona hef ég
aldrei heyrt áður“
Luciano Pavarotti er
látinn. Mikil raddfegurð,
einstök tækni og jákvæð
útgeislun voru einkenni
hans að mati íslenskra
óperusöngvara sem Blað-
ið ræddi við.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@bladid.net
Fáir óperusöngvarar hafa notið
jafn mikillar alþýðuhylli og ítalski
tenórsöngvarinn Luciano Pavarotti
sem nú er látinn úr krabbameini, 71
árs. Frægð hans náði langt út fyrir
óperuheiminn og segja má að hann
hafi öðlast stöðu poppgoðs í huga
milljóna manna.
Ótrúlegir tónleikar
„í fyrsta sinn sem ég sá hann var
á tónleikum hans í Laugardalshöll-
inni árið 1980,“ segir Kristinn Sig-
mundsson söngvari. „Það voru for-
setakosningar það ár og einhverjir
höfðu skilað miðunum sínum af því
að þeir ætluðu að horfa á kappræður
forsetaframbjóðendanna í sjón-
varpi og áttuðu sig greinilega ekki
á því hvers konar stórviðburður var
þarna á ferðinni. Þetta voru aldeilis
ótrúlegir tónleikar. Ég held að eng-
inn viðstaddra hafi nokkru sinni
heyrt eitthvað þessu líkt. Ég sat við
hliðina á Guðmundi Jónssyni söngv-
ara sem varð seinna kennari minn
og varð samferða honum þegar við
gengum út úr höllinni. Hann var
endalaust að tauta fyrir munni sér:
„Svona hef ég aldrei heyrt áður“.
Þessir tónleikar voru ótrúlegir.
Persónutöfrar Pavarottis voru slíkir
að hann töfraði alla, allt frá fyrsta
bekk og upp í rjáfur. Röddin var
ótrúleg, gullfalleg. Hvað tækni
varðar hefur enginn komist með
tærnar þar sem Pavarotti hafði hæl-
ana. Það var eitthvað alveg sérstakt
við þennan mann, söngurinn var
honum svo eðlilegur og auðveldur.
Að hinum tenórunum ólöstuðum,
Carreras og Domingo, þá fannst
mér Pavarotti alltaf bera af þegar
þeir komu saman þrír. í fyrsta sinn
sem þeir sungu saman á Ítalíu var
nánast eins og hann væri að taka
hina tvo í söngtíma."
Hann var raddundur
Bergþór Pálsson söngvari segir
um Pavarotti: „Hann er ein glæst-
asta söngstjarna heims fyrr og síðar.
Hann var raddundur. Það var eins og
hann hefði ekki fyrir nokkrum hlut.
Allt virtist svo auðvelt. Hann stóð
öllum framar í tækni og raddfegurð."
„Pavarotti var með ótrúlega fal-
lega og túlkunarmikla rödd. Hann
var tæknilega mjög góður söngvari,"
segir Garðar Cortes, söngvari og
söngkennari. „Túlkun hans í Rigol-
etto og Luciu di Lammemoor er mér
minnisstæð. Sem hertoginn í Rigol-
etto hljómar hann lostafullur og leið-
inlegur karakter, en sem Edcardo í
Luciu er hann ástfanginn og röddin
er allt öðruvísi þótt hann sé ítalskur
tenór að syngja ítalska aríu.
Hann var yfirstærð á alla vegu.
Sem söngvari söng hann hærra og
bjartara en flestir aðrir og sem per-
sóna virkaði hann stór þannig að
maður tók eftir. Hann var góður svo
lengi og dalaði aldrei.“
„He's the man,“ segir Gunnar Guð-
björnsson söngvari þegar hann er
spurður álits á Pavarotti. „Ég hitti
hann í London fyrir átján árum,
eftir sýningu á Ástardrykknum. Ég
hef sjaldan upplifað aðra eins áru
hjá einum manni. Hann hafði þetta
óskaplega fallega brosandi andlit
en það var ekki bara andlitið sem
brosti, það geislaði af honum öllum.
Hann tók í fyrstu ekkert eftir mér
en var upptekinn af konunni minni
sem hann sagði vera fallega um leið
og hann klappaði henni á kinnina
með þeim afleiðingum að næstu
daga fékkst hún ekki til að þvo sér í
framan.
Það er mjög eftirminnilegt að
hafa hitt hann vegna þess að þessi
jákvæða og góða útgeislun var svo
sérstök. Sem söngvari var hann
óviðjafnanlegur og háu c-in hans
voru stórkostleg og hann hélt þeim
ótrúlega lengi. Hann bjó yfir mikilli
tækni, raddfegurð og útgeislun sem
setti hann á stall sem hann verður
ekki færður af.“
Meö eiginkonu og yngstu dóttur
MAÐURINN
Luciano Pavarotti, sem var
bakarasonur, fæddist 12.
október1935 í Modenaá
Ítalíu og lést úr krabbameini
6. september 2007.
Hann eignaðist fjórar dætur
með fyrri eiginkonu sinni,
Adua. Hann kvæntist seinni
eiginkonu sinni, Nicolettu,
árið 2003. Dóttir þeirra, Al-
ice, fæddist sama ár.
Pavarotti vann ötullega að
góðgerðamálum og hlaut
verðlaun og viðurkenningar
vegna þeirra starfa sinna.
Starfar þú með gigtarfólki?
Átt þú erindi á samnorræna þverfaglega gigtarráðstefnu
á Grand hótel við Sigtún 12. til 15. september nk. Allar
upplýsingar eru á slóðinni www.reuma2007.com
Skilvirkt heilbrigðiskerfi skiptir öllu
Gigtarfélag íslands
SEPTEMBER
2007
11. NORDISKE TVERRFAGLIGE
KONFERANSE
REUMA
2 0 0 7
12. - 15.
MENNINGARMOLINN
Alþýðulistakona fæðist
Á þessum degi árið 1860 fædd-
ist Grandma Moses, sem hét réttu
nafni Anna Mary Robertson. Hún
giftist sautján ára gömul Thomas
Salmon Moses. Þau bjuggu í sveit og
eignuðust tíu börn en fimm þeirra
létust í æsku. Eiginmaður hennar
lést árið 1927. Nokkrum árum síðar
byrjaði Moses að mála, þá komin á
áttræðisaldur. Sýning á málverkum
hennar í lyfjaverslun vakti athygli
listsafnara sem sýndi þau listaverka-
sala í New York. Fljótlega öðlaðist
hún viðurkenningu sem listamaður
undir nafninu Grandma Moses.
Myndir hennar lýsa sveitalífi á afar
fallegan hátt. Ævisaga hennar kom
út árið 1952 og hún lést árið 1961,
rúmlega hundrað ára gömul.