blaðið - 07.09.2007, Page 40
40
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaöiö
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@bladid.net
Taktíkin veitur einmitt mikið á því að fá ekki
á sig mark og þá í versta falli ná jafntefli
og stigi. En auðvitað er þetta ekki mikið fyrir
augað og allra síst á heimavelli.
SKEYTIN INN
Arsene
Wenger er
um það bil
að fá loks laun
erfiðis síns en
heimildir breskra
fjölmiðla herma
að nýr samningur hans við Ar-
senal geri Wenger að næstlauna-
hæsta manni liðsins með helm-
ings launahækkun frá því sem
verið hefur. Venjulega eru þjálf-
arar langt frá stórstjörnum liða í
launum en það virðist vera mat
stjórnar Arsenal að Wenger sé
ómissandi... sem hann reyndar er.
Deco, Messi,
Kaka,
Cristiano
Ronaldo og
Thierry Henry
eru fimm bestu
leikmenn heims
að mati besta leikmanns heims,
brasilíska snillingsins Ronaldin-
ho. Kemur þetta fram í viðtali
hans við breska fótboltasnepilinn
4-4-2 og fóru strax í kjölfarið sam-
særiskenningar í gang um vináttu
hans og Samuel Eto '0 sem ekki
er nefndur til sögunnar. Ekki er
heldur pláss fyrir neinn landa
Ronnie úr brasilíska landshðinu.
AndriyShevc-
henko skil-
ur ekkert
í af hverju hann
er ekki fyrsta val
Jose Mourinho í
lið Chelsea. Segist
hann ráðvilltur
mjög vegna stöðu sinnar en
fáum hefði dottið í hug að einn
dýrasti leikmaður Hðsins rétt
slefaði á bekkinn. Fyrir utan að
Shevchenko geldur fýrir að það
var eigandi liðsins, Abramovich,
sem keypti hann en ekki Mour-
inho þá hefur kappinn staðið sig
illa og það er næg orsök í slíku
liði. Þetta er ekki svo flókið.
0SW4
Mikill sökn-
uður er
meðal
stuðningsmanna
Real Madrid eftir
Roberto Carlos
sem nú safnar
ryki sem leikmaður Fenerbache
í Tyrklandi. 1 nýlegri könnun
dagblaðsins Marca kemur fram
að yfir 60 prósent aðdáenda
liðsins segja það mikil mistök
að láta kappann fara enda hefði
hann gefið allt fyrir liðið og átt
nóg eftir. Engin spurning enda
bauðst hann sjálfur til að lækka
laun sín í vor yrði það til þess að
hann gæti áfram búið í Madrid
þarsem hann hefur komið ár
vel fyrir borð og rekur meðal
annars nokkra skemmtistaði
sem hann sækir grimmt sjálfur.
Sendibíiar
tii leigu
F-RIÐILL
1. Svíþjóö 18 stig
2. N-lrland 16 stig
3. Spánn 15 stig
4. Danmörk 10 stig
5. Island 4 stig
| 6. Liechtenstein 4 stig
7. Lettland 3 stig
Vöm besta
sóknin
Þjálfarar sammála Eyjólfi ■ 4-5-1 kerfið ákjósanlegt gegn Spáni
Fastlega er búist við að Eyjólfur
Sverrisson landsliðsþjálfari noti
4-5-1 leikskipulagið þegar íslenska
knattspyrnulandsliðið mætir lands-
liði Spánverja á Laugardalsvellinum
í F-riðli Evrópukeppni landsliða á
morgun. Blaðið tók hús á nokkrum
vönum þjálfurum efstu deildar
Landsbankadeildarinnar og líst þeim
flestum vel á kerfið, sérstaklega gegn
Spánverjum, sem hingað koma með
miklar yfirlýsingar um að berjast
til hinstu stundar. Sé eitthvert kerfi
til þess fallið að stöðva þá rauðgulu
kemur það kerfi sterklega til greina.
Annars er landsliðið okkar væng-
brotið gegn stórveldinu. Eiður
Smári verður með, en vart allan
leikinn. Markahrókurinn Helgi Sig-
urðsson er frá sem og Brynjar Björn
Gunnarsson sem er mikill missir
fyrir litla knattspyrnuþjóð. Þá verða
og alls nfu leikmenn að fara varlega
gegn Spánverjum, ef það er hægt á
annað borð. þar sem þeir fara í leik-
bann fái þeir gult á morgun. Liðið
má ekki við frekari missi fyrir mið-
vikudagsleikinn gegn N-írum.
Logi Ólafsson þjálfari KR
„Það er ekkert óraunhæft að
keyra 4-5-1 taktík í leik sem
þessum. Reyna að verjast og
beita skyndisóknum og þessi
taktík hefur á stundum gefið
góða raun eins og til dæmis
gegn þeim úti fyrir ári þar
sem þeir rétt náðu að setja
eitt mark í lokin. Hún veltur
einmitt mikið á þvf að fá
ekki á sig mark og þá í versta
falli ná jafntefli og stigi. En
auðvitað er þetta ekki mikið
fyrir augað og allra síst á
heimavelli.”
Ólafur Jóhannesson þjálfari FH
„Vörn íslands þarf að standa
plikt sína 100 prósent allan leik-
inn gegn svona liði eins og Spán-
verjum og hreinn dauðadómur að
reyna sóknarleik. Þannig er 4-5-1
skipulagið ágætt svo lengi sem
vörnin heldur en gallinn er bara
sá að varnarleikurinn hefur verið
hausverkur hjá liðinu lengi. Svo
er aftur stór spurning hvað á að
gera þegar liðið fær boltann og á
því þarf að finna einhverja lausn.
Annars er ég á þvf að við eigum
að hafa trú á liðinu enda komið
heilt ár af miskunnarlausri gagn-
rýni og það hefur áhrif.”
Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis
„Það er að mínu viti algjör
fásinna að blása til húrrandi
sóknar gegn svona stórþjóð
og að því leyti er 4-5-1 góð til
síns brúks. Henni er auðvelt að
breyta með litlum tilfærslum ef
á þarf að halda og sú staða gæti
auðveldlega komið upp gegn
Spánverjum. Eyjólfur vill ná
fram góðum úrslitum og engu
skiptir þó liðið hangi í vörn
allan leikinn ef tekst að skora
eitt sigurmark. Það muna allir
eftir slíkum sigri ári seinna þó
spilamennskan hafi ekki verið
skemmtileg.”
Willum Þór þjálfari Vals
„Það er eðlilegt að leggja upp
með 4-5-1 gegn Spáni. Þeir eru í
öðrum heimi knattspyrnulega
og með hvern fyrsta flokks
leikmanninn á fætur öðrum í
liðinu. Það er ágæt uppstilling
og ég á von á að tveir miðju-
mannanna dragi sig niður á
miðjusvæðið en það er einmitt
það svæði sem Spánverjarnir
eru vanir að nýta sér hvað
mest enda eldfljótir og nota
stutta spilið mikið. Þannig að
gegn Spánverjum er 4-5-1 vel
til fundið og ég skil Eyjólf vel
ákveði hann að beita því.”
Ólafur Þórðarson þjálfari Fram
„Sé tekið mið af árangri
íslands hér áður þá liggur fyrir
að okkur gengur best þegar
við spilum 5-3-2 og það á bæði
við um þegar Sigfried Held og
Guðjón Þórðarson stýrðu liðinu.
Okkur fer illa að stjórna leik
og spila fram á við en vel yfir-
leitt að gefa það eftir og spila
upp á skyndisóknir. 4-5-1 er í
ætt við þetta en þarna vantar
kantmennina sem þarf til að
skapa þau færi sem við þurfum
til sigurs. En ég vona inni-
lega að liðinu gangi vel gegn
Spánverjunum.”
Þriðja sætið
Með frábærum og í raun
einstökum endaspretti í Evr-
ópukeppni landsliða hefur
íslenska landsliðið tryggt
sér þriðja sætið í C-riðli eftir
sigur á Austurríki og klárt
að Sigurður Ingimundarson
er að gera glerfína hluti með
hópinn. Þó rósir fyrir þriðja
sætið séu fáar og fölnaðar er ís-
lenski hópurinn á besta aldri
og aðeins Brenton Birming-
ham sem kominn er á aldur.
Spurning um sólgleraugu því
framtíðin er björt.
Landsbyggðin
iániaus
Það verða Afturelding og sam-
einað lið HK/Víkings sem bæt-
ast í flóru liða í Landsbanka-
deild kvenna á næstu leiktíð
og vonir ýmissa um að tvö
landsbyggðarlið hrepptu þann
heiður eru úti. Afturelding
sigraði Völsung frá Húsavík
meðan HK/Víkingur burstaði
Hött frá Egilsstöðum. Bæði lið
fara í úrslit en þar sem tvö lið
fara upp skiptir sá leikur ekki
öllu máli.
Á teig með ekli
Fyrr í sumar forvitnaðist
Blaðið um hvort lesendur
þess kynnu gott íslenskt orð
í stað enska orðsins dræver í
golfi en fyrir óinnlimaða er
dræverinn stærsta kylfan og
gjarnan sú sem oftast er notuð
til upphafshögga í íþróttinni.
Nokkrir tugir svöruðu og er yf-
irgnæfandi meirihluti þeirra
fylgjandi orðinu ekill. Ekill
er nokkuð nákvæm þýðing á
enska orðinu en er nokkuð
óþjált og nær heldur ekki vel
utan um það sem enska orðið
þýðir með tilliti til golfsins.
Heilaskaðaður
Það þurfti rannsóknir færustu
lækna til að komast að þeirri
niðurstöðu að glímukappinn
bandaríski, Chris Benoit, sem
myrti í sumar konu sína og
barn áður en hann tók eigið líf
væri heilaskaðaður. Fullyrða
má slíkt um þá er slíkt ódæði
fremja en þar fyrir utan er
amcríska glíman þannig að
aðeins heilaskaðaðir geta heill-
ast af slíkri íþrótt.