blaðið - 22.09.2007, Side 6
6
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007
blaöiö
$
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
úfeyar ancfláí Ser ab höncfum
Onnumsí aíía þœtti úífararinnar
>6
y
UTFARARSTOFA
%. ý KIRKJUGARÐANNA
%rAR.v^’
^ Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Súui 551 1266 • www.utfor.is
Afar vandaður lúxus-hvíldarstóll með snúningi og
innbyggðum skemmli
Litir: Ljóst leður, brúnt og dökkbrúnt.
Verð kr. 125.000.-
<3]h
usgoqn
www.valhusgogn.is
Röltu um verslunina okkar í rólegheitum á netinu meö
nýja 360° sýningarkerfinu okkar - Þetta verður þú aö prófa!
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 ■ 568-5375
Opið Virka daga kl.10-18/ Laugard. kl.11-16
Einn íslendingur
á leikskóladeild
ii Áhyggjuefni ef við viljum að börnin læri íslensku, segir dósent
við HÍ ■ Ræða á setningu reglna um hlutfall erlendra starfsmanna
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Ræða á setningu reglna um
hlutfall erlendra starfsmanna á
leikskólum Reykjavíkur, að því er
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, for-
maðurleikskólaráðs, greinir frá. Nú
ákveður hver og einn leikskólastjóri
hvernig hann raðar starfsfólki niður
á deildir. Á leikskóla í borginni eru
3 af 4 starfsmönnum einnar deildar-
innar erlendir og er einn þeirra ný-
kominn til landsins. Erlendu starfs-
mennirnir eru fagmenntaðir en
íslenskukunnátta þeirra er misgóð.
Sigríður Sigurjónsdóttir, dósent
í íslenskri málfræði við Háskóla
Islands, segir meginhluta starfs-
fólks á leikskólum verða að hafa
íslensku að móðurmáli. „Þetta er
aðalmáltökuskeið barnanna. Þetta
er áhyggjuefni ef við viljum halda
áfram að tala íslensku og viljum að
börnin læri hana.“
Þorbjörg Helga segir þetta spurn-
ingu um hvaða afslátt eigi að gefa.
„Þetta hefur verið í höndum leik-
skólastjóranna og við höfum treyst
þeim,“ segir Þorbjörg.
Auður Jónsdóttir, mannauðsráð-
gjafi hjá leikskólaviði Reykjavíkur-
borgar, segir að víða séu erlendir
starfsmenn í leikskólum borgar-
innar þar sem enn vantar um 150
starfsmenn, bæði faglærða og ófag-
lærða. „En leikskó ustjórar hafa
reynt að hafa ekki fleiri útlendinga
en einn á hverri deild.“
Ráðningarviðtöl á íslensku
Hún bendir á að viðtöl vegna ráðn-
ingar starfsmanna í leikskóla eigi að
fara fram á íslensku auk þess sem
erlendir starfsmenn fái íslensku-
kennslu. „Þegar erlend börn eru á
leikskólum er það gott innan vissra
marka að hafa erlenda starfsmenn.
Það styrkir starfsemina. En auðvitað
viljum við að allir tali íslensku. Það
er ósköp einfalt,“ tekur Auður fram.
Hún bætir við að faglærðir erlendir
starfsmenn séu fljótari að læra ís-
lensku en ófaglærðir. „Þeir ætla sér
það líka,“ segir hún. Sigríður Sigur-
jónsdóttir bendir á að búast megi
MÁLTAKA BARNA
► Þótt börn virðist að mestu
tileinka sér móðurmálið
og regiur þess sjálf eru
samskipti við annað fólk
á máltökuskeiði nauðsyn-
leg forsenda þess að þau
nái valdi á máli. Börn læra
orðaforða og margar reglur
málsins af samskiptum við
aðra.
►
Það hversu góðir málnot-
endur börn verða fer eftir
því hvers konar máluppeldi
þau hijóta.
við að framburði og setningafræði
sé ábótavant hjá erlendum starfs-
mönnum. Hún kveðst hafa heyrt
af grunnskólabarni úti á landi sem
hafði erlendan kennara. „Barnið
hélt að stafirnir segðu eitthvað allt
annað en þeir eiga að segja.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Afgreiðsludama í 19 ár Karin Gústavs-
dóttir, sem segist vera á besta aldri, sest
við afgreiðslukassa á álagstímum.
Fjarðarkaup í Hafnarfirði
á besta aldri
í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði
þekkja viðskiptavinirnir afgreiðslu-
dömurnar því að margar þeirra
hafa starfað i versluninni í 20 ár eða
lengur. Þetta eru konur sem komnar
eru á besta aldur eða 55 til 65 ára.
Gísli Sigurbergsson, einn eigenda
Fjarðarkaupa, segir það hafa verið
stefnu fyrirtækisins frá upphafi að
hafa ekki eingöngu ungt fólk við
störf og hann er viss um að það
sé ein af ástæðunum fyrir tryggð
viðskiptavinanna.
Eldri dömurnar leysa þær ungu
af á kössunum en eru annars við
störf inni í búðinni. „Það er erfitt
að vera á kassa allan daginn. Það er
bara ekki hægt þótt ég segi sjálfur
frá. Við höfum líka reynt að hafa
það þannig að þær ungu komi líka
inn á lager til að skipta þessu svo-
lítið upp. Það koma þó stelpur inn
sem eru bara á kassa en þær endast
ekki lengi. Eitt ár þykir góður tími,“
greinir Gísli frá.
ingibjorg@bladid.net