blaðið - 07.09.2007, Qupperneq 38
LÍFSSTÍLLVEIÐI
veidi@bladid.net
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaöiö
; Þetta var meiriháttar, fiskurinn tók maðkinn og ég
var ekki lengi að landa fiskinum," sagði Hlynur Snær
Sæmundsson við Fáskrúð en hann var að ianda fyrsta
laxinum á ævinni, en örugglega ekki þeim síðasta.
Kjarrá í Borgarfirði Þessi kona var með lax
á stönginni en Ijósmyndarinn vildi ekki trufla
veiðina með því að spyrja hana að nafni.
Veislan stendur enn
Fiskurinn mættur en
veiðitíminn búinn
„Við vorum að koma úr Víðidalsá í
Húnvatnssýslu og veiðin var fín. Þrír
veiðimenn í hópnum veiddu mar-
íulaxinn og þeir bættu við fjórum
fiskum að auki,“ sagði veiðimaður
sem varð á vegi blaðamanns og var
að koma úr ánni fyrir nokkrum
dögum.
Veiðiveislan heldur áfram. Á
nokkrum dögum fóru 100 laxar í
gegnum teljarann í Gljúfurá í Hún-
vatnssýslu eftir miklar rigningar
dag eftir dag.
Menn mega þó ekki veiða of
mikið, það gengur alls ekki. Þess
vegna verða þeir að passa sig.
Maður getur veitt yfir sig í veiði-
veislunni og það gerði undirritaður
í Fáskrúð í Dölum, þegar landað var
8 löxum á einum degi og mörgum
þeirra á mjög stuttum tíma.
En einn lax stóð upp úr og það
var fiskurinn sem tók í Viðbjóð, en
hann tók rauða Frances. Hylurinn
Viðbjóður var enginn viðbjóður
þennan daginn. Það var mikið vatn
í ánni og fiskurinn tók alveg niðri
á brotinu. Flugunni var kastað
nokkrum sinnum niður á brotið og
laxinn var alltaf að taka í fluguna
en sleppti alltaf. Veiðimaðurinn
kastaði og kastaði á móti rokinu
og flugan fór neðst niður á brotið.
TAKA. Þvílík tilfinning að finna
fiskinn taka fluguna. Sú tilfinning
var góð.
Þetta var meiriháttar, staðurinn
var flottur, en nafnið ljótt. Þetta
sama nafn er á veiðistað í Grímsá í
Borgarfirði og sá staður gefur einnig
vel af fiski.
Það er kannski um að gera að hafa
nöfnin nógu ljót á veiðistöðunum,
svo fiskurinn taki. Ég veit það ekki.
Frábær gangur hefur verið í
mörgum veiðiám síðustu daga
og veiðitíminn hefur verið fram-
lengdur í Norðurá í Borgarfirði, en
mokveiði hefur verið undanfarið.
Það er sama hvað áin heitir þessa
dagana, veiðin er alls staðar fyrir
hendi, fiskurinn er mættur en veiði-
tíminn er víða úti.
Sérfræðingar
i fluguveiði
Mælum stangir.
splæsum llnur
og setjum upp.
Sportvörugerðin hf„
Skipholt 5. s. 562 8383.
ALLA DAGA
biað
ÍÞRÓTTIR
Auglýsingasíminn er
510 3744
Breiðdalsá
430 laxar komnir á land
„Hérna í Breiðdalnum hefur ekki
rignt lengi og áin er orðin vatnslítil.
Núna eru komnir 430 laxar land og
það hafa verið að veiðast vænir laxar
siðustu daga,“ sagði Þröstur Elliða-
son þegar hann var spurður um stöð-
una á veiðinni (Breiðdalnum.
„Hér eru Spánverjar að veiðum
en þeir hafa líka verið á hreindýra-
veiðum og ætla síðan á gæsaveiðar
á allra næstu dögum. Bleikjuveiðin
hefur verið ágæt. Við bíðum eftir
rigningu hérna í Breiðdalnum og
hún hlýtur að koma fyrr en seinna,”
sagði Þröstur ennfremur.
Blaðamaður frétti af veiði-
mönnum sem fóru í Heiðarvatn,
rétt fyrir ofan Breiðdalsvík, en þeir
fengu fína veiði og morguninn eftir
skruppu þeir á gæs og fengu nokkra
fugla.
Fáskrúð í Dölum
Mjög góö veiöi
síðustu daga
Laxveiðin hefur glæðst
með rigningum síðustu
daga og veiðimenn eru
alsælir með fenginn. Veiði-
tímabilinu fer þó hvar-
vetna að Ijúka.
Eftir Gunnar Bender
g.bender@bladid.net
„Það er greinilega mikið af fiski
hérna í Fáskrúð núna, enda töluvert
rignt síðustu daga og skilyrðin eru
góð. Við vorum að byrja veiðina
fyrir nokkrum mínútum," sögðu
þeir Jóhannes yngri, Eggert og Jó-
hannes eldri, þegar við hittum þá
við Fáskrúð í Dölum, en þá voru
þeir að byrja veiðiskapinn.
„í Hellufljóti er mikið af fiski
en hann tekur mjög illa,“ sögðu fé-
lagar við Hellufljótið, en á tveimur
dögum veiddu þeir 7 laxa félagarnir
en hollið sem var að hætta veiði
fyrir nokkrum dögum veiddi 16
laxa. Þrjú síðustu hollin í ánni hafa
veitt um 60 laxa og er áin komin í
200 laxa. Það er mikið af fiski víða í
henni eins og Hellufljóti, Laxhyl og
Kerfossi.
„Þetta var meiriháttar, fiskurinn
tók maðkinn og ég var ekki lengi að
landa fiskinum," sagði Hlynur Snær
Sæmundsson við Fáskrúð en hann
var að landa fyrsta laxinum á æv-
inni, en örugglega ekki þeim síðasta.
Hlynur veiddi laxinn í Laxhyl og sá
hylur hefur gefíð vel síðustu daga.
Hlynur beit veiðiuggann af fisk-
inum en fannst bragðið alls ekki
gott.
Síðasta holl veiddi 16 laxa og 10
þeirra veiddust í Laxhyl, en þar virð-
ist vera mikið af laxi og nýir laxar
ganga á hverju flóði í ána.
Eitt sem pirrar veiðimenn eru
selir sem raða sér í ós árinnar. Þrír
voru þar á sveimi fyrir nokkrum
dögum, enda torfa af laxi við ósinn.
Margir laxar sem veiðst hafa í Fá-
skrúð eru særðir eftir selinn.
Frábær gangur í laxveiðinni
Rigningar síðustu vikurnar hafa
heldur betur hleypt lífi í laxveiðina
og veiðimenn hafa veitt mjög vel í
flestum veiðiám landsins.
„Við vorum í Eystri-Rangá og
fengum góða veiði. Áin var reyndar
mjög vatnsmikil í einn dag, en það
er mikið af fiski í ánni,” sagði veiði-
maður sem var að koma úr ánni
með marga laxa í skottinu.
Eystri- Rangá er að skríða í 5000
laxa sem er ótrúlega góð veiði og
það er mikið eftir af veiðitímanum.
Mjög góður gangur hefur verið í
Ytri-Rangá.
Síðustu hollin sem voru að hætta
í Norðurá fengu yfir 100 laxa, sem
er frábært í september.
Langá á Mýrum, Hítará, Álftá,
Straumfjarðará og Haffjarðará hafa
gefið vel. í Haukadalsá í Dölum
veiddi einn veiðimaður 18 laxa fyrir
skömmu.
Miðá í Dölum hefur gefið fína
veiði. Hvolsá og Staðarhólsá gáfu
einu holli 22 laxa fyrir skömmu og
töluvert af silungi.