Orðlaus - 30.09.2004, Blaðsíða 46

Orðlaus - 30.09.2004, Blaðsíða 46
V Hrútur 21. mars - 20. apríl Nú þarftu að halda fast í það sem skiptir þig máli. Þó að þér finnist erfitt að hlusta á ráð frá öðrum þá skaltu taka mark á þeim sem þú færð á næstunni, sérstaklega þau sem varða fjármálin þín. Þú ert mjög metnaðarfull um þessar mundir og krefst stundum einum of mikils af sjálfri þér. Mundu aðforgangsraða hlutunum en ekki reyna að sigra heiminn á einum degi! Ástarmálin hjá þér munu taka óvæntan kipp á næstunni því að þú ert mun reiðubúnari til að deila þínu lífi með einhverjum sérstökum en þú hefur áöur verið. Hugurinn er mun opnari fyrir nýjungum og þú munt standa þig að því að heillast af manneskju sem er búin að vera í lífinu þínu lengi, en þú hefur bara ekki tekið eftir, fyrr en nú! © Krabbi (22. júní - 23. júlí) Nú verðurðu að hætta að rifja upp skemmtilega hluti úr fortíðinni og reyna að hafa gaman af nútíðinni. Þó að hlutirnir séu ekki alveg jafn fjölbreytilegir og fyrir 3 árum hjá þér þá eru þeir samt alveg nokkuð góðir. Þú verður bara að horfa betur í kringum þig og sjá hvað þú ert búin að koma þér upp góðum hópi vina og vandamanna. Þú ert alltaf að skipta um skoðun þegar kemur að hinu kyninu og veist sjaldan í hvorn fótinn þú átt að stíga. Annan daginn er hann æðislegur, en hinn reynirðu að finna eins marga galla á honum og þú mögulega getur. Þetta er slæmur ávani, mikið til kominn vegna ótta við að stíga „Skrefið", en á einungis eftir að skila sér í biturleika og eftirsjá. Taktu áhættur og gefðu ykkur séns! Vog (24. september - 23. október) Þú leitar örvæntingarfull í breytingar, eitthvað nýtt og spennandi, ný verkefni og nýja vini. Það er svo sem allt gott og blessað, enda þarftu á því að halda. Þú lifir lífinu fyrir sjálfa þig, en enga aðra. Þú þarft þó að sýna sjálfri þér og öðrum örlítið meiri þolinmæði og gera þér grein fyrir því að það hafa ekki allir þessa endaluasu félagsveruorku eins og þú. í rauninni ert þú að verða búin með alla þína líka eftir annasamt sumar og haustbyrjun. Þú ert búin að hrífast af mjög ólíkum karakterum og enn þá eru smá leifar af tilfinningum til staðar, og fleiri en einn eru í spilinu. Þetta getur leitt til vandræða á næstunni, en ekki vera svartsýn því það á eftir að rætast mjög vel úr þessu, það er að segja fyrir þig, ekki þá! rS Steingeit (22. desember - 20. janúar) Ekki fá útrás í vinnunni. Þó að þú sért ekki búin að eiga í innilegu sambandi við hitt kynið í frekar langan tíma máttu ekki láta það bitna á öðrum. Reyndu frekar að gera eitthvað í því og hættu að vera svona óframfærin. Fjárhagurinn hjá þér er í föstum skorðum núna þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af peningamálum en það væri ekki óvitlaust að nota hluta af þeim til þess að gera smá breytingu á sjálfri þér. Þá er ekki verið að tala um einhverjar lýtaaðgerðir heldur einfalda hluti eins og nýja skó eða nýja klippingu. Þú ert ótrúlega hlédræg, oftast einum of, og allt þarf að fara eftir ákveðnu skipulagi. Vertu spontant, prófaðu eitthvað nýtt. Ekki vera hrædd við það sem þú þekkir ekki! V Naut 21. apríl - 21. maí Þú átt óskaplega erfitt með að kyngja stoltinu en stundum verður þú bara að viðurkenna eigin mistök. Þú hefur átt mjög annasamar vikur undanfarið sem er farið að sýna sig í skapinu á þér. Reyndu að horfa jákvæðum augum á framtíðina og hafa gaman af því sem þú ert að gera. Þá gengur allt miklu betur fyrir sig. Breytingar eru framundan, en það er undir þér komið hvort þær verða til hins betra eða verra. Þú ert búin að sýna vinum þínum hvers virði þeir eru þér að undanförnu en nú þarftu að fara að huga að sjálfri þér. Þú þarft að finna þér einhvern sem er jafn tryggur og þú sjálf en ekki ana út i samband í fljótfærni. <£ Ljón (24. júlí - 23. ágúst) Þú þarft að taka frekar erfiða ákvörðun núna á næstunni sem þú ættir ekki að gera í fljótfærni, því ekki verður aftur snúið. Eftir það tímabil, sem mun reynast þér frekar slítandi, bíða þó betri tímar. Mikil spenna og óvæntir atburðir munu einkenna seinnipart október. Þú átt eftir að sveiflast mikið, verður súper glöð og hamingjusöm en svo gífurlega sorgmædd. Þú verður ástfangin, eða heldur það, en eftir stutta stund áttarðu þig á því að allt var ekki eins og það virtist í fyrstu. Það eru því engar langtima skuldbindingar framundan hjá þér. Ef þú ert í sambandi þá mun líklegast lítið breytast í því á næstunni. Þú verður þó að taka ábyrgð á eigin gjörðum en ekki fela þig á bak við næsta mann. m. Sporðdreki (24. október - 22. nóvember) Þú ert búin að reyna að vinna í þínum málum síðustu vikurnar þar sem þú hefur gert þér grein fyrir kostum þínum og göllum og reynt að laga það sem þér líkar ekki við. Það er mjög gott að vera heiðarlegur við sjálfan sig eíns og þú hefur gert og allt þetta erfiði á eftir að skila sér. Hátíðarhöld eru yfirvofandi þar sem þú verður að sletta rækilega úr klaufunum því síðan muntu ganga inn í nýtt tímabil sem verður ólíkt öllu sem þú þekkir. Á vegi þínum mun verða einstaklingur, sem þú byrjar á því að láta fara í taugarnar á þér, en þær tilfinningar munu fljótt breytast í mjög svo rómantískar hugsanir. Ekki halda aftur af þér með það, þú átt eftir að þakka fyrir að hafa prófað! /wvi A<Vt Vatnsberi (21. janúar -19. febrúar) Þú geislar af sjálfsöryggi núna og þér finnst sem ekkert geti stoppað þig. Reyndu að nýta þessa orku á eins margvíslegan hátt og þú getur ímyndað þér. Þú átt eftir að eyða miklum tíma í næsta mánuði með manneskju sem þú þekkir frekar lítið. Hún er viðkvæm og óörugg og í raun algjör andstæða við þig, en þessi samvera á eftir að koma þér stöðugt á óvart og þú munt læra mjög mikið af henni. í ástarmálunum ertu tilbúin til að búa þér til heimili með þeim sem þú vilt deila lífinu með, en ef þú ert á lausu þá ættirðu að skella þér út, síðustu helgina í október, því vinsældirnar þínar ætla engan endi að taka í kringum mánaðamótin. H Tvíburi 22. maí - 22 júní Einmanaleiki hefur verið að angra þig upp á síðkastið og þér hefur fundist sem þú sért svolítið utanveltu. Eins og allir nái að skemmta sér og hafa mun meira gaman af lífinu en þú. Rífðu þig upp úr þessu núna og ekki eyða tímanum í óþarfa áhyggjur varðandi framhaldið. Það þarf ekki alltaf allt að vera á fleygiferð til þess að lífið sé spennandi. Þú hefur alveg helling af hugmyndum þó að þú vitir ekki alveg hvernig þú eigir að vinna úr þeim, en þá er vert að leita til vinarins sem er alltaf að bjóðast til að hjálpa þér. Sterk merki eru um það að óvænt rómantík leiði í kjölfarið. m Meyja (24. ágúst - 23. september) Þú hefur átt það til að lifa í hálfgerðum draumaheimi upp á síðkastið. Innan skamms áttu eftir að hrökkva upp og sjá að þú þarft að leggja þig mun meira fram en þú hefur verið að gera. Þú hefur gífurlegar væntingar varðandi framtíðina hjá þér og ert á þeim tímapunkti núna að þú þráir náið samband og ef þú ert nú þegar í sambandi viltu fara að taka næsta skref. Hugleiddu vel og vandlega hvað það er sem þú vilt áður en þú gerir hluti sem þú munt sjá eftir síðar. Ræddu málin nema þú viljir vera ein í þessu sambandi. Þú verður að breyta aðeins frá sérvisku þinni og reyna að skilja báðar hliðar á málunum. X” Bogamaður (23. nóvember - 21. desember) Þú ert nýlega búin að upplifa höfnun, frá vini, kærasta eða vinkonu. Manneskja sem þú treystir sveik þig og þú veist ekki hvernig þú átt að bregðast við. Núna verður þú að draga þig í smá hlé og finna út hvað þér finnst vera best í þínu fari og reyna að rækta það enn betur. Þó að þú sért mjög hugsandi og skapandi og vitir af því þá ertu líka mjög heillandi um þessar mundir. Þú getur heillað hvern sem er upp úr skónum ef þú öðlast meira sjálfsöruggi og gerir þér grein fyrir hvað þú hefur mikið að bjóða. Enginn er of góður fyrir þig, ekki einu sinni gaurinn á barnum sem þú hélst að myndi aldrei líta á þig tvisvar. K Fiskar (20. febrúar - 20. mars) Þú leyfir ekki hverjum sem er að kynnast þér náið og hefur það virkað svolítið fráhrindandi á þá sem hafa verið að reyna að ná athyglinni þinni að undanförnu. Á sama tíma skilurðu ekkert í því af hverju enginn hafi áhuga á þér. Vertu aðeins opnari og einlægari á eigin tilfinningar og komdu sjálfri þér á óvart. Mikil vinna er framundan sem þarfnast gífulegrar skipulagningar, sem mun taka þig svolítinn tíma að aðlagast. Ekki gefast upp þó að þér finnist allt vera að fara til fjandans. Játaðu frekar að þú þarft á aðstoð að halda. Hugmyndir sem þig óraði ekki fyrir munu koma í kjölfarið sem munu gjörbreyta þínum framtíðarplönum.

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.