blaðið - 22.09.2007, Side 14
14
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007
blaöiö
AÐVENTUFERÐ
Stuttgart eða
Heidelberg
29. nóvember
frá kr.
Beint morgunflug - frábært verð
Heimsferðir bjóða frábært
tækifæri á þriggja nátta að-
ventuferðum til Þýskalands í
lok nóvember. [ boði er dvöl í
annaðhvort Stuttgart eða
Heidelberg. Flogið er út í
beinu morgunflugi til Stutt-
garts á fimmtudegi og heim
síðdegis á sunnudegi. Jóla-
markaðirnir verða komnir í
fullan gang og notaleg jóla-
stemmning alls staðar ríkj-
andi. Heidelberg er ótvírætt
ein rómantískasta borg Þýskalands. Fallegi gamli bærinn við ána Neckar er
meó þröngum götum með fullt af skemmtilegum kaffi- og matsöluhúsum,
stúdentaknæpum og verslunum. í Stuttgart er allt til alls. Jólamarkaðurinn í
Stuttgart er með þeim eldri og þekktari í Þýskalandi.
ITryggðu þér sæti í
einstaka aðventuferð!
Y
Heimsferðir s.“
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Til bókaútgefenda:
BÓKATÍÐINDI 2007
Skráning nýrra bóka í
Bókatíðindi 2007 er hafin.
Útgefendur eru hvattir til að skrá
bœkur sínar sem allra fyrst
en lokaskil vegna kynninga og
auglýsinga er 17. október nk.
Bókatíðindum verður sem fyrr dreift
á ÖU heimili á íslandi.
-----------♦♦♦-----------
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Barónsstíg 5, sími 511 8020.
Netfang: baekur@simnet.is
Á
FÉLAG ÍSLENSKRA
BÓKAÚTGEFENDA
LAUGARDAGAR
LÍFSSTÍLLBÍLAR
Auglýsingasíminn er
510 3744 blaðið=
Verðkr. 59.990_______________________
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Messehotel Europe í 3 nætur með morgun-
verði.
59.990
Deilur á Álftanesi
magnast á ný
■ Minnihluti sjálfstæðismanna kvartar undan valdníðslu meiri-
hlutans í skipulagsmálum ■ Stormur í vatnsglasi, segir bæjarstjóri
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@bladid.net
Guðmundur G. Gunnarsson, bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisfélagsins á
Álftanesi, er afar ósáttur við þann
farveg sem skipulagsmál í sveitarfé-
laginu eru í. Guðmundur er ánægður
með verðlaunatillögu arkitektastof-
unnar GASSA að skipulaginu, en
ekki jafnánægður með skipulagið
sem GASSA er að þróa og byggt er
á verðlaunatillögunni. Afrakstur
þeirrar vinnu var kynntur á íbúa-
fundi ío. september.
„Bæjarstjórinn fullyrðir að um-
ræður hafi farið fram bæði í bæjar-
ráði, bæjarstjórn og skipulags- og
byggingarnefnd um nýtt deiliskipu-
lag. Það má til sanns vegar færa. Það
var hins vegar aldrei sýnt neitt deili-
skipulag, aldrei sýndir neinir upp-
drættir og það var engin efnisleg
umræða neins staðar. Á íbúafund-
inum kemur bæjarstjórinn inn með
arkitektunum og kynnir það sem ég
vil meina að sé ný tillaga.“ Segir Guð-
mundur að tillagan sé mun umfangs-
meiri en áður var ætlað og leiðir að
því líkur að hluti skýringarinnar
liggi í því að bæjarstjóri hafi þegar
gert samninga við fjöldann allan af
verktökum sem nú þurfi að efna.
Því liggi fyrir að nú þurfi ekki
aðeins að samþykkja nýtt deiliskipu-
lag, heldur einnig nýtt aðalskipulag,
sem hafi í för með sér talsverðar
tafir á því að framkvæmdir geti haf-
ist. Þannig hafi Álftanes misst af
lestinni, nú þegar mörg sveitarfélög
eru að bjóða eftirsóknarverðar lóðir
til kaups.
Ekkifrétt?
„Ég held að hér sé verið að búa
til frétt og blása lífi í glæður sem
enginn eldur er í,“ segir Sigurður
Magnússon, bæjarstjóri á Álfta-
nesi. Hann segir að tillögunni hafi
verið vel tekið af bæjarbúum og
hún ágætlega kynnt. Skýringin á
því að deiliskipulagið sé víðtæk-
ara en tillagan sé sú að allt of lengi
hafi tíðkast „bútasaumsskipulag"
á Álftanesi, sem felist í því að sam-
hengi milli nýrra byggingasvæða
hafi verið ábótavant. Því hafi það
staðið í lýsingu keppninnar að ekki
væri verra að keppendur huguðu að
tengingum við önnur svæði en þau
sem keppnin sneri að. GASSA-menn
hefðu gert það og þær lausnir hefðu
verið vel heppnaðar. Því væru þær
nýttar þegar hið endanlega skipulag
væri hannað.
„Ég fagnaði því að við værum búin
að ná sátt í bæjarstjórninni á sínum
tíma þegar náðist samstaða um arki-
tektasamkeppni og svo um að velja
tillögu GASSA.“
Guðni Tyrfingsson, arkitekt hjá
GASSA og annar höfundur vinning-
stillögunnar, segir að framhaldslíf
tillögunnar í formi deiliskipulags
sé viðburðasnautt. „Tillagan hefur
ekkert breyst - hún er bara alltaf að
DEILUEFNIN
►
Sjálfstæðismenn telja að
tillagan geri ráð fyrir mun
meiri þéttingu byggðar en
skynsamlegt er.
►
►
Setja á bensínstöð við Suð-
urtún
Á-listinn sagðist fyrir
síðustu kosningar vera mót-
fallinn þriggja hæða húsum,
en nú er gert ráð fyrir þeim í
miðbænum
Breiðamýri þurrkuð upp
Færsla Norðurnesvegar
batna. Það eru einhverjar breytingar,
en ég held að þær séu ekki þannig að
almenningur sjái mun.“
Vill forðast deilur
Guðmundur rifjar upp aðdrag-
anda síðustu kosninga. „Hér voru
býsna hatrammar deilur á árunum
2005 og 2006. Ég hreinlega trúi því
ekki að það eigi aftur að bjóða upp
í þann darraðardans sem var hérna.“
Vísar hann þar til hatrammra deilna
sem sneru að deiliskipulagi í bænum
þegar sjálfstæðismenn leiddu
bæjarstjórn.
HEFURÞÚ ÁBENDINGU?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
KERRUDAGAR
Frí garðlýsing fylgir hverri seldri kerrru
að verðmæti 15.900 kr. -
*á meðan birgðirendast!
aðeins 78.998 kr.
Nú koma allar kerrur frá topdrive
með l.e.d Ijósum.
Ný sending!
Stóra Kerran
Heimiliskerran
*ga!venseruð
....
aðeins 109.900 kr. skoðaðu úrvalið á topdrive.is V/SA L '
Topdrive.is Smiðjuvellir 3, Reykjanesbær 422-7722