Orðlaus - 01.04.2006, Page 4
SPÓLRO áFRfim^
Smátölvan
Hentu út heimilistölvunni þinni og gefðu laptoppinn þinn því nú er
komin pínulítil og sæt PC tölva sem kallast The DualCor sem hægt er að
taka með sér hvert sem er án þess að finna fyrir því. Þetta litla tæki er
alveg jafn öflugt og fartölvurnar og er búin flestum þeim kostum sem
nýjustu tölvurnar bjóða upp á. Ólíkt öðrum smátölvum þá eyðir þessi
ekki mikilli orku þannig að rafhlaðan dugir í góða stund.
Málefni
Á Netinu má finna vefsíðuna gather.com sem er
síða þar sem fólk hefur tækifæri til þess að tjá skoð-
anir sínar á málefnum sem þeim finnst áhugaverð.
Á vefsíðunni er hægt að koma hugmyndum sínum
á framfæri, ræða málin, ná í uppskriftir eða fá
ráðleggingar svo eitthvað sé nefnt. Á síðunni má
finna greinar um margs konar efni, allt frá stjórn-
málum til snyrtivara en þúsundir birta efni sitt á
síðunni á degi hverjum. Meðlimir Gather velja svo
það besta sem kemur inn, vinsælustu greinarnar,
flottustu myndirnar og þess háttar.
Á síðunni getur þú stækkað tengslanetið þitt og
komist í samband við fólk víðs vegar að úr heim-
inum.
Kíktu á www.gather.com
Seiko Bluetooth úr
Seiko hefur sett á markaðinn Bluetooth úr. Þó svo
að úrið sé frekar stórt og sérkennilegt í laginu þá
er hönnunin á því
samt skemmtileg
og býður það upp
á marga mögu-
leika. Ef þú tengir
úrið við gemsann
þinn þá sýnir það
hver hringir og
hversu mikil raf-
hlaða er eftir í
símanum. Úrið
birtir líka smáskilaboð og býður upp á úrval hringi-
tóna og þess háttar. Seinna verður líklega hægt að
tengja úrið við tölvupósthólfið sitt og önnur tæki
og tól.
Tónlistarvor
Aprílmánuður ætti ekki að vaida tónlistarunnendum
vonbrigðum því af nógu verður að taka. Mánuðurinn
hefst á tónleikum hinnar frábæru belgísku hljómsveit-
ar Deus sem spilar á
Nasa fimmtudaginn
6. apríl en hljómsveit-
in Mammút mun sjá
um upphitun.
í lok apríl verður
svo Vorblót - Rite of
Spring, tónlistarhátíð
í Reykjavík, dagana
27.-B0. apríl. Hr. Örlyg-
ur, í samvinnu við lcelandair stendur í fyrsta skipti fyrir
þessari hátíð. Á Vorblótinu ættu flestir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi en þar verður allt frá taktfastri sí-
gauna-tónlist til funheits Salsa Celtics.
Það er um að gera að mæta á tónleika og taka á móti
vorinu með gleði og tónlist í hjarta.
Fræga fólkið
Ef þú hefur mikinn áhuga á
lífi fræga fólksins og ert jafn-
vel á leiðinni til Hollywood þá
er um að gera að kíkja inn á
þessa síðu. Gawker býður upp
á fréttir og slúður daglega en
lesendur síðunnar eru þeir
sem senda efnið inn, til dæm-
is hvar einhver stjarna sást og
hvað var hún að gera. Nú er
Gawker komin með Google
kort þar sem lesendur geta séð hvar sást til stjörnunn-
ar sem um ræðir og hvar fræga fólkið heldur sig.
í GRÆJUNUM
Páll Óskar Hjálmtýrsson
Tónlistamaður og Idol dómari.
Hvað ert þú að hlusta á?
Ég er að hlusta á nýju Madonnu plötuna Confessions On A Dance Floor
sem var gefin út í nóvember. Þetta er heilsteyptasta verkið hennar í
langan tíma. Ég nefnilega fílaði svo vel fyrstu tvær plöturnar henn-
ar " Madonna" og "Virgin". Þessi nýja plata er ótrúlega flott hjá
henni og bara hressandi að fá almennilega dansplötu en það hefur
ekki gerst lengi. Svo er reyndar ein plata sem ég hef verið að hlusta
á í alveg tvö ár, það er platan World Wide Underground með Erikuh
Badu, sú plata bara læddist inn á mig jólin 2003 og ég er ennþá með
hana í bílnum. Þessi plata er svona afturhvörf til áttunda áratugar-
ins. Erikah Badu er að gagnrýna hvert hiphopið er komið í dag. Þar
sem textarnir ganga út á gullkeðjur, dóp og byssur sem er einmitt
ekki málið og langt frá því sem Martin Luther King var að predika.
Hvaða plötu ert þú að bíða eftir?
Ég er að bíða eftir nýju GusGus plötunni sem heitir Forever. GusGus er
flottasta bandið á íslandi og Urður er án efa besta söngkona íslands,
hún er eina House söngkonan sem við eigum og hún er mega talent.
Ég get ekki beðið eftir plötunni.
Nám erlendis - fjárfestu í framtíðinni
Sérvaldir háskólar og sérskólar
Lista- og hönnunarskólar í Mílanó, Flórens, London og Sydney.
Hótelstjórnun, ferðamálanám og ráðstefnuþjónusta í Sviss,
Krít á Grikklandi og Sydney. Hönnun, list og kvikmyndagerð í Miami.