Orðlaus - 01.04.2006, Blaðsíða 10

Orðlaus - 01.04.2006, Blaðsíða 10
MYNDAALBUMIÐ Ragnhiidur Steinunn er landsmönnum góðkunn sem fyrrverandi fegurðardrottning fslands og núverandi fjölmiðladrottning í Kastljósinu. Orðlaus bað Ragnhildi Steinunni um að kíkja í myndaalbúmið sitt og grafa upp gamlar myndir af sér og segja okkur frá þeim. Átta mánaða prakkari með nóg af hári! Ég fæddist í Keflavík og bjó þar þangað til ég var tveggja ára, þá lá leiðin til Danmerkur þar sem við bjuggum í 4 ár. Á hestbaki í Lego- landi 5 ára gömul. Ég heimtaði að taka þessa regnhlíf með mér hvert sem ég fór, það skipti engu þó sólin skini sem skærast. Þarna er ég 11 ára að syngja í söngva- keppnimeðlngaGarð- ari Erlendssyni sem fór nú heldur lengra í tónlistarbransanum en ég og spilar meðal annars með Stórsveit Nix Noltes i dag. Við sungum „Eitt lag enn" með Siggu og Grétari og klæddum okkur ísvartarLevisgalla- buxurog rúllukraga- boli. Á fimleikaæfingu 12 ára. Aftan á þess- ari mynd stóð „ég að leika sveskju" II!!! Frekar súrt Þessi mynd var tekin fyrir fermingarboðs- kortið mitt. Við vor- um á Kanaríeyjum og pabbiátti þennan„Ha- lekala bol" sem mér fannst einhverra hluta vegna flottur. KRUMMAIMINUS Krummi hefur í nógu að snúast þessa dagana. Eins og flestum ætti að veraj orðið kunnugt er hann verslunarstjóri í Elvis og er á fuliu að semja með: hljómsveitinnWVIÍnus. Aðdáendur hans hafa sent inn spurningar fyrir hann og hér koma svörin. Verður þú aldrei leiður á dópsögunum og eru þær sannar? Maður verður náttúrulega ógeðslega leiður á því að lesa ein- hverja lygi um mann í blöðunum og heyra eitthvað fólk segja tóma vitleysu. Maður verður auðvitað pirraður en á ekki að láta það fara í taugarnar á sér heldur lítur bara í hina áttina og hugsar um sjálfan sig en ekki hvað aðrir eru að segja. Þær sögur sem ég hef heyrt eru ekki sannar. Langar þig í börn? Já, mig langar í tvö börn. Eina stelpu og einn strák. Lítur þú á þig sem kyntákn? Nei það geri ég ekki, Hver er besti vinur þinn? Besti vinur minn í dag er Silli kötturinn minn. Nei nei .... ég á mjög marga vini en ég myndi segja að besti vinur minn væri Svala systir mín. Ætlar þú að fara sóló og hvernig músik myndir þú þá spila? Ég hef alltaf verið að gera músik fyrir sjálfan mig en hef aldrei hugsað mér að fara sóló. Ef ég myndi gera það þá myndi koma eitthvað sem ég væri ekki að reyna að þrýsta út heldur kannski tónlist sem ég hef aldrei heyrt áður. Þannig að ég veit ekki hvernig tónlist ég myndi gera fyrr en ég hef reynt á það. Hvað varð um Ijósu lokkana? Þeir voru orðnir þreyttir. Gamlartilfinningar búnar að hanga i þessum Ijósu lokkum í of langan tíma þannig að það var kom- inn tími til að breyta til. Fortíðin er fortíðin og framtíðin er svört og stutt. Hver er mest pirrandi í Mínus? Enginn. Ef einhver fer í taugarnar á mér þá er það bara öll hljómsveitin en ekki einhver einn. Það var kannski meiri pirr- ingur áður en við erum orðnir svo þroskaðir og búnir að vera lengi að þannig við pælum ekki í þessum hlutum lengur. Hver er kynþokkafyllst á íslandi? Úfff ... veit það ekki, en það eru nokkrar mjög sætar. Ef ég ætti að nefna einhverja eina þá gæti ég nefnt Ellý Ármanns þulu en mér finnst hún mjög falleg og glæsileg kona. Áttu þér uppáhalds hljómsveit? Það er alltaf að breytast en ég hef alltaf haldið mjög mikið upp á Ministry. Hún er alltaf á topp fimm listanum. Ætlarðu að verða heimsfrægur? Nei, alls ekki. Ég fíla ekki að vera frægur. Mér fannst það voða gaman þegar ég var yngri en ég hata það að vera frægur. Ertu svona mikill töffari eða tileinkarðu þér attitúdið til þess að passa í hlutverkið? Ég er bara svona náttúrulegur töffari. Ég hef það frá pabba, hann og bræður hans voru mjög öruggir með sjálfa sig. Ég myndi heldur ekki kalla það töffaraskap heldur frekar sjálfs- traust. Ég reyni alltaf að vera ég sjálfur en þú þarft að sjálf- sögðu að skapa þér vissan karakter þegar þú ert að flytja tón- list og koma fram. Ef þú hefðir þurft að velja þér annan starfsvettvang, hvað hefðirðu viljað vera? Ég myndi vilja vera húðflúrari eða fatahönnuður. Hefurðu hent sjónvarpi út um hótelglugga? Já oft... ógeðslega oft alveg marg oft. Þegar þú málar þig hvaða vörur notarðu? Áttu uppáhalds- snyrtivöru? Ég á tvo svarta augnblýanta sem ég veit ekkert hvað heita. Ég keypti þá bara í einhverju apóteki. Hvernig standa málin með Mínus? Eruð þið ekki meira og minna orðnir að gömlum köllum að bíða eftir barnabörnum og rokkið búið? Ég held að við höfum aldrei verið í jafn góðu formi og ákkúrat núna. Við eldumst eins og gott rauðvín. Eruð þið Svala systir þín mjög náin eða bara svona eðlilega náin? Við erum mjög mjög óeðlilega mjög náin. Af hverju ertu á lausu? Því að stelpur eru hræddar við mig ... hehe. Ætli það sé ekki bara afþví að ég hef ekki enn fundið þá réttu. í næsta tölublaði mun Ásgeir Kolbeins svara spurningum ykkar og því um að gera að senda tölvu- póst á ordlaus@ordlaus.is og spyrja hann að því sem þið viljið vita. Mynd: Steinar Hugi

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.