blaðið - 07.09.2007, Side 43
blaðið
FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
ORÐLAUSTÓNLIST
tonlist@bladid.net
Það er dýrara að fá Papana
en Bloc Party, ég get sagt
þér það. Busaballið okkar
var dýrara en þetta.
Aukagigg
á Organ
Styttist í tónleika
Franz Ferdinand
Uppselt er á tónleika hljómsveit-
arinnar Franz Ferdinand sem fram
fara á skemmtistaðnum NASA þann
14. september næstkomandi, en af-
ráðið hefur verið að halda sérstaka
aukatónleika á skemmtistaðnum
Organ í Hafnarstræti. Aukatónleik-
arnir fara fram kvöldið eftir, laug-
ardagskvöldið 15. september, en að
sögn Eldars Ástþórssonar hjá Dest-
iny.is óskaði sveitin sjálf eftir því að
halda aðra tónleika.
Minnstu tónleikar Franz Ferdinand
„Það var ósk af þeirra hálfu að
halda aðra tónleika á minni stað í
Reykjavík. Til að byrja með vildu
þeir koma aftur hingað til lands og
halda tónleika á NASA, sem er jú
minni staður en þeir eru vanir að
spila á, en svo datt þeim í hug að
halda eina tónleika í viðbót fyrir
blaðamenn sem eru með þeim og
starfsmenn plötuútgáfunnar þeirra,
Domino Records. En þeir vildu
líka gera alvöru tónleika úr þessu
og bjóða hinum almenna tónlistar-
unnanda og aðdáendum þeirra hér
á íslandi að koma. Fyrir vikið eru
þeir búnir að rigga upp öðrum tón-
leikum á Organ, sem er alveg frábær
tónleikastaður, en eflaust minnsti
staður sem þeir hafa spilað á síð-
ustu fimm árin,“ sagði Eldar í sam-
tali við Blaðið í gær.
Miðasala hefst laugardaginn 8.
september í verslunum Skífunnar
og á midi.is
halldora@bladid.net
90 s partí með
Curver og Kiki
Plötusnúðarnir Curver og Kiki-
Ow hafa i sumar staðið vaktina
þegar kemur að partíum tileink-
uðum tíunda áratugnum og um
helgina munu þau endurtaka
leikinn í Reykjavík og á Akureyri.
Plötusnúðaparið hyggst spila í
Sjallanum Akureyri í kvöld, en
halda svo til byggða á morgun
þar sem spilað verður fyrir
dansþyrsta íslendinga á skemmti-
staðnum Nasa við Austurvöll.
„Þetta er fyrsta skiptið sem við
erum með svona mega-90's helgi
bæði í Reykjavík og Akureyri.
Þessi kvöld okkar eru bara búin
að sprengja svo rosalega utan af
sér. Það er alltaf brjálæðislega
mikið fjör og við erum farin að
sjá mikið af stórum hópum koma
í 90's fötum, sem er auðvitað
mjög skemmtilegt," sagði Curver
í samtali við Blaðið í gær.
Miðasala á Nasa fer fram á www.
midi.is og í Spútnik, Laugavegi,
en miðasala fyrir Sjallann er
á Café Amor og í Pennanum á
Akureyri.
Tónlist fyrir sveitta rokkbúllu
Strákarnir í Jan Mayen háfa
verið nokkuð áberandi í íslenskri
poppmenningu undanfarin þrjú
eða fjögur ár. Árið 2004 gáfu þeir
út plötuna Home of the Free Indeed
og síðan þá er varla það íslenskt
mannsbarn sem kannast ekki við
þessa eftirminnilegu rokkhunda í
sjón. Fyrir skemmstu gaf hljóm-
sveitin út aðra breiðskífu sína,
sem ber hið skemmtilega heiti So
Much Better Than Your Normal
Life. Skífan er, eins og það sem
strákarnir höfðu áður gefið frá sér,
ágætlega þétt og vel spilað gítar-
rokk. Ekkert sérstaklega frumleg
eða fersk, en bætir það upp með
sæmilega grípandi gítarstefjum.
Jan Mayen
So Much Better Than...
□Pn mOLjEIT
Eftlr Hlyn Orra Stefánsson
> hlynur@bladid.net
TÓNLIST ++Í
„We Just Want to Get Everybody
High“, sem fengið hefur að hljóma
í útvarpi síðustu vikurnar, er gott
lag með ágætis texta sem fjallar um
leiðindi hversdagsleikans og, eins
og titilinn gefur til kynna, eina
leið af mörgum til að flýja þau. Þá
nýtur rödd Valgeirs Gestssonar
- sem kemur nokkuð vel út á plöt-
unni - sín sérstaklega vel í laginu.
Lokalag plötunnar, „Let it Burn“,
er þó að mínu mati besta lag
hennar og reyndar virkilega gott
lag. Textinn er mjög myndrænn og
lagið frábærlega uppbyggt - algjör
tilfinningabomba sem endar í
villtum gítartryllingi.
Ekkert lag plötunnar er sérstak-
lega slæmt. Lögin „Absolution" og
„Biscuit“ (sem minnir á Botnleðju
á ungdómsárum sveitarinnar) eru
t.d. ekki heldur sem verst og njóta
sín eflaust vel á sveittri rokkbúllu.
En lögin á plötunni eru, að
frátöldum „We Just Want to Get
Everybody High“ og „Let it Burn“,
ekkert sérstaklega góð heldur. Og
með tilliti til þess mikla framboðs
frábærrar tónlistar sem við eigum
öll - eða a.m.k. flestöll - eftir að
gefa okkur tíma til að hlusta á, er
engin ástæða til að hafa miklar
áhyggjur af því þótt við höfum ekki
brotið So Much Better Than Your
Normal Life til mergjar.
JAN MAYEN Á NETINU
www.jan-mayen.com
www.myspace.com/janmayen
www.smekkleysa.net
Papamir kosta meira en alþjóðlegar rokkstjömur
Bloc Party á
balli í Flensborg
Breska sveitin Bloc Party
kemur fram á tónleikum
í Flensborgarskóla í
Hafnarfirði í október.
Sveitin verður á land-
inu að spila á lceland
Airwaves-hátíðinni.
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@bladid.net
„Við erum búin að bóka þá og þeir
ætla að koma og spila hjá okkur,"
segir Olga Eir Þórarinsdóttir,
oddviti nemendafélags Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði, en hljómsveitin
Bloc Party hefur verið bókuð á
tónleika í skólanum föstudaginn 19.
október.
„Það eru strákar í tónlistarráði
hjá okkur og þeir voru svo ótrúlega
sniðugir að prófa að senda þeim
póst og spyrja hvort þeir vildu
koma og spila á tónleikum um leið
og þeir kæmu að spila á Airwaves-
hátíðinni. Bloc Party sagði já,“ segir
Olga Eir. „Ég var ekkert smá glöð
þegar ég heyrði þetta.“
Mjög sanngjarnir
„Það er dýrara að fá Papana en
Bloc Party, ég get sagt þér það.
Busaballið okkar var dýrara en
þetta,“ segir Olga, aðspurð hvort
tónleikarnir verði þeir dýrustu í
sögu Flensborgar. „Þeir eru mjög,
mjög sanngjarnir."
Bloc Party gaf út sína fyrstu
breiðskífu, Silent Alarm, árið 2005.
Skífan sló í gegn og var meðal
annars valin breiðskífa ársins hjá
tónlistartímaritinu NME. Sveitin
BLOC PARTY
► Bloc Party var stofnuð árið
2002.
Hennar fyrsta breiðskífa,
► Silent Alarm, sló í gegn um
allan heim.
►
Sveitin segist vera undir
áhrifum frá sveitum eins og
The Cure, Smashing Pumpk-
ins, Pixies og Joy Division.
gaf út sína aðra breiðskífu, Week-
end in the City, í febrúar á þessu
ári. Hún fór hæst í annað sætið á
breska vinsældarlistanum og í það
12. á bandaríska Billboard-listanum.
Óvíst með almenning
Olga segir óákveðið hvort tónleik-
arnir verði opnir almenningi eða að-
eins fyrir nemendur skólans. „Það
á eftir að skoða hvernig því verður
háttað, það er ekki ákveðið," segir
hún. „Við erum með svo stóran sal.
Það er náttúrlega nýbúið að byggja
við skólann, en ég er hrædd um að
það yrði svolítið mikið kaos, ef það
kæmu fleiri en nemendur skólans.
Þá værum við komin út í miklu
stærri pakka í rauninni - strangari
gæslu og svona.
Það á bara
eftir að
ræða við
skóla-
stjórann,
þetta er í
rauninni
allt á byrj-
unarstigi."
Chris Cornell
áritar í Skífunni
Rokkgoðið Chris Cornell heldur
tónleika í Laugardalshöll á morgun
ásamt hljómsveit. Cornell kemur
við í Skífunni á Laugavegi klukkan
16 og áritar nýjustu skífu sína,
Carry On. Miðasala á tónleikana er
ennþá í fullum gangi, en uppselt er
í stúku.
Chris Cornell er þekktastur fyrir
hljómsveitirnar sínar Soundgarden
og Audioslave. Slagarinn Black
Hole Sun er þekktasta lag Soundg-
arden og hugsanlega vinsælasta lag
sem Cornell hefur sungið. Búast
má við að hann taki það í höllinni
á morgun ásamt fleiri þekktum
slögurum.
atli@bladid.net
Pete Doherty
mun drepast
Söngvari hljómsveitarinnar The
Who, Roger Daltry, segir Pete Do-
herty greinilega eiga þá ósk heit-
asta að drepast. Doherty er um
þessar mundir í meðferð en þetta
er ekki í fyrsta skipti sem hann
leitar sér hjálpar, en það hefur
ekki borið neinn árangur hingað
til. Daltrey sagði í samtali við
The Sun að það biði baðherberg-
isgólf eftir Doherty. „Þar mun
hann leggjast niður og drepast
haldi hann þessu áfram. Það er
svo hallærislegt að halda að þessi
lífsstíll sé töff og að tónlistin snú-
ist um svona vitleysu. “
Keane til liðs
við War Child
Hljómsveitin Keane hefur
ákveðið að láta ágóðann af sölu
smáskífunnar The Night Sky
renna til góðgerðasamtakanna
War Child. „Við erum mjög
stoltir af því að taka þátt í starfi
samtakanna,” segir söngvari
hljómsveitarinnar, Tom Chaplin.
„Það deyr barn á þriggja mínútna
fresti af völdum vopnaðra átaka
einhvers staðar í heiminum og
við getum öll gert eitthvað í því.”
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 2070
Góö þjónusta - fagleg ráðgjöf
Sflottir leðurskór með
um rennilás í stœrðum
40-46 á kr. 6.585,
Óreimaðir leðurskór í stcerðum
40-47 á kr. 6.885,-