blaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 46
46
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaóió
FÓLK
folk@bladid.net
Já, ef áfengissala
verður gefin
frjáls fyrir helgi.
Á að skella sér í „nýja Ríkið" fyrir helgina?
Samkvæmt framtíðaráformum íslandspósts ohf. hyggst fyrirtækið út-
víkka starfsemina og hefja sölu á skrifstofuvarningi, netaðgangi og ýmsu
fleiru. Erla Ósk Asgeirsdóttir og félagar hennar í Heimdalli mótmæla
þessum áformum og líkja þeim við það ef Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins, eða Ríkið, keypti 10-11 eða Pétursbúð.
Ómar Ómar og félagar endurvekja vefsíðuna hiphop.is
Mikil gróska í íslensku hipphoppi
Ómar Ómar „Það er kom
inn tími á hipphopp aftur í
íslensku tónlistarlífi."
HEYRST HEFUR
Töluverðar líkur eru á því að
kona verði skipuð i embætti
dómkirkjuprests bráðlega, en
sjö hafa sótt um stöðuna, þar
af sex konur. Þær eru Anna
Sigríður Pálsdóttir, Ása Björk
Ólafsdóttir, Guðbjörg Jóhannes-
dóttir, Guðrún Karlsdóttir og
Sigríður Hrönn
Sigurðardóttir.
Eini karlkyns um-
sækjandinn um
stöðuna er
Rúnar M.
Þorsteins-
son...
Sigrún Björk Jakobsdóttir
bæjarstjóri Akureyrar og
fleiri fyrirmenn úr bænum
eru nú í Grimsby í Bretlandi í
opinberri heimsókn. Tilgangur
heimsóknarinnar er að efla
viðskipta- og vinatengsl
milli bæjanna og stefnt er að
'' vinabæjasambandi þeirra í
framtíðinni. í þorskastríðunum
voru það
togaraskipstjórar
frá Hull og
Grimsby sem voru
erkióvinirnir
en gamlar
erjur
gleymast
auðvitað
um síðir...
Guðmundur Árni Stefánsson
< er ekki bara sendiherra
í Svíþjóð. Hann afhenti í
vikunni trúnaðarbréf sitt hjá
Tassos Papadopoulos, forseta
Kýpur. Athöfnin vakti meiri
athygli kýpverskra fjölmiðla
en ella vegna þess að forsetinn
notaði tækifærið og úttalaði
sig um væntanlegan fund sinn
með leiðtoga Kýpur-Tyrkja.
Guðmundur Árni lagði líka orð
í belg og sagði íslensku þjóðina
hafa fylgst grannt með þróun
mála i Kýpur allt frá því að
landið hlaut sjálfstæði 1960.
’ í slendingar hefðu áhyggjur
af deilum þjóðarbrotanna á
Eftir rúmlega tveggja ára
bið mun hipphoppsenan
endurnýja sinn opinbera
vettvang með upprisu hip-
hop.is um helgina.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Mikið verður um dýrðir á
skemmtistaðnum Organ næstkom-
andi laugardagskvöld, en þá stíga
á stokk helstu rapplistamenn lands-
ins í tilefni af því að vefsíðan hiphop.
is verður opnuð aftur eftir rúmlega
tveggja ára dvala. Ómar Ágústsson,
betur þekktur sem Ómar Omar, er
aðalmaðurinn á bak við vefsíðuna.
„Síðan lagðist niður á sínum tíma
vegna þess að netþjónninn okkar
hrundi og heimasíðukerfið bilaði.
Það þurfti því að byrja alveg frá
grunni til að fá síðuna í lag aftur og
í millitíðinni komu upp alls konar
mál sem töfðu þá vinnu. Ég skipti
um starf og annar flutti til útlanda
þannig að þetta hefur dregist tölu-
vert. En nú verður langþráðu mark-
miði loksins náð um helgina, enda
hef ég verið að stefna að því að koma
henni aftur í gagnið frá því að hún
lagðist niður,“ segir hann.
Rétti tíminn
Nýja vefsíðan verður að sögn
Ómars með svipuðu sniði og sú
gamla með greinum, fréttum,
spjallborði og tónlist, að minnsta
kosti til að byrja með. „Svo býst
ég við því að hún eigi eftir að taka
breytingum með tímanum og að
alls kyns efnisþættir bætist við, en
það kemur allt í ljós síðar,“ segir
hann.
Ómar segir rétta tímann núna til
þess að endurvekja hiphop.is. „Það
var komin svolítil þreyta gagnvart
íslensku hipphoppi í fjölmiðlum
á sínum tíma. Ég held að áhuginn
hafi byrjað að dala í lok ársins 2003
en þá komu út 10 íslenskar hipp-
hopp-plötur fyrir jólin. Einhvern
veginn var eins og það væri of
mikið, enda vildu allir fá sína sneið
af kökunni. Smátt og smátt fór ís-
lenskt hipphopp svolítið undir yfir-
borðið ef svo má segja, en því fylgja
þó vissir kostir. Nú eru allir farnir
að gera tónlist með sínum eigin per-
sónulega stil og það er mikil gróska
í gangi. í kjölfarið af opnuninni
verður gefinn út sérstakur mix-
diskur með íslensku hipphoppi úr
öllum áttum og svo ætlar til dæmis
Benni, eða DJ B-Ruff úr Forgotten
Lores, líka bráðum að gefa út disk
með um 30 íslenskum hipphopp-
lögum þannig að það er margt í
gangi,“ segir hann.
Barist með orðum
Meðal tónlistarmanna sem koma
fram á Organ á laugardagskvöldið
eru Iöngu þekktir rapparar á borð
við Bent, Sesar A og Móra ásamt
öðrum yngri og upprennandi röpp-
urum á borð við Dabba T. „Það er
alveg kominn tími á hipphopp aftur
í íslensku tónlistarlífi og ég myndi
segja að senan væri að mörgu leyti
heilsteyptari en hún var áður. Á
tímabili var hún eiginlega tviskipt.
Annars vegar voru það þeir sem fíl-
uðu Rottweiler og hins vegar þeir
sem fíluðu Móra, Forgotten Lores
og fleiri. Núna eru Móri og Bent að
fara að spila á sömu tónleikunum
á laugardaginn en það hefði bara
ekki gerst fyrir nokkrum árum.
Svo er ótrúlega mikill metnaður í
íslensku hipphoppi sem ég fullyrði
að sé í heimsklassa," segir Ómar og
bætir því við að þó svo að ólíkustu
listamenn séu að vinna saman séu
eir jafnframt í mikilli samkeppni.
raun eru menn eiginlega að berjast
sín á milli með orðunum.“
Svefninn af skornum skammti
Hvar er helst hægt að hlusta á ís-
lenskt hipphopp?
„Undanfarið hefur lítið heyrst af
því í útvarpinu með nokkrum und-
antekningum. Útvarpsstöðin Flash
hefur gert því nokkur skil og ég er
til dæmis með þátt þar á miðviku-
dagskvöldum á milli klukkan tíu og
tólf. En það er stefnan að þessi tón-
list verði aðgengilegri þegar hiphop.
is er komin í loftið.“
Ómar hefur fengið nokkra aðila
til þess að vinna með sér efni á síð-
una, eins og til dæmis greinar og
plötudóma, en mun sjálfur sjá um
að halda utan um rekstur hennar.
Erþetta ekki mikil vinna?
„Jú, vissulega er þetta það og svo er
ég náttúrlega í minni dagvinnu eins
og aðrir. Svefninn líður fyrir þetta
og maður nær sjaldnast að landa
mikið meira en 5 tímum á nóttunni.
En ég er ekki í nokkrum vafa um
að það sé þess virði,“ segir hann að
lokum.
Su doku
6 2 1 4
8 9 4 5 2
3 6 9
3 6 7 2
7 2 8
1 4 6
1 8 5
5 6 4 7 9
Su Doku þrautin snýst um aö raöa tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem uþþ eru gefnar.
HERMAN eftir Jim Unger
Ég veit ekki af hverju ég hef
fyrir því að elda ofan í þig.