blaðið - 07.09.2007, Síða 37
blaóió
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
37
Mermingarminjadagur Evrópu 2007
Ný sýn á söguna
Margir fá nýja sýn á sögu-
lega staði með því að taka
þátt í fræðsludagskrá í
tilefni af menningarminja-
degi Evrópu. Efnt verður
til slíkrar dagskrár víða
um land í dag.
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Almenningi gefst tækifæri til
að kynna sér menningarminjar
víða um land í dag á árlegum
menningarminjadegi Evrópu.
Að þessu sinni er þema dagsins
gömul híbýli og íbúar þeirra og
verður boðið upp á leiðsögn og
fyrirlestra á sex stöðum víðsvegar
um landið. Um fræðsluna sjá
minjaverðir og aðrir starfsmenn
Fornleifaverndar ríkisins víða
um land en Fornleifaverndin sér
einmitt um framkvæmd dagsins
hér á landi.
Athygli vakin á menningararfinum
„Þetta hefur oftast verið þannig
að sá sem kynnir staðinn beldur
20-30 mínútna erindi og gengur
síðan um staðinn með fólki sem er
hvatt til að spyrja spurninga,“ segir
Gunnar Bollason, verkefnisstjóri
hjá Fornleifavernd ríkisins.
„Tilgangur dagsins er að vekja
athygli almennings á gildi menning-
ararfsins, að fólk kynnist sögulegu
umhverfi sínu og veiti minjum
í kringum sig eftirtekt,“ segir
Gunnar og tekur undir að fræðslan
opni mörgum nýja sýn á staði sem
þeir hafa jafnvel áður farið um.
Staðirnir leyna á sér
„Þegar kafað er ofan í söguna og
fjallað um staðina segir fólk kannski
að það hafi margoft komið á þennan
stað eða keyrt framhjá honum en
UMHELGINA
• Grieg í Laugarborg
Harald Björköy tenórsöngvari
og Selma Guðmundsdóttir píanó-
leikari flytja sönglög eftir Ed-
vard Grieg og sporgöngumenn
hans á tónleikum í Laugarborg í
Eyjafirði á sunnudag kl. 14.
• Systrasöngur
Systurnar Erla Björg og
Rannveig Káradætur halda
söngtónleika í Laugarneskirkju
sunnudaginn 9. september kl.
16. Dagskráin verður fjölbreytt
og samanstendur meðal annars
af verkum eftir Mozart, Grieg,
Puccini, R. Strauss, Dvorak, og
Karl Ó. Runólfsson.
• Ný sýning á Kjarvalsstöðum
Yfirlitssýning á verkum Eggerts
Péturssonar myndlistarmanns
verður opnuð á Kjarvalsstöðum
á laugardag kl. 16.
• Mary Ellen Mark
Sýningin Undrabörn með
myndum hins fræga bandaríska
ljósmyndara Mary Ellen Mark
verður opnuð í Þjóðminjasafn-
inu á sunnudag.
• Opnun í Listasafni
Árnesinga
Þessa heims og annars: Einar
Þorláksson og Gabríela Friðriks-
dóttir er yfirskrift sýningar í
Listasafni Árnesinga sem opnuð
verður á laugardaginn.
Athygli a menningararf-
inum Tilgangur menning-
arminjadags Evrópu er aö
vekja athygli almennings á
i menningararfinum aö sögn
; Gunnars Bollasonar hjá
Fornleifavernd.
því hafi ekki verið ljóst að hann væri
svona merkur eða geymdi svo mikla
sögu. Gestir sem hafa mætt hafa því
verið ánægðir með þetta og hafa von-
andi augun opin þegar þeir ferðast
um,“ segir Gunnar.
Dagskráin er sem hér segir:
• Kristinn Magnússon fjallar um
skálarústir og manngerða hella
í landi Efra-Hvols í Rangárþingi
eystra kl. 17. Safnast verður saman
við afleggjarann að Þórunúpi
(ekið af vegi nr. 262) þar sem hann
liggur framhjá hellunum um einn
kílómetra innan við bæjarhúsin á
Efra-Hvoli.
• Agnes Stefánsdóttir rekur sögu
Laugarvatnshella við Gjábakkaveg
á Lyngdalsheiði, ofan Laugarvatns-
valla, milli Þingvalla og Laugar-
vatns kl. 17.
• Gunnar Bollason rekur sögu
Útskála í Garði kl. 17. Að erindi
loknu verður boðið upp á stutta
göngu um kirkjugarðinn sem
geymir óvenjulegan fjölda merkra
minningarmarka.
• Magnús A. Sigurðsson minja-
vörður rekur sögu Bólstaðar við
Vaðilshöfða í landi Úlfarsfells í
Álftafirði, rétt neðan við brúna yfir
Úlfarsfellsá kl. 18.
• Þór Hjaltalín minjavörður og
Guðný Zoéga fornleifafræðingur
leiða gesti um Keldudal á Hegra-
nesi í Skagafirði kl. 10.
• Haraldur Þór Egilsson sagnfræð-
ingur kynnir sögu Akureyrarkirkju
og gripi hennar milli kl. 17:30 og 19.
Gleðidagur
Haustið er tími hverfahátiða í
Reykjavík og nágrenni og nú um
helgina eru að minnsta kosti tvær
slíkar á dagskránni. Grafarvogsbúar
blása til sinnar hátiðar á morgun
en í dag klæða Breiðhyltingar sig í
betri fötin og halda Breiðholtsdag-
inn hátíðlegan.
Þetta er í fimmta skipti sem há-
tíðin er haldin og að venju er fjöl-
brey tt dagskrá í boði. Leikjadagskrá
fyrir nemendur í grunnskólum
hverfisins hefst á ÍR-vellinum kl. 10.
Yngstu nemendur í 1.- 5. bekk
koma fyrst og þeir eldri um há-
degi. Á hádegi verður sameiginlegt
í Breiðholti
hópatriði þar sem allir nemendur
í Breiðholti senda kveðjur sínar til
heimsins.
Fjölskylduskemmtun hefst í risa-
tjaldi á ÍR-svæðinu kl. 17. Þar flytur
Breiðhyltingurinnogborgarstjórinn
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ávarp
og afhendir heiðursviðurkenningar.
Dagskráin verður afar fjölbreytt
en þar munu leikskólabörn koma
fram, dixielandhljómsveit leikur,
eldri borgarar dansa og syngja, félög
í Breiðholti kynna starfsemi sina og
nemendur frá tónlistarskólum troða
upp. Er nær dregur kvöldi munu
dúndrandi rokktónar hljóma i tjald-
inu með tilheyrandi ljósagangi.
Þá verða kynningarbásar á
staðnum, knattspyrnuleikur, hoppu-
kastalar, veggjaklifur og margt
fleira skemmtilegt á boðstólum.
Stefnt er að því að ljúka hátíðarhöld-
unum á táknrænan hátt kl. 21.
Breiðholtsbúar eru hvattir til að
taka þátt í Breiðholtsdeginum og
leggja þannig sitt af mörkum til efl-
ingar mannlífs og alls samfélagsins
í Breiðholti.
Nánari upplýsingar og dagskrá
má nálgast á vefsíðunni breidholt.is.
Til bókaútgefenda:
BÓKATÍÐINDI 2007
Skráning nýrra bóka í
Ðókatíðindi 2007 er hafin.
Útgefendur eru hvattir til að skrá
bœkur sínar sem allra fyrst
en lokaskil vegna kynninga og
auglýsinga er 17. október nk.
Ðókatíðindum verður sem fyrr dreift
ó öll heimili á íslandi.
-------------♦♦♦------------
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Ðarónsstíg 5, sími 511 8020.
Netfang: baekur@simnet.is
FÉLAG ÍSLENSKRA
BÓKAÚTGEFEN DA