blaðið - 07.09.2007, Side 45
blaöiö
FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
45
RÚVkl. 21.30
Eitursvalt
illmenni
Bandarísk ævintýramynd ,The
Chronicles of Riddick, verður
sýnd í Sjónvarpinu klukkan
21.30. Hún er frá árinu 2004.
Myndin er framhald nvyndar-
innar Pitch Black og á að gerast
fimm árum síðar. Riddick
er eftirlýstur glæpamaður en
þegar illskeyttur kynstofn
ræðst á varnarlausa plánetu er
hinn siðlausi Riddick síðasta
von íbúanna. Þetta er hörku-
hasarmynd með Vin Diesel í
aðalhlutverki.
Stöð 2 Bió kl. 22.00
Sögulok
hjá Neo
Komið er að sögulokum í
einum stórkostlegasta þríleik
kvikmyndanna í myndinni
Matrix Revolutions. Barátta
góðs og ills er í hámarki og nú
verður skorið úr um framtíð
mannkyns í eitt skipti fyrir öll.
Vélar hafa tekið stjórnina í sín-
ar hendur og ráða heiminum. í
borginni Zion á mannfólkið þó
enn sína fulltrúa en það er að-
eins tímaspursmál hvenær þeir
verða að játa sig sigraða.
Skjár einn kl. 22.00
Lagakrækjur
og lögbrjótar
Þáttaröðin Law & Order: Crim-
inal Intent er gífurlega vönduð
sakamálasería sem lætur
engan ósnortinn. Leikari leik-
aranna, Vincent D’Onofrio, er
hér í hlutverki lögreglustjórans
Robert Goren og kafar djúpt í
leitinni að lausninni og hættir
ekki fyrr en hann skilur orsök
glæpsins. í þáttunum samein-
ast hröð atburðarás, heillandi
sögur, skemmtilegar persónur,
ákafi, snilld og frábær leikur.
Sitt sýnist hverjum
Krúttlegustu slagsmálaatriðin
Kvikmyndasagan státar af mörg-
um ógleymanlegum slagsmála- og
bardagaatriðum. Vefritið E! Online
tók sig til á dögunum og dró fram
í sviðsljósið atriði sem því fannst
vera krúttlegustu slagsmálaatriðin í
hinum ýmsu kvikmyndum. Margar
góðar myndir voru nefndar til sög-
unnar en sú mynd sem þótti skarta
hvað sætasta slagsmálaatriðinu var
myndin Raising Arizona með Nic-
holas Cage í aðalhlutverki.
Fast á hæla Raising Arizona komu
myndirnar Class með Andrew
McCarthy og Rob Lowe, Footloose
þar sem Kevin Bacon og Chris Penn
heitinn slógust fyrir rétti sínum til
að dansa nóttina á enda og Dono-
van's Reef þar sem John Wayne og
Lee Marvin slógust í tilefni afmælis
sins.
Aðrar myndir sem komust á list-
ann voru myndir á borð við Road-
house, Dumb and Dumber, Every
Which Way But Loose þar sem
húsmóðir slæst við órangútanapa
og svo Raiders of the Lost Ark þar
sem Indiana Jones sparar sér ómak-
ið af því að slást með því að skjóta
árásarmanninn. Síðast en ekki síst
á þessum lista ber að nefna mynd-
ina Gremlins þar sem húsmóðir
berst við her af litlum púkum með eldhúsáhöldum. Þetta er býsna góð- sammála þessum lista, frekar en
blöndurum, hnífum og hverslags ur listi en ljóst er að ekki eru allir öðrum listum.
Kanadískirqæóapottar
RYMINGARSALA
Munum á næstu vikum opna stærstu pottaverslun
í Evrópu í nýju 800m2 húsnæöi í Faxafeni 9
* «*
• •
•'i « >* * • *.
' *
OPIÐ LAUGARDAG 10-16
OG SUNNUDAG 12-16
KOMDU Á POTTADAGA UM
HELGINA HJÁ SPAKONGEN
OG GERÐU GÓÐ KAUP
Spa^paKongen
Lækjargötu 34 • Hafnarfjörður • S. 554 7755
www.spakongen.is heitirpottar.is