blaðið - 07.09.2007, Page 42
C575 8900
SÁMSiZ W ÚFABAKKA
ASTRÓPÍÁ kl. 6:15-8-10:10
ASTRÓPÍÁ kl. 8-10:10 VIP
RATAT0UILLE íSKj 7A1 kl. 5:30-8-10:30
RATAT0UILLE lTAL W. 4 - 5:30 OiC’iíJi
TRANSF0RMERS kl. 5-8-10:40 10
TRANSF0RMERS kl.5
NANCY DREW kl.6 7
GE0RGIA RULES kl.8 7-
HARRY P0TTER 5 kl. 8:15 10
SHREK3 M.4
0CEANS13 kl. 10:10 7
ssaA ASTRÓPÍÁ fc KKINGUJNNI kl. 6-8-10:10
B0URNE ULTIMATUM kl. 5:40-8-10:20 14
RATAT0UILLE w. 5:30 DIGIIU
RATAT0UILLE kl.8
TRANSFORMERS kl. 10:20 10
SC'ÍSáS * AKUREYRI
ASTRÓPÍÁ kl.6-8-10
RATATOUILLE SLTAL W.6
RATATOUILLE NSKTTAL M.8
TRANSFORMERS kl. 10:15 10
soxsiJ ASTRÓPlA IMKEFUVÍK kl.8-10 ■
BOURNE ULTIMATUM kl. 8-10:30 14
SOíifciJÍN SELFOSSI1 «2 3xr ASTRÓPlÁ f W. 7 - 9
RUSH HOUR3 kl.7-9 12
BEcnBanÍnn
VEÐRAM0T Id. 5.40,8 oq 1020 14
EVENING kl. 5.30 og 8 L
BRETTIN UP Id6 L
SIMPSON ensktlal kl. 8 og 10 L
SICKO kl. 8oa10.30 7
SH0RTBUS kl. 10.30 18
AWAY FROM HER kl. 5.30 7
SmfíHH^ BÍÓ
VEÐRAMÓT ktö og IU.ZU 14
KN0CKED UP kl. 5,8og11 14
! KNOCKED UP LÚXUS W. 5.8 og 11 14
BRETTIN UPP íslenskt tal W.4og6 .L
THE B0URNE ULTIMATUM kl.8og 10.30 14
RUSH H0UR3 W. 8og 10.10 i
SIMPSON ensld tal kJ. 4 og 6 L I
SIMPSON Islenskttal W. 4 og 6 L i
jmmóÁ
KN0CKED UP W.3,6og9 14
DISTURBIA W. 5.45,8 og 10.20 14
BRETTIN UPPfeLtal W. 4 L fj
MæuRfEuoiMuM kl. 5.45,8 og 10.20 14 í
| RATATOUILLE feJ tal W. 3.35 L
UÁSKÓLABÍÓ
i VEÐRAMÖT W. 8og 10.20 14 •
| BRETTIN UPP Islenskt tal kl. 6,8 og 10 L
1 SURF'S UP W. 6,8 oq 10 L I
ASTRÖPIÁ W. 6,8 og 10.10 L |
i TEC B0URNE ULTIMATUM W. 5.30,8 og 10.30 14 8
irtinYhrJyffTi
L KNOCKED UP |W. 5.45,8 og 10.20 14 |
■t DISTURBIA |W.8 14
í BRETTIN UPP íslenslð tal ] W. 6 L
V THE BOURNE ULTIMATUM |kl. 10.10 14 /
mmmtmmmmaKaassmasimÍ
FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaöió
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Það vantar nýjan og flottan
^ stað fyrir aldurshópinn 25 plús
og í raun vantar bara eitthvað
Nýr staður opnaður í húsakynnum Apóteksins
Stefna á flottasta
skemmtistaö bæjarins
Veitingastaðnum Apótek-
inu verður lokað í næstu
viku og í kjölfarið mun
nýr skemmtistaður líta
dagsins Ijós. Að sögn
eigenda verða snyrtileg-
heitin í fyrirrúmi og mikill
metnaður lagður í útlit
staðarins.
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur
halldora@bladid.net
„Þetta verður skemmtistaður
fyrir fólk 25 ára og eldri sem vill
koma inn á mjög snyrtilegan og
flottan stað,“ segir Gunnar Trausta-
son, annar eigandi ónafngreinds
skemmtistaðar sem verður opn-
aður í húsakynnum Apóteksins í
október næstkomandi. Þegar nafn
staðarins ber á góma segir Gunnar
allt á huldu með það.
„Við viljum ekkert gefa of mikið
upp strax og nafnið fær að bíða
aðeins. En það sem við vitum er að
það verða plötusnúðar um helgar,
tónleikar á virkum kvöldum og
þarna verður dansað. Eldhúsið fer
út og ef boðið verður upp á mat í
einkasamkvæmum verður hann að-
keyptur. Þarna áttu að geta komið
vel klæddur og sett flíkurnar í
fatahengi og það verður allt mjög
snyrtilegt. Staðurinn verður mjög
flottur og við leggjum metnað í að
þetta sé gert mjög smart alveg frá
toppi til táar. Það má kannski segja
að þetta verði snyrtilegur staður
fyrir snyrtilegt fólk.“
Klárlega pláss fyrir nýjan stað
„Ég held að þetta geti gengið mjög
UM STAÐINN
►
►
Stefnt er að opnun staðar-
ins I lok október.
Eigendur staðarins eru þeir
Gunnar Traustaon og Garð-
ar Kjartansson.
►
Markhópur staðarins er fóik
á aldrinum 25 ára og eldra.
vel og það er sannfæring bæði mín
og Garðars, meðeiganda míns. Til
marks um það get ég nefnt að við
vorum báðir búnir að hafa áhuga
á kaupum án þess að vita hvor af
öðrum, en ákváðum svo að ráðast
í þetta saman,“ segir Gunnar og
bætir því við að hann telji brýna
þörf á góðum skemmtistað fyrir
þennan aldurshóp.
„Að mínu mati er klárlega pláss
fyrir stað sem þennan. Það vantar
nýjan og flottan stað fyrir aldurs-
hópinn 25 plús og í raun vantar
bara eitthvað nýtt á markaðinn yf-
irhöfuð. Staðsetningin er auðvitað
alveg frábær og húsið og salurinn
ofboðslega fallegur. Við komum
til með að rífa allt út og svo kemur
bara í ljós hvernig útkoman verður.
Vonandi mun okkur takast sem
best til. Stefnan er allavega að gera
þetta að flottasta skemmtistað í
bænum.“
Þörf fyrir nýjan stað á markaðnum Gunnar Traustason, annar eigenda nýs og
ónafngreinds skemmtistaðar, segir þörf á nýjum og snyrtilegum skemmtistað fyrir fólk
25 ára og eldra.
Saumlaus og létt fylltur í BC
skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr.
Mjög flottur I BC skálum á kr. 2.350,-
buxur f stíl á kr. 1.250,-
Pitsuvagninn ferðast um Suðurland
Flatbökuframleiðsla
á fjórum hjólum
„Það er kominn ákveðinn kjarni
af fastakúnnum, en þetta er að-
allega fólkið sem býr í sveitinni,“
segir Björgvin Þór Harðarson,
annar eigenda Pitsuvagnsins, sem
ferðast um uppsveitir Suðurlands
og selur pitsur beint úr bílnum.
„Við erum með sex fasta staði,
Flúðir, Reykholt, Laugarvatn, Borg,
Brautarholt og Árnes.“
Allt nema frosnar rækjur
Björgvin segir að tveir starfs-
menn vinni í Pitsuvagninum, hann
og konan. „Þetta er eins og maður
segir, fjölskyldufyrirtæki. Við
erum búin að vera að þessu í þrjú
ár. Þetta er fjórða árið. Við starf-
rækjum vagninn allt árið um kring.“
„Við erum búin að vera með spelt-
deig í tvö ár,“ segir Björgvin, en
heilsan er greinilega í fyrirrúmi hjá
þeim hjónum. „Það var fólk sem
bjó hérna og var með hveitiofnæmi.
Við vissum af því og þróuðum þess
vegna fyrir þau speltdeig.“
Björgvin segist bjóða upp flest
álegg sem aðrir pitsustaðir hafa
á boðstólum. „Við bjóðum upp á
allt nema frosnar rækjur,“ segir
hann. „Allt sem er venjulegt og
sumt óvenjulegt. Það vantar ekkert
upp á. Það er engin pitsa á matseðli,
fólk velur algjörlega hvað það vill.
Skoðar bara áleggin og setur saman
SÍna pitsu." atli@bladid.net
Pitsur til sölu Pitsuvagninn
ferðast
1
nMMRjj
Barrymore með
nýjan mann
Leikkonan Drew Barrymore
er komin með nýjan kærasta
en sá heppni heitir Justin Long
og leikur á móti leikkonunni í
kvikmyndinni He’s Just Not that
Into You sem verið er að taka
upp um þessar mundir. Parið
sást fyrst saman í rómantískum
hugleiðingum í Los Angeles í lok
ágúst og sáust þau láta vel hvort
að öðru á veitingastað í borginni
nokkrum dögum seinna. „Drew
og Justin eru virkilega hrifin
hvort af öðru,” segir vinkona
leikkonunnar. Barrymore hefur
verið í tygjum við fjölda manna
undanfarin ár en ekki er langt
síðan hún sleit sambandi sínu við
trommarann Fabrizio Moretti.
Leikkonan var þar áður með leik-
aranum Zach Braff úr sjónvarps-
þáttunum Scrubs.
Aldrei aftur
í meðferð
Hin 23 ára gamla Amy Wine-
house segist aldrei ætla aftur í
meðferð þrátt fyrir að vera forfall-
inn eiturlyfjafíkill. Winehouse
er um þessar mundir að jafna
sig eftir spítalavist en í síðasta
mánuði var hún flutt nær dauða
en lífi á sjúkrahús eftir þriggja
daga stanslausa neyslu. „Þegar
ég hætti þá geri ég það sjálf. Ég
held að meðferð sé ekki fyrir alla
og sérstaklega ekki fyrir mig. Ég
er heldur ekki tilbúin til þess að
hætta strax og það getur enginn
neytt mig til þess. Þá er meðferð
líka algjörlega tilgangslaus.”
Allen móðgar
Madonnu
Söngkonunni Lily Allen var hent
út af Men of the Year-verðlauna-
afhendingu tímaritsins GQ á
þriðjudagskvöldið, þar sem hún
angraði Madonnu með drykkju-
látum og dólgshætti. Hin 22
ára gamla Allen var beðin um
að yfirgefa svæðið eftir að hún
þótti helst til hávær og dónaleg í
garð Madonnu á meðan sú síðar-
nefnda hélt ræðu. „Lily var dóna-
leg og hávær, hún samkjaftaði
ekki á meðan á ræðu Madonnu
stóð og var greinilegt að þetta var
viljandi hjá henni. Meira að segja
Madonna áttaði sig á því.” Allen
lét ekki þar við sitja og gerði sig
aftur að fífli i lok kvöldsins þegar
hún flæktist í eigin kjól og féll í
gólfið. Það var þá sem kynningar-
fulltrúi hennar leiddi hana út.